Hvar ertu Kemal Atatürk?

Eitthvað þykir mér Tyrkir vera farnir að beita sér ískyggilega mikið fyrir íslamsvæðingu stjórnmála og samfélags í Tyrklandi. Vað það ekki einmitt það sem kom Tyrklandi aftur á fæturna eftir hrun ottómanska veldisins - að stjórnkerfi, skólar og herinn var aðskilinn frá íslam og þeim hefðum og fjötrum sem trúarbrögðin höfðu bundið um fætur ríkisins.  

Í fjöldamörg ár, eða allt frá 60. áratugnum hafa kristnir verið á flótta undan ofsóknum tyrkneskra yfirvalda.  Kristnir hafa verið beittir mannréttindabrotum og hafa þá sérstaklega grísk-orþódoxakirkjan verið beitt mestu ofbeldi.  Hvað er að gerast fyrir botni Miðjarðarhafsins?   Er Íslam í útþennslu? Þurfum við að vera á varðbergi og vernda menningu okkar og hefðir?

 

http://www.hurriyetdailynews.com/Default.aspx?pageID=238&nID=69732&NewsCatID=338  

 


mbl.is Konur hlæi ekki hátt á almannafæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

"Í fjöldamörg ár, eða allt frá 60. áratugnum ..."

60. (sextugasti) áratugurinn er ekki til, nema þú teljir tímann í áratugum frekar en öldum. Þá kemur 60. áratugurinn eftir 59. áratugnum. Þú átt væntanlega við 6. (sjötta) áratuginn.

Aztec, 30.7.2014 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband