Tékkland 2 - 3 Tyrkland

Jamm, það fór ekki á milli mála hvað var að gerast hérna í húsinu mínu í gærkvöldi. Tyrkirnir sem eiga heima á 5 hæðinni og svo grannarnir í næsta húsi trylltust af sigurgleði þegar fyrsta markið rann inn og síðan komu tvö til, rétt eins og á færibandi. Svalaborði og stól var fleygt út af svölunum og hrópin og lætin voru að gera alla granna heyrnarlausa.  Bílarnir sem parkerað var utan við íbúðina rétt sluppu þegar öldósir fengu líka vængi og flugu sömu leið og svalaborðið og stóllinn...  Jamm og ég hélt að íþróttir væru bara hættulegar fyrir þá sem iðka þær.

Þessi ótrúlegi sigur var jú vissulega ótrúlegur í alla staði. Grannarnir í húsinu hliðiná urðu greinilega rafmagnslausir því þeir héldu uppi þeim vana að kveikja og slökkva ljósin þegar eitthvað gerðist í leiknum. Svo bara kviknaði ekki aftur eitt skiptið svo þeir flykktust yfir í húsið mitt, á hæð 5 og þar jókst gleðin um minnst helming. 

Ef einhverjir Tékkar búa hér, þá hafa þeir haft eitthvað hjóðara um mig, að mér virðist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband