Færsluflokkur: Sveitarstjórnarkosningar

Dýrasta framkvæmd Íslands

Já þetta varð okkur dýrt að hafa Árna Johnsen sem þingmann. Ég legg til að við látum Landeyjahöfn verða okkur lexíu til framtíðar, vitnisburð um grunnhyggni stjórnmálamanna og trúgirni annarra. Látum Landeyjahöfn teppast - rétt eins og náttúran mun gera fyrr eða síðar og viðurkennum ósigur okkar mót náttúruöflunum og skynsemi hennar!


mbl.is Landeyjahöfn enn ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skömm yfir land og þjóð

Vinnufélagi minn kom til mín og spurði: Kör ni repris på 1 april nu?  Ekki hélt ég það og spurði hana hvað hún ætti við.   Hún sagði mér frá því að hún hefði heyrt að maðurinn sem kom Íslandi á kaldan klakann og hefði verið næstum því dæmdur fyrir landráð - væri núna að verða sendiherra.   Þetta væri oft veitt afdönkuðum stjórnmálamönnum sem "takk" fyrir að hafa mætt í vinnunna undangengin ár.  

 

Nei sagði ég - þetta hlýtur nú að vera misskilningur. Einhvern veginn fannst mér þetta of "klikkað" til að vera satt og hló bara með henni.    

But not!  Þetta var hinn hryggilegi sannleikur málsins. Geir Haarde verður sendiherra fyrir Ísland.  


mbl.is Geir Haarde sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband