Það er leiðinlegt að vera bara peð í pólitískum gangi taflborðsmanna

Jóhann Benediktsson fráfarandi lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli er jú einn af mörgum sem hafa séð, eins og í ævintýri H.C.Andersen, að "keisarinn var nakinn".   Það sem meira er: Hann, Jóhann Benediktsson, þagði ekki. Hann hefur áttað sig talvert fyrr en aðrir hversu dapurlegt ástandið er á bæ lögreglumála landsins. Hann nefnir ástandið sandkassaleik og er það ekki ofsagt hjá honum.

Ég spyr bara eins og sálmaskáldið í Saltaranum: "Hversu lengi, Drottinn. Hversu lengi...." Já, hversu lengi á þessi sandkassaleikur að standa? Er ekki komið kvöld og tími til að börnin öll fari heim?  Er ekki kominn tími á að börnin taki sér fullorðinslegri leiki? Er ekki kominn tími til að einhverjir fullorðnir taki málin í sínar hendur og skakki leikinn í sandkassanum.   Ég held það bara. Ævintýrið er þegar orðið of langt, ævintýrið um Ríkislögreglustjórann. Ég er með farsæl sögulok:

 ... síðan fékk hann biðlaun og eftirlaun og lifði svo hamingjusamlega alla daga eftir það. Lýkur þar þessari sögu.


mbl.is Lögregla í sandkassaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband