Ekki þjóðstjórn, heldur forsetaskipaða sjálfstæða utanþingsstjórn

Já það er gaman að sjá skelfingarglampa í augum þeirra sem kallast mega feður þeirrar óstjórnar sem nú ríkir í atvinnu- og efnahagsmálum á Íslandi. Kannski er þetta hin svokallaða þórðargleði sem nú hefur skotið upp kollinum hjá mér. Ekki gott það!  En með fyllstu virðingu, eða það sem eftir er af henni hjá mér fyrir stórnvöldum á Íslandi, verð ég að segja að nú er tími til kominn að allir leggist á eitt til að bjarga því sem bjargað verður.

1) Enginn fær hærri mánaðarlaun en 600 000 í landinu í 2 ár.

2) Allur kostnaður sem greiða þarf til ríkisins verði frystur, svo engar breytingar verði þar á í 2 ár.

3) Kaup á nýjum atvinnutækjum s.s. bílum, traktorum, skipum eða flugvélum verði bannaður í 2 ár.

4) Bankar setji raunhæf gjöld fyrir þjónustu sína. Sama á við um vaxtaþróun í landinu.

5) Alþingi verði sent heim, launalaust (sama gildir um ráðherra).

6) Sett verður utanþingsstjórn, skipuð af forseta, sem kallar in ópólitíska ráðgjafa sem verða settir ráðherrar í fyrirfram ákveðinn tíma.

7) Krónan verði tengd norsku krónunni.

 


mbl.is Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband