11.3.2009 | 10:46
Óafturkræf óheillaþróun
Þessi skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar er gula spjaldið fyrir okkur hér í löndunum í norðri. Í köldu veðurfari norðurlandanna tekur það náttúruna mun lengri tíma að ná sér en í heitari löndum þar sem gróðurinn er fljótari að fylla í eyður sem skapast þegar við mennirnir tökum að breyta, eyða og "bæta". En minnkandi fljölbreytni í gróður- og dýraríki (flora og fauna) er hryggileg staðreynd sem við íbúar norðursins verðum að axla okkar ábyrgð á.
Beinin hennar Stjörnu [1934] eftir Finn Jónsson, olía á striga [90cm x 106cm]
Eyðilendur og lífríkisauður á undanhaldi er dæmi um hnignun. Stórar lendur hafa verið skaðaðar með lagningu háspennulína, vega, slóða, skála, virkjanna og uppistöðulóna. Auðlendur Íslands liggja ekki bara í fisveiðum og virkjunar vatnsfalla og háhitasvæða, heldur í öræfum landsins, hinu ósnortna landi, þar sem fjölbreytni lággróðurs, skordýra, hins sanna villta landslags þar sem háspennulínur tjalda ekki sjóndeildarhringinn og landrof verður vegna yfirborðssveiflna uppistöðulóna.
Við höfum fengið gula spjaldið. Þegar rauða spjaldið kemur er allt um seint!
Líffræðilegur fjölbreytileiki minnkar á Norðurlöndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Umhverfismál | Aukaflokkar: Mannréttindi, Utanríkismál/alþjóðamál, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.