12.3.2009 | 19:57
Af hverju drepa ungir menn?
Spurningin vekur kannski óhug, en við verðum að spyrja hennar. Hvað hefur gleymst? Hefur mannlegi þátturinn gleymst. Ég er ekki að ráðast á skólakerfið. Ég er ekki að beina orðum mínum að neinum sérstökum, heldur vil ég að orð mín skiljist sem áminning til samfélagsins. Eftir að hafa gert grein fyrir ætlunum sínum, ganga þessir ungu menn til verks. Þeir gerast böðlar, þeir taka sér fyrir hendur ódæði sem mætir engum skilningi. Það merkilega er að þegar þessir strákar hafa lagt út sín myndbönd og "manifestation" eru fyrstu viðbrögðin múgsefjun, aðdáun og jafnvel öfund. Djarft útspil piltanna leiðir til að fleiri sjá sig í sporum þeirra og þegar "hápunktinum" er náð, þegar þeir hafa náð valdi á lífinu með því að valda dauða, angist, sorg, vanlíðan, örvæntingu... er verkefninu lokið og fullnægt.
Dauðinn verður einskonar hreinsunarferli (kaþarsis), sætting - friðkaup. EN: Friðkaup sjúkra ungmenna. Og þetta uppgjör er dýrkeypt. Líf annarra og þeirra sjálfra.
Ljótleikinn er fullkominn. Eitthvað er illa komið af braut og sjálfsmyndin brengluð. En það er einmitt það sem er hið sjúka. Hvað hefur gerst? Ungi maðurinn í Kauhajoki í Finnlandi, sem drap 10 manns síðastliðið haust var afar sjúkur. Hann hafði komið grátandi til mömmu sinnar og spurt hana stuttu eftir 21. afmælisdaginn sinn "mamma, af hverju á ég enga vini?" Að vera viðurkenndur, meðtekinn var allt hann þráði. Hann þarfnaðist vina, hann þarfnaðist meðbræðra, hann þarfnaðist að tekið væri eftir honum, hann þarfnaðist "hópsins". Í stað þessa var hann utanveltu, sjaldan var yrt á hann, þá helst niðrandi eða í eins atkvæðis orðum. Hann hafði verið lagður í þögult einelti. Svipaða sögu virðast allir ógæfusömu piltarnir hafa reynt og fengið að líða.
Voru þetta bara ódælir, óuppaldir guttar sem vildu fá athygli hvað sem það kostaði? Nei flestir voru prúðir strákar sem aldrei sköpuðu vandræði. Komu þeir frá brotnum heimilum og stóðu sig illa í skóla? Nei allir voru í meðallagi í skóla eða yfir meðallagi. Einhverjir komu frá brotnum heimilisaðstæðum en þó ekki svo að það sé talin ástæðan eftir miklar rannsóknir. Flest heimilin gátu sýnt kærleika og hjástoð.
Af hverju er ungt fólk að taka líf sítt umvörpum? Af hverju eru ungmenni að berjast við anorexíu? Af hverju eru ungar stelpur að skera sig um allan kroppinn og sumar að skera sig á púls? Af hverju eru ungir menn í blóma lífsins að gasa sig, skjóta eða hengja?
Enginn veit öll svörin. Óhamingja, vanlíðan, sjúkdómar hafa alla tíð fylgt mannkyni. En hvað getum við gert til að spyrna við fótum. Mér blöskrar svo! Sóunin er svo fullkomin þegar ung manneskja skaðar sig og jafnvel til ólífis. Hvað vilja þau segja okkur hinum? Hvað getum við gert?
Hefur samfélagið ekki gleymt þessum litlu sálum sem fela sig bak við merkjavörur, iPoda, tískuskart, snyrtivörur og tækjakaup? Sjáum við samfylgdarfólk þeirra í gegnum skrápinn sem þau eru að byggja um sig. Sjáum við ekki að okkur er bara ætlað að horfa á skrápinn, skelina en ekki Á ÞAU! Það eru ÞAU sálin, persónan sem við eigum að horfa á, sinna og vera vökul fyrir. Er okkur lagið að dæma þau fyrir þetta og hitt í stað þess að hlusta á þau, gefa þeim tíma að segja frá og síðan ef til vill gefa ráð sprottin af kærleika og innsæi í þeirra líf.
Af hverju koma sjálfsvíg, og svo að maður tali nú ekki um svona fjöldamorð, á óvart? Sá/sú sem tekur sitt líf er langt kominn í eigin vanlíðan, svo langt að engir útvegir eru lengur sýnilegir. Alsherjar blindu slær augun og "besta/eina lausnin" valin til að ljúka óhamingjunni. Í sumum tilfellum er um andleg veikindi að ræða, þar sem einstaklingurinn er ekki 100% við stjórnvölinn. Í öðrum tilfellum er um vangetu til að sjá lausn, útgönguleið og von á að framtíð geti mögulega fundist handan myrkursins.
Í þeim heimi sem við lifum í dag, er ljóst að ytri kröfur á ungmenni í formi fyrirmynda, hópleiðtoga og krafna frá "hópnum", tíska og af þessu brenglaðar sjálfsmyndir eiga stóran þátt í því hvernig komið er. Aðlögunarhæfni sumra er takmörk sett. Og sjálfstæð ungmenni eru ekki síður í hættu en þeir sem dragast með strauminum.
Verum vakandi, hlustum!
2009 Mars: Winnenden -16 dánir!
Listi yfir svipaða atburði:
September 2008:Finnskur 22 ára strákur skýtur 10 manns í Kauhajoki í vestra Finnlandi. Níu nemendur og einn kennari deyja. Hann skýtur sig síðan sjálfan eftir ódæðið.
Nóvember 2007:Finnskur 18 ára strákur skýtur 8 manns í Jokela, 50km norður um Helsinki. Átta deyja, en 13 særast. Hann skýtur sig síðan sjálfan eftir ódæðið.
Apríl 2007:Bandarískur 23 ára nemandi drepur 33 nemendur og starfsmenn Virginía Tech í Blacksburg i Virginíu. Hann fremur sjálfsmorð eftir ódæðið.
September 2006:Í ríkinu Wisconsin í Bandaríkjunum skýtur 15 ára strákur í bænum Cazenovia skólastjórann sinn.
September 2006: Strákur, 25 ára skýtur til dauða eina manneskju og særir 20 áður en lögreglan skýtur hann í klessu, eða nær til ókennis.
Nóvember 2005:Staðgengill rektors er skotinn af 15 ára strák í skóla í Jacksboro í Tennessee í Bandaríkjunum.
Mars 2005:Eftir að hafa myrt tvo ættingja, skýtur 16 ára nemandi í skóla í Red Lake í Minnesota 5 samnemendur sína og einn kennara. Eftir morðin, skýtur hann sig í hausinn.
September 2003:Í Cold Spring í Minnesota, skýtur 15 ára strákur tvo jafnaldra sína.
Apríl 2003: Skólastjóri í skóla í bænum Red Lion í Pennsylvania er skotinn til bana af 14 ára nemanda sem síðan tekur sitt eigið líf.
Apríl 2002:Í Gutenbergmenntaskólanum í Erfurt í Thüringen flippar 19 ára strákur. Hann banar 12 kennurum, 2 nemendum, skrifstofukonu og einum lögreglumanni. Eftir ódæðið skýtur hann sig sjálfan.
Mars 2001:Í Santee í Kaliforníu drepur 15 ára strákur 2 skólabræður sína og særir 13 aðra.
Maí 2000: Flórída fær líka sinn skerf þegar 13 ára strákur skýtur kennarann sinn í skóla í Lake Worth.
Febrúar 2000:Krakki, 6 ára gamall skýtur annan sex ára strák í skóla í Mount Morris Township í Michigan í Bandaríkjunum.
Nóvember 1999:Í Deming í ríkinu Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum skýtur 12 ára strákur 13 ára skólafélaga sinn og drepur hann þar með.
Apríl 1999:Í Columbine High School i Littleton í Colorado skjóta tveir nemendur 12 nemendur og 1 kennara áður en þeir taka sín eigin líf.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Þú vekur mann alltaf til umhugsunar.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 12.3.2009 kl. 22:57
Það er erfitt að átta sig á því hvað brenglast í svona tilvikum
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.3.2009 kl. 00:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.