21.7.2009 | 15:29
Flokksagi æðri samvisku þingmanna
Svo virðist að "agavandamál" sé komið upp í herbúðum Vinstri-Grænna. Svipan er reidd til höggs og þingmenn minntir á flokksagann. Flokksaginn hefur einatt verið eitt af höfuðmerkjum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þar hafa menn selt samvisku sína flokksaganum fyrir föst þingsæti (eða þingsætaloforð) og er trúnaðurinn vel þeginn þegar erfiðum siðlausum og eiginhagsmunapotsmálum er velt yfir þingið. Nú er komið að Vinstri-Grænum að binda hendur þingmanna sinna. Vitið bara, að þegar kemur að atkvæðagreiðslu um ICESAVE sjálfdæmisskjöl Breta og ESB, munu allir stjórnarþingmenn styðja fingri á réttan flokkshollan grænan "já"knappinn.
Tjáir sig ekki um ummæli Lilju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Mikið til í þessu en þetta mál er sannarlega dapurlegt. Við skulum samt vona að þú hafir rangt fyrir þér í þetta sinn.
Sigurður Þórðarson, 21.7.2009 kl. 15:36
Já, ég vona að ég hafi rangt fyrir mér. En sá grunur læðist að mér að svo verði ekki í þetta sinn!
Baldur Gautur Baldursson, 21.7.2009 kl. 16:48
Sorglegt. Það er sko ekki ofsögum sagt að Vinstri Grænir hafi svikið kjósendur sína
, 21.7.2009 kl. 18:21
Nei satt er það!
Baldur Gautur Baldursson, 22.7.2009 kl. 05:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.