13.10.2008 | 17:36
Talið aftur í Florida
Já, mr. McCain, verðum við ekki bara að telja allt aftur í Florida?
![]() |
McCain sagður sá hatursfræjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2008 | 15:14
Davíð! Geir! Þið gerðuð okkur að ölmusufólki!
Davíð! Geir! Bankastjórar og fjármagns"eigendur". Þið hafið gert okkur að ölmusufólki! Þessi verða eftirmæli ykkar í sögubókum barna okkar og barnabarna (ef þau lifa af hungrið, kuldann og eymdina)
Þetta eru hin nýju móðuharðindi. Ofannefndir eru okkar Lakagígar!
http://ekstrabladet.tv/nyheder/indland/article1067129.ece
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2008 | 09:12
Hverju var búið að koma undan til á erlenda reikninga?
Já, af hverju er fólk svona hissa? Auðvitað veit hinn meðalgreindi einstaklingur að þessar fjárhæðir sem nefndar hafa verið í fyrirtækjaviðskiptum í tengslum við verðmæti eigna og fyrirtækja áttu við engan raunveruleika að styðjast. Mér finnst gaman að spila spilið Monopol. Mér hefur fundist ég vera í jafn raunverulegum leik og litlu jakkafatapabbastrákarnir með skjalatöskurnar á 10 milljónkróna jeppunum sínum. Ég tel mig í dag, hafa meira vit á fjármálum en þeir, þótt þeir hafi viðskiptamenntun á bakinu, en ég enga.
Fólk hlýtur að hafa séð að þessi hlutabréfamarkaður sem teygir sig út um allan heim hefur sannarlega ekkert bakland. Þetta hef ég sagt og jafnvel skrifað um á blogginu mínu sl. árið. Þessu hef ég og margir aðrir haldið fram í fleiri ár. Þetta hefur verið leikur með fjármagn fólksins í landinu, með fjármagn sem ekki hefur heldur verið til og ríkið hefur verið með í þessum skuggaleik.
Það sem ég furða mig mest á, er þrælslundin íslenska. Að láta trampa á sér, niðurlægja og svifta sig réttmætum eigum sínum - en gera ekkert í þessu: Hérna í Svíþjóð myndi fólk ekki þegja og hukrast lúpulegt undir súð bíðandi eftir einhverju kraftaverki á fjármálamarkaðinum. Gleymið því, það gerist ekki. Íslendinganna er að sækja sinn rétt. Kalla fólk til ábyrgðar og selja allar eigur stórfyrirtækjanna, bankastofnananna, hringanna og kanna hvað þessir aðilar eiga í útlöndum.
![]() |
Reiðir viðskiptavinir Landsbankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2008 | 18:48
Og svo til að hressa upp á fólkið!
http://www.stacken.kth.se/~vladi/orebros_kommunala_musikskola_2008.mp3
Sem er útgáfa af þessu:
http://www.youtube.com/watch?v=ENl4JK6LJ0Y&feature=related
6.10.2008 | 17:50
Skilaboð frá Alþingi
Þetta er svo sætt! Fanna systir skrifaði þetta á msn' ið mitt rétt áðan:
Nú eiga allir að standa saman... verst að menn deildu ekki öllu þegar vel gekk!
ps. Sat og var að lesa yfir færsluflokkana. Einn heitir "Landsbankadeildin"!!! Soldið kaldhæðið!Hvað verður um þá deildina?
6.10.2008 | 15:18
Axlaðu nú ábyrgð á görðum þínum Geir
Það er ljótt að heyra um það talað að Ísland sé gjaldþrota hér í útlöndum. Fólki er ráðlagt að halda sínum fjármálum aðskildum frá öllu sem íslenskt er og fjármálaspekúlantar segja ráðamenn á Íslandi hafa farið á svo svakalegt fyllerí að timburmennirnir séu alls ráðandi og fyllibyttan hafi týnt skónum sínum og seðlaveski. Hér hafi verið sólundað og það á mjög áberandi máta, þjóðartekjum góðærisáranna og nú sé ekkert til að bregðast við ólánsástandinu. Þetta sé afar hryggilegt því Íslendingar séu duglegt og vinnusamt fólk - að svo hafi óviturlega verið spilað með opinbert fjármagn!
Óstjórn ríkisstjórna síðustu 13 ára er að þakka.
Geir Haarde, Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson. Við, börnin okkar og barnabörn skulu minnast ykkar fyrir óstjórnina alla og fyrir að hafa kafsiglt þjóðarskútuna. Hvílík pólitísk eftirmæli!
![]() |
Geir: Staðan mjög alvarleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2008 | 11:29
Glópagull stjórnmálamanna
Það væri synd að segja að núverandi og fyrrverandi stjórnmálamenn bæru hag þjóðarinnar fyrir brjósti. Það væri líklega kallað að fara með ósannindi. Fáar þjóðir hafa haft sambærilega ólukku í sambandi við stjórn sinna mála lengi vel. Líklega væri hægt að taka dæmi úr nútímanum, en mörg þessara eru af svo viðkvæmum toga að maður veigrar við að setja slíkt fram í rituðu máli. Málfrelsi hefur löngum verið eitt af hornsteinum þeirra réttinda sem við höfum. En oft er best að segja ekki það sem í huganum býr, einfaldlega vegna verðmæta þeirra upplýsinga sem maður býr yfir og þess skaða sem slíkar upplýsingar geta valdið, viljandi eða óviljandi. "Aðgát skal höfð í nærveru sálar" og "oft má satt kjurrt liggja", fleyg orð sem oft hefur verið haldið á lofti. En því miður skapa aðstæður í daglega lífinu oft forsendur þess að maður verður að hrópa út sannleikann eins og hann er, beittur og særandi.
Ég leyfi mér að hrópa í dag! Ég vil í dag minnast þeirra manna og kvenna sem staðið hafa að fjármálum íslensku þjóðarinnar á síðustu árum, eru ábyrgir vegna eigin reiði, persónulegrar óvildar, leiða og skorts á óeigingirni, óeigingjörnum kærleika fyrir því hlutverki sem þeir/þær hafa boðið sig fram í. Þetta fólk er "blindsker [...] vatnslaus ský, sem rekast fyrir vindum, tré sem bera ekki ávöxt að hausti [...] eru ofsalegar hafsbylgjur sem freyða eigin skömmum, reikandi stjörnur...". Þetta er fólkið sem lofaði með drengskaðareiði að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar sem sinna eigin. Þetta er fólkið sem þorir ekki einu sinni að segja frá sannleikanum um eignastöðu sína í íslensku fyrirtækjum.
Og á þetta horfir íslenska þjóðin og lætur trampa á sér. Líklega hefðum við betur verið sett undir dönsku einveldi en þessum skollaleik!
3.10.2008 | 11:37
Áunnið ástand! Fall án fararheillar
Þjóðarskútan hefur lengi verið á leið að feigðarósi sínum. Þetta hefur hver manneskja getað sagt sér, en svo dagljóst að komist hefur ekki verið hjá því að sjá að hverju stefndi. Nú þykjast stjórnmálamenn vera furðu lostnir yfir ástandinu og skömmustulegir trítla alþingismenn til hússins við Austurvöll til að reyna takast á við áskapað ástandið. Í fréttum hér í Svíþjóð hafa stjórnmálamenn sagt að engin stærri hætta sér sænska banka- og efnahagskerfinu búin, þar sem lengi vel hafi verið lagt til hliðar í góðærinu og síðan að kerfið hafi bara verið hugsað svo að það færist ekki þótt á móti blési litla stund. Líklega hafa Svíar lært bitri reynslu að ef kjölfestan er léttari en yfirbyggingin, ferst skútan. Allir þekkja söguna af byggingu Vasa-skipsins. Fyrir þá sem ekki þekkja þá sorgarsögu skal ég rifja hana upp núna í fáum orðum.
Í Þrettánárastríðinu sem Svíþjóð drógst inn í, vildi Gústaf II Adolf sýna hernaðarmátt sinn og byggja stórt og stæðilegt skip. Skipið var byggt 1626-1628 og var ekkert sparað til byggingar þess. Þó var ekki byggt samkvæmt reglum um jafnvægi skipsins, burðargetur (staðsetningu lestar) og yfirbyggingu (skreytinga og seglabúnaðar). Skipið var hlaðið með auka fallbyssudekki en á kostnað kjölfestu skipsins. Skipið var of háreist, aukaþungi var settur of hátt á skipið (fallbyssudekk) og kjölfesta skipsins var ekki nægileg. Þegar skipið var sjósett varð vart við óstöðugleika. Við jómfrúreisu sína þann 10. ágúst 1628, að viðstöddum konungi, hirð, helstu frammámönnum, þúsundum Stokkhólmsbúa og sendiherrum vinveittra og óvinveittra ríkja sigldi Vasa skipið út mót hafi. En knappast hafði skipið sveigt framhjá höfuðstaðnum að það lagðist á hliðna og sökk á fáeinum mínútum. Engu varð bjargað. Fjöldi áhafnarmanna fórst.
Þetta stolt Svíakonungs var dæmi um það sem enn gerist í dag. Nú er það þjóðarskútan okkar, Ísland, sem tekin er að hallast illskyggilega. Það er ekki nóg að byggja háreist möstur og fylla með seglum og vilja hratt með öðrum, ef búið er að selja kjölfestuna.
Hvað er það sem fólk skilur ekki?
Í Fyrstu Mósebók er hægt að lesa um draum faraós, hvern faraó fékk síðan Jósef til að túlka. Draumurinn byrjaði með að faraó sá sýn: "Og sjá, upp úr ánni komu sjö kýr, feitar á hold og fallegar útlits og fóru að bíta sefgresið. Og á eftir þeim komu upp aðrar sjö kýr, renglulegar og mjög ljótar útlits og magrar á hold... [1.Mós. 40:17]
Jósef túlkaði drauminn svo að fyrst kæmu sjö góð ár, síðan sjö slæm ár. Faraó gerði ráðstafanir og sparaði hvert ár hluta uppskerunnar þegar það gaf góðæri. Þannig átti hann mat þegar illa áraði. Þessi saga hefur verið þekkt í minnst 3 000 ár. Hvað er það sem fólk skilur ekki?
Vissulega hafa ráðherrar og bakastjórar og eigendur hálfhruninna fjármálafyrirtækja mokað undir sig, en hvað með þjóðina sem treysti þeim?
![]() |
Óttast að spilaborgin hrynji |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2008 | 09:52
Kirkja og kannabis
(mynd)
Hedlundakirkjan í Luleåstifti hér í Svíþjóð sendi um daginn frá sér safnaðarblað. Undir mynd af fallegu laufblaði stóð: ".. opið fyrir þá sem eru opnir og áhugasamir fyrir að purfa nýja hluti". Já sannarlega er kirkjan farin að reyna fyrir sér með mismunandi form auglýsingamennsku. Einhvern veginn efast ég þó um að "opnum og áhugasömum" hafi verið boðið til hassreykinga í safnaðarheimilinu eða fólki boðið til hringreykinga með hinum himnesku friðarpípu. Auðvitað myndi kirkjan fyllast af fólki, það er ekki spurning um það. Líklega myndi þá eitthvað svífa yfir vötnunum annað en orðið og andinn.
Nei svo sannarlega var það ekki með vilja að hassblaðið fékk að skreyta síður safnaðarblaðsins. Ætlunin var að notast við hin fallegu blöð japanska hlynsins, sem er snarlíkur hinum áhrifagefandi græna ættingja sínum af ættinni Cannabis :)
En eftirspurn eftir fréttablaði Hedlundasafnaðarins hefur aukist og blaðið góðkunna verið söfnuðinum til mestu hjálpar. :)
Spaugilegt | Breytt 8.8.2009 kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.10.2008 | 18:14
Ekki þjóðstjórn, heldur forsetaskipaða sjálfstæða utanþingsstjórn
Já það er gaman að sjá skelfingarglampa í augum þeirra sem kallast mega feður þeirrar óstjórnar sem nú ríkir í atvinnu- og efnahagsmálum á Íslandi. Kannski er þetta hin svokallaða þórðargleði sem nú hefur skotið upp kollinum hjá mér. Ekki gott það! En með fyllstu virðingu, eða það sem eftir er af henni hjá mér fyrir stórnvöldum á Íslandi, verð ég að segja að nú er tími til kominn að allir leggist á eitt til að bjarga því sem bjargað verður.
1) Enginn fær hærri mánaðarlaun en 600 000 í landinu í 2 ár.
2) Allur kostnaður sem greiða þarf til ríkisins verði frystur, svo engar breytingar verði þar á í 2 ár.
3) Kaup á nýjum atvinnutækjum s.s. bílum, traktorum, skipum eða flugvélum verði bannaður í 2 ár.
4) Bankar setji raunhæf gjöld fyrir þjónustu sína. Sama á við um vaxtaþróun í landinu.
5) Alþingi verði sent heim, launalaust (sama gildir um ráðherra).
6) Sett verður utanþingsstjórn, skipuð af forseta, sem kallar in ópólitíska ráðgjafa sem verða settir ráðherrar í fyrirfram ákveðinn tíma.
7) Krónan verði tengd norsku krónunni.
![]() |
Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2008 | 16:41
Afturgöngur femínismans
Gangbrautarmerki í Stokkhólmi
(mynd)
Ég var að lesa í fréttablaðinu Metro í morgun, um leið og ég ferðaðist með strætó niður í bæ. Á síðu þrjú rakst ég á þessa litlu mynd af annars góðkunnu umferðarskylti sem alla jafnt hefur staðið fyrir gangbraut. Jú og það gerir það enn í dag. En efni textans gerði að ég gat ekki annað en kímt. Eftir ötullega báráttu, athugið sérstaklega orðið ötullega baráttu kvenna á þingi Svía, Riksdagen - hefur þeim orðið áorkað að í framtíðinni skulu bæði umferðarskylti með kvenmönnum og karlmönnum vera til leiðbeiningar gangandi vegfarendum og akandi.
Óskaplega er fyndið að konur, sem berjast fyrir jafnrétti á við menn séu að baxlast í þesskonar baráttu. Ekki hjálpar þetta nýja merki konum á atvinnumarkaði hót, eða heimavinnandi konum sem alla tíð hafa verið ósýnilegar í fjarska vanmetnum störfum sínum. Nei, því miður. Þetta umferðar merki hjálpar þeim ekkert meira en okkur körlunum, - en yfir götur.
Hitt finnst mér þó svolítið skondið að konur séu að berjast fyrir því að hinni sterku kynjahlutverkaskipan sé við haldið. Með þessu umferðarmerki "gangbrautarmerkinu" er verið að notast við hefðarhelgað tákn um konu í kjól. (Fæstar konur ganga í kjól - hverju sem því líður). Mér finnst þetta kannski skýra helst hvað réttindabarátta og kröfur kvenna eru annað hvort, komnar skammt á veg eða hreinlega komnar afvega! Hvaða tákn þekkjum við þar sem konur eru táknaðar með þessu tákni kúgunar (að konum var gert að ganga í kjólum en ekki síðbuxum). Hvaða tákn eru skýrust í þessu sambandi? Ég leyfi mér að hugsa til snyrtiherbergja á opinberum stöðum. Er ekki hægt að setja eins "unisex" merkingu og láta alla notast við sömu snyrtiherbergi. Tökum burt pissuskálarnar og "skápum" þarfir allra og notum bara unisex mynd af persónu sitjandi á kósetti.
Spaugilegt | Breytt 8.8.2009 kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2008 | 16:52
Hvar eru gömlu góðu bankastjórarnir?
Nú eru dagar jakkafatapabbastrákaklúbbsins liðnir. Fólkið vill reynda menn, annað hvort okkar gömlu bankastjóra sem stjórna gátu bönkunum áður fyrr eða hreinlega fá inn erlenda aðstoð. Ég hallast að því síðarnefnda. Hvers vegna ekki að sækja eftir erlendum ráðgjöfum og láta þá koma bankakerfinu og þjóðarskútunni á réttan kjöl?
![]() |
Stjórnendur Glitnis hefðu mátt fara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.9.2008 | 10:10
Nú er þetta á allra viti
Svíarnir virðast hafa verið með á nótunum nokkuð snemma og núna halda nokkrir að sé höndunum með að skipta íslenskum krónum, en það gekk ekki í morgun hjá gjaldeyrisþjónustufyrirtæki einu til dæmis. Þeir hreinlega vissu ekki hvað íslenska krónan hafði minnkað í verðmæti. Eða eins og einn starfsmaður ónefnds gjaldeyrisþjónustufyrirtækis hér í borg sagði: "Við getum ekki verið að eltast við nýjar og nýjar tölur af falli þessa gjaldmiðils" - við verðum að hafa réttar upplýsingar þegar við verslum með mynt". Usss.....
http://www.dn.se/DNet/jsp/polopoly.jsp?d=3130&a=833949
![]() |
Ríkið eignast 75% í Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2008 | 07:45
Ausið strákar, ausið! Við förumst annars!
Ég kíkti á síðu Kaupthings fjármálaveldisins, þar sem krónurnar mínar eru geymdar. Á gjaldeyrisyfirliti síðu fjármálaveldisins sá ég að íslenska krónan hefur fallið enn meira í verðgildi. 1 SEK = 14.60 ISK. Aldrei þau síðastliðin 4 árin sem ég hef búið í Svíþjóð hefur þessu verið svo illa farið.
Í morgun þegar ég kveikti á tölvunni minni og sá fréttasíðu MBL að fjöldi fínna bíla hafi verið saman komnir á einum stað í Reykjavík í gærkvöldi. Þar hafi verið verið komin sú stétt manna er telst til nomenklatura Íslands. Eru brestir komnir í leikborðið hand Geirs og vina? Af hverju þessir kvöldfundir? Hvað er svo brátt að það megi ekki bíða annars dags? Svona hegðun og "neyðarfundir" eru til þess fallnir að skapa ótta og óreiðu í fjármálum og hjá einstaklingum Fólk sér að allt er ekki "í lagi". Eða svona eins og maður segir nú til dags: usch... det låter inget bra!
Lycka til med Monopolspelet!
![]() |
Ráðamenn funduðu fram á nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.9.2008 | 07:37
Það er leiðinlegt að vera bara peð í pólitískum gangi taflborðsmanna
Jóhann Benediktsson fráfarandi lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli er jú einn af mörgum sem hafa séð, eins og í ævintýri H.C.Andersen, að "keisarinn var nakinn". Það sem meira er: Hann, Jóhann Benediktsson, þagði ekki. Hann hefur áttað sig talvert fyrr en aðrir hversu dapurlegt ástandið er á bæ lögreglumála landsins. Hann nefnir ástandið sandkassaleik og er það ekki ofsagt hjá honum.
Ég spyr bara eins og sálmaskáldið í Saltaranum: "Hversu lengi, Drottinn. Hversu lengi...." Já, hversu lengi á þessi sandkassaleikur að standa? Er ekki komið kvöld og tími til að börnin öll fari heim? Er ekki kominn tími á að börnin taki sér fullorðinslegri leiki? Er ekki kominn tími til að einhverjir fullorðnir taki málin í sínar hendur og skakki leikinn í sandkassanum. Ég held það bara. Ævintýrið er þegar orðið of langt, ævintýrið um Ríkislögreglustjórann. Ég er með farsæl sögulok:
... síðan fékk hann biðlaun og eftirlaun og lifði svo hamingjusamlega alla daga eftir það. Lýkur þar þessari sögu.
![]() |
Lögregla í sandkassaleik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2008 | 18:14
Þarf að tyggja þetta ofan í fólk?
Ég er að verða svolítið þreyttur á fólki. Eða réttara sagt grunnhyggni og gagnrýnisleysi þess. Hversu lengi þarf að tyggja þetta ofan í fólk að það er verið að fleygja peningum þess í vitleysu. Hvað var ég ekki búinn að skrifa um ríkislögreglustjóraembættið? Er fólk svo grunnhyggið að treysta stjórnmálamönnum fyrir peningum sínum, eða bönkum eða hlutabréfafyrirtækjum öðrum? Nú þýðir ekki að segja: "Ja, við vissum ekki um þetta" eða "Er það satt? Getur þetta virkilega verið?" Nei, þið kæru landar eruð upplýst um stöðu mála og núna er það ykkar að leiða þetta afvegaleidda fólk sem situr við stjórnvölinn aftur á rétta braut ellegar losa ykkur við það. Næstu kosningar munu skera úr um hvað ykkur þykir um störf þessa fólks. Hvað ykkur finnst um hvernig skattpeningum ykkar hefur verið varið og mun varið? Það er ykkar að fjalla um siðleysi þessa fólks sem þeytist á Ólympíuleika, snýr svo heim þegar kastljósið er ekki á það og ekki gengur eins vel - en svo kaupa hálfrar milljónkróna flugmiða fyrir sig og fjölskyldumeðlimi þegar minnst varir? Er þetta allt í lagi? Viljið þið hafa þetta svona? Í nágrannalöndum okkar er farið í mótmælagöngur yfir minni málum. Ráðherrar sem gera á sig í starfi fá að bera skítinn óáreittir - og engum mótbárum er beitt þótt fólki ói við ósómanum af embættisfærslu þessara fulltrúa okkar.
Ég held, þótt leitt sé frá að segja, að Íslendingum sé sama, hreint út sama um hvernig farið sé með þá og hvaða umfjöllun landið fær! Við erum sjálfum okkur verst!
![]() |
Mulið undir Ríkislögreglustjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |