9.7.2008 | 17:04
Herre, när såg vi dig hungrig, fattig, behövande...
Stutt hugvekja flutt vi messu í St. Jakobskirkjunni, Stockholm
Texti: Lúk. 16:19-31
Vår herre Jesus Kristi nåd, Guds kärlek och den heliga Andes delaktighet vare med er alla. Amen.
Berättelsen om Lasarus kunde lika gärna vara från våra dagar. Det finns djup i världen mellan dem som har för mycket av både mat, pengar og bekvämlighet og dem som är hungriga, som inte vet var de sover nästa natt och lever i fullkomlig osäkerhet.Jag är splittrad när det kommer till tiggare. Hur ofta går man inte förbi människor som ligger på gatan som har ställt fram en lapp var det står att de är hungriga, hemlösa eller bådadera. Hur ofta sitter man inte på tunnelbanan och förbi går en kille eller tjej med lappar som de lägger på stolarna med bild och kort text, det är folk som tigger för sig själva och anhöriga. Hur ofta händer det inte oss som färdas runt om staden att man har vägen förbi någon som är behövande. Jag har det som regel att jag inte ger pengar. Par gånger har jag kollat om jag har en slant i fickan, men ångrat mig. Vad är det dessa människor behöver mest? Är det mat eller är det något annat. Jag funderar ibland, vem är jag att gå bara förbi? Jag är väl inget bättre än farisén og leviten i liknelsen om den barmhärtige samariern? Kanske är jag rädd att blanda mig i deras dystra öde, kanske vill jag inte utsätta mig för fara när jag tar fram min slant. Kanske vill jag bara inte ge pengar, utan något annat som kan hjälpa på längre sikt. De ber om pengar, men är det alltid det de behöver mest? Det har hänt att jag har undvikit att gå förbi tiggare, eftersom jag inte har tid att få dessas hela lidandes historia över mig. Vad är det för hav och himmel som skiljer oss åt? Varför kan jag/vi inte se Lasarus i ögonen og lyssna på vad han har att säga? Jag tror jag vet varför jag inte gör det. Det är rädsla att bli berörd om jag går i någon slags relation till Lasarus, så jag stänger honom ute. De gånger jag har givit mig tid og lyssnat till gatans Lasarus, givit honom tid att berätta, ropa ut sin lidande, har jag funnit en människa, en människa sårad, med livserfarenhet jag ibland har haft svårt med att relatera till, men under nere finns en liten liten människa, likadan som jag själv. Vad händer om vi tillåter oss att bli berörda? Jag kan bara säga vad har hänt mig. Gatans Lasarus kan behöva mat, läkarvård, kläder, bad, hjälp i största allmänhet, tid men framför allt behöver han vänner. Kanske är det därför att det blir så farligt att gå in i en relation med våra dagars Lasarus, att han kan hota vår bekvämlighet. Det kan orsaka att vi blir uteslutna och att vi själva blir isolerade. Det som vi anser vara farligt för oss är att vårt liv kan ändras. Istället för att bara hjälpa, skjuter man saken från sig och diskuterar heller var skulden för andras eländiga liv ligger. På det sättet slipper vi hjälpa andra ut ur deras isolering som har lika mångsidigt ursprung och de behövande är många. Det är naturligt att vara rädd om sitt. Men är man bara rädd om sin bekvämlighet. Men till andras hjälp ger Herren Jesus oss sin styrka, kärlek och ande. Med det kan vi hjälpa våra behövande systrar och bröder. I Matteusevangeliet säger Kristus: Jag var hungrig og ni gav mig inget att dricka, jag var hemlös och og ni tog inte hand om mig, jag var naken och ni gav mig inga kläder, sjuk og i fängelse och ni besökte mig inte. Två verser längre fram kan vi läsa: Sannerligen, vad ni inte har gjort för någon av dessa minsta som är mina bröder, det har ni inte heller gjort för mig. Baldur +
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2008 | 19:34
Ólafur Skúlason, biskup
Ólafur Skúlason
Biskup Íslands 1989-1997
Mig langaði bara með nokkrum orðum að minnast vígsluföður míns, herra Ólafs Skúlasonar biskups. Ég sat harla lengi við tölvuskjáinn minn þegar ég hafði meðtekið orðin á skjánum um fráfall herra Ólafs og ég leyfði hugsununum að streyma fram með framvindu hvíta tjaldsins. Síðan slökkti ég á tölvunni.
Í Stokkhólmi er blautt í dag, regnið lemur á rúðunum og það drynur í strætóunum sem aka framhjá. Það er farið að skyggja og það er eins og hljóð veðurs og umferðarinnar hérna fyrir utan kalli fram minningarbrot þess tíma þegar ég hafði svarað kalli herra Ólafs og sótt að fara sem sóknarprestur austur á land (1997). Fyrstu kvöldin þegar ég og kona mín höfðum eignast okkar fyrsta barn og ég var einn heima, nýkominn frá sjúkrahúsinu, með það verkefni að eiga standa í fyrstu jarðarför minni. Rigningarslyddan barði á gluggunum í Lagarfellinu, hljóð frá vélum stórra jeppa íbúanna buldu þegar stigið var á bensínið þegar upp var ekið hjallan framhjá mínu húsi og ég sat kvíðafullur og uppgefinn í stólnum mínum og var að myndast við að skrifa minningarorð og fara yfir atferli þess sem síðar varð fyrsta útfararathöfnin mín. Ég minntist þá orða herra Ólafs biskups, orða sem hann hóf samtal með mér rétt eftir að hann hafði vígt mig: "Séra Baldur! Mundu, að vera prestur er ekki starf; það er líf. Sumum reynist þetta þrautalítið, öðrum ekki. Köllunin helst í hendur við lífið; ef lífið er erfitt berst trúin fyrir lífið, þegar trúin á erfitt, berst lífið fyrir hana. Þetta helst einatt i hendur. Enginn á að gerast prestur bara til að messa á jólum". Bundin í bæn mína um styrk til komandi tíma höfðu þessi orð hans mikla þýðingu og knúðu mig áfram við erfiðar aðstæður.
Herra Ólafur var einatt hlýr við mig. Hann verkaði vera það sem ég skil sem "hirðir hirðanna". Þegar ég var að synda í Laugunum átti hann það til að koma til mín og spyrja hvernig gengi á akrinum. Hann hlustaði sem sá sem hafði reynsluna, sem þeim sem ekki var sama og sem þeim sem lét sér annt um prestana sína. Kirkja herra Ólafs var hin lifandi óstofnunarlega kirkja fólksins. Kannski var hún kirkja á tímamótum. En herra Ólafur var alltaf hinn hlýi, ræktunarsami og vakandi biskup, hinn tryggi prestur prestanna og til hans var einatt hægt að leita eftir hvatningu eða leiðsögn.
Guð blessi minningu vígsluföðurs míns, herra Ólafs Skúlasonar, fyrrv. biskups Íslands. Votta frú Ebbu og fjölskyldu alla mína samúð.
5.7.2008 | 09:12
Grátandi börn og æpandi ungviði
Á baðherberginu er svona lofttúða fyrir ofan baðkarið. Svona loft/rakahreynsibúnaður finnst í öllum 34 íbúðum hússins. Í nótt skrapp ég á klósettið og "sat þar í hægðum mínum". Þá rann upp fyrir mér skelfilegur sannleikur þessa húss að líklega sé verið að þrælpína, limlesta eða meðhöndla lítil börn af ólýsanlegri vonsku og hatri. Nei, reyndar ekki. En hljóðið frá lofthreinsibúnaði hússins, er einmitt svo búið að einhversstaðar í stokkum eða rörum, ventlabúnaði eða hreyflum myndast hljóð sem minnir neyðar- og þjáningarhróp bortnumdu barnanna í Pankot Palace í kvikmyndinni um Indiana Jones and the Temple of Doom. Þetta eru hljóð sem minna á ungbarnagrát, sársaukaskræki og breim í köttum. Já, þetta er flott bakgrunnshljóð fyrir hvaða hryllings- eða serialmörderræmu sem helst.
Reyndar setur oft að manni óhug þegar maður villist inn á klósettið svona síðla nætur. Óneitanlega fer maður að skapa sögubakgrunn fyrir þessi ó-hljóð. Ég hef ímyndað mér að á fjórðu eða fimmtu hæðinni séu þrælabúðir með gámainnfluttum börnum, eða börnum sem rænt hefur verið þegar fjölskyldan hefur verið á ferðalagi. Þau sitja þarnar grátandi blessuð börnin og sauma fótbolta fyrir næstu EM keppni, eða spinna fín klæði úr kóngullóarvefjunum sem umlykja hraunkennt ytra byrði hússins. Hver veit. Vegna þess hversu tilraunir lyfja- og snyrtivöruiðnaðarins á dýrum hafa mælst illa fyrir, hafa þessir aðilar tekið að nota lítil börn. Það má vel ímynda sér að einhver þessara barna ólmist sem minkar eða refir í búrum í einhverri íbúðinni á fjórðu eða fimmtu hæðinni. Að grátur þeirra og gnístran tanna skeri sig upp í gegnum loftræstikerfi hússins, gegnum merg og bein allra þeirra sem leyfa sér í þögn Stokkhólmsnæturinnar að fara inn á klósett. úúúúúhhhhhaaaaa...
4.7.2008 | 21:30
Rólegt kvöld og kvöldsólin hefur gengið til viðar
Það er kvöld í Stokkhólmi og farið að skyggja svo um munar. Fyrir um klukkustund var lesbjart úti, en núna er næstum almyrkur á himni og jörðu. Ég er búinn að vera stússast í veraldlegum hlutum í dag. Fannst það vera rétt að vega upp á móti þeim andlega fimmtudegi gærdagsins sem var. Messan í gær gekk vel, þónokkuð magir voru mættir og sálmasöngurinn a capella gekk vel. Organistinn er í sumarfríi og því sér maður bara sjálfur um sönginn. Ekkert að því í sjálfu sér ef maður er búinn að velja sálma og æfa þá lítið eitt. Par frá Uppsölum hafði samband við mig sama dag og bað mig að skíra barnið þeirra áður en þau færu heim til Íslands í haust. Við þessu var að sjálfsögðu orðið og mun skírnin verða í ágúst í Þrenningarkirkjunni hliðiná dómkirkjunni. Þetta verður svo fínt. Alltaf gaman að geta orðið fólki að liði. Í dag hef ég gert drög að nýrri erfðaskrá, búinn að skipta um á blómunum mínum, búinn að þrífa og stinga út úr kotinu og gera smekklega hreint og fínt fyrir komandi viku sem er frívika. Jamm, ég á sumarfrí í eina viku. Reyndar hef ég messu í næstu viku en hana hef ég þegar undirbúið að mestu. Búinn að skrifa hugleiðinguna, gerði það reyndar í dag úti á svölum, í dýrðarinnar fulgasöng og yndislegum 27°C heitum blænum.
Í kvöld voru nokkrir gestir hérna hjá okkur í Lappis. Þetta var lítill hópur af vinum sem komnir voru til að borða "älgfärslimpa" með kartöflum, sósu og lingonsultu. Þetta var hrikalega gott á bragðið og allir hæstánægðir. Slatti af rauðvíni og hvítvíni var skolað niður. Reglulega góð stemning. Auðvitað var skálað í Brennivín að íslenskum hætti, enda alltaf beðið um það þegar gestir koma. Fanna systir hafði borið til bróður síns góðan dreytilinn og var hann vel þeginn. BRennivín í kók er með því besta sem er til. Gestirnir voru hæstánægðir.
Nú fer að styttast að Hrönn, Georg, Ásdís og Eiríkur flytji til Íslands. Við komum að sakna þeirra. Gott fólk! :(
Jæja, best að fara koma sér í bælið. Vonandi er óhætt að sofa með opinn glugga og að engar engisprettur kássist inn á mann í nótt. Bestu kveðjur til Íslands
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2008 | 17:50
Wasa Club
Núna er heilsan að komast í lag aftur. Eftir að hafa fengið skv. lækninum "vægt brjósklos" (hvað sem það nú er, annað hvort fær maður brjósklos eða ekki!) hef ég byrjað í nýju gymmi. Gymmið heitir Wasa Club og er til húsa á Kungstensgatan 44 hérna í Stokkhólmi. Þetta er hreinlegasta gym ég hef verið í og í alla staði til mestu fyrirmyndar. Starfsfólkið er viðkunnalegt og allir kurteisir í hæsta máta. Ég var þar í dag og er alveg búinn að æfa mig. Þrír mánuðir kosta 800 SEK sem verður að teljast vel sloppið hér í borg. Ég er búinn núna að æfa í 2 vikur og mér líður betur í kroppinum. Auðvitað er maður skítþreyttur eftir puðið, en það er sannarlega þess virði. Best að púla þetta og koma sér í form, því maður tryggir ekki eftir á.
Ég var fyrra árið í öðru gymmi sem ég kunni ágætlega vel við. Síðan stóð maður í flutningum og flutti út af svæðinu. Þannig að maður varð að finna sér nýtt gym. Ég spurðist fyrir út um allt hvar góðu ódýru gymmin væri að finna, en eitthvað var fátt um svör - eða þau svör sem ég kannski vildi heyra. Ég setti því Mikka mús í að kanna hvað vinur og kunningjar hafa fyrir reynslu af svona píslarstöðvum þar sem þjáning, sviti og tár eru grunnefnin í öllu.
Jæja, allavega er ég kominn heim og ætla fara undirbúa glápið á EM í fótbolta. Núna eru það Þýskaland gegn Tyrklandi. Líklega verður húsið brennt niður eða hljóðhimnurnar æptar úr manni undir gang leiksins. Bara taka því að þessari sérsænsku ró og hugsa "að allir eiga rétt á að tjá tilfinningar sínar og að orðið er frjálst". Skjáumst!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2008 | 17:15
Dýrafræði
Nú er sannarlega orðin þörf á bættri dýrafræðikennslu í skólum. Að fólki sé svo illa farið að greina ekki milli hests og ísbjarnar? Hjálpi mér allir heilagir!
Fyrir ykkur sem áhuga hafið og eigið á von að rekast á annað hvort hest eða ísbjörn í túnfætinum hjá ykkur þá kóma smá upplýsingar hér
Ísbjörn oft kallaður hvítabjörn [lat. ursus maritimus]: Er bjarnartegundar og á heimkynni sín í kringu norður heimskautið og nálægt fastland. Hvítabjörnin er stærsta rándýr sem lifir á landi. Fullvaxið karldýr getur vegið um 300-600 kg. Kvendýrið hins vegar er nokkuð minna. Hérna er mynd af svona dýri:
Hestur [lat. equus caballus islandicus]: Háfættur grasbítur með hóf (eina tá). Stutthærður (með þór fax og tagl) til í ýmsustu litum. Tamið dýr í þúsundir ára og þannig nýtt af mönnum. Eftirsóttur sem leikfang í dag. Lítið spennandi til matar. Blíðar og oftast glaðar skepnur þegar farið er vel með þær. Hafa nokkrar gangtegundir sem hafa með yfirferð hestsins (og knapa), hraða og þýðleik að gera. Svona geta þessar skepnur litið út (hér er eitt eintak með ungviði með sér):
![]() |
Bjarndýrsútkall í Langadal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2008 | 16:54
Blessaður drengurinn, bankastjóri hr. Sigurjón Þ Árnason
Sigurjón Þ Árnason, einn af nokkrum bankastjórum Seðlabanka Íslands (sem áður var að finna í einni af skúffum Landsbanka Íslands) segir margt! Eftir viðtalið sem ég hlustaði á á www.ruv.is fréttasíðunni var mér talsvert brugðið. Þegar ég hafði litið af ljúfri góðsemi minni framhjá hans á hinni "spekúlatívu" ofnotknun hans á orðinu "kannski" og svo misbeitingu hans á nafnhættinum; að hitt og þetta væri ekki "að gerast", fór ég að hugsa orð hans og inntak þeirra. Hvað var hann að reyna að segja blessaður drengurinn? Jú, hann vill, til þess að ná niður vöxtunum, fara út í stóriðjuframkvæmdir og endanlega gera Ísland að ruslakistu þunga- og mengunariðnaðar Vesturlanda. Skapa ekki stóriðjuframkvæmdir slíkar sem hann hefur hugsanlega í huga: álver, vatnsorkuvirkjanir og þess háttar stórframkvæmdir ekki þennsluviðbrögð í samfélaginu?
En hvað sem blessaður drengurinn hann Sigurjón Þ Árnason vill gera til að halda andlitinu á fundum hans með erlendum fjármagnseigendum og lánadrottnum Íslands er í stórum dráttum þá stendur enn spurningin: Hver ber ábyrgð á háum vöxtum bankanna? Hver stýrir Seðlabanka Íslands? Kannski er það ef litið er á launin sá sem kallast "banka-STJÓRINN". Ef svo er að hann ekki stýrir neinu nema hverjir sleikja frímerkið á launaumslagið hans, þá vaknar vissulega spurningin hjá fólki eins og mér, hver stýrir þessari vaxtaþróun þá? Jú, kannski fjármálaráðherra og hans vinnufélagi forsætisráðherran?
Ég hef verið að velta því fyrir mér af hverju maður hefur stjórnmálaflokka sem eiga að hafa mismunandi áherslur hvað varðar innanríkis- og utanríkisstjórnmál? Stjórnarandstaðan freyðir bara rétt eins og allir aðrir í ræðupúlti þingsala. Þeir gera lítið sem ekkert til að leiða fólk í sannleika um hvað í raun er að gerast í samfélaginu. Ísland hefur lengi notið góðæris. Hversvegan höfum við sóað og farið illa með allt sem áunnist hefur? Æji elskurnar mínar. Lesið lítinn kafla um sjö góðu árin og sjö slæmu árin í Fyrstu Mósebók kapítula 41, vers 17-36 og lærið af orðunum. Annað er fullkomin grunnhyggni (1.Mós. 41:17-36). Auðvitað þurfa fyrrverandi og núverandi stjórnmálamenn ekki að hafa áhyggjur, en þeir sem ekki hafa matað krókinn á embættisárum sínum með góðum feitum eftirlaunum eða svo maður tali nú ekki um sætum biðlaunum, við þurfum að hafa áhyggjur. Miklar áhyggjur.
23.6.2008 | 17:55
Yndisleg íslenskukunnátta
Þetta var alveg skelfileglýsing. Ég er mikið að velta því fyrir mér hversu lengi hægt er að halda minniseldsvoðanum lifandi. Sennilega nokkur hundruð ár, eftir sem það ætti að nægja 4 hús á dag til að halda eldsvoðanum lifandi. ha ha ha ... þetta var bara of fyndið til að þegja um það! Hlakka til að lesa meira í þessum dúr.
![]() |
Unglingspiltar dæmdir fyrir manndráp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.6.2008 | 12:31
Geir Haarde! Við erum svöng!
Íslenskir námsmenn erlendis, sem taka námslán*, eru núna að falla úr hor. Vinveitt fólk er farið að leggja mat í litlar þar til gerðar fötur sem námsmennirnir mega vitja í skjóli myrkurs. Á meðan er fólk sem á garða farið að setja smekklása á jarðgerðartunnur og kör í von um að íslensku námsmennirnir haldi sig frá matarleyfum og hálfrotnuðu grænmeti sem þar á að jarðgerast.
Við námsmenn sem tökum námslán líðum eðlilega mikið fyrir hvernig ríkisstjórn Geirs Haarde hefur skipulega unnið að því að lækka gengi íslensku krónunnar. Möguleiki að fá greitt (án þess að það rýri sjálfa námslánagreiðsluna) í erlendri mynt, t.d. danskri krónu eða sænskri er ekki fyrir hendi. Við getum ekkert gert okkur til bjargar, skuldum vafin sem við erum.
Ferillinn sem gerir að námslánin okkar verða einskis virði er sá að fyrst greiðir LÍN (Lánasjóður íslenskra námsmanna) út lán til okkar inn á ráðstöfunarreikning okkar í einhverri íslenskri fjármálastofnun. Þangað sækjum við svo peningana okkar, látum millifæra þá (gegn kostnaði) yfir á ráðstöfunarreikning okkar í því landi sem við erum að læra í. Þarna breytast mína krónur í sænskar en eftir að bankinn hefur tekið þjónustugjald, ríkisstjórnin ákveðið gengi sem er 1 SEK =13.95 IKR. Þannig verða mínar íslensku krónur einskis virði.
Geir Haarde, forsætisráðherra! Við erum svöng!
(* Á raunveruleikafirrtum vöxtum og enn brjálaðri endurgreiðslum)
![]() |
Evran yfir 130 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.6.2008 | 11:09
Guðs ríki er nærri
Stutt hlugleiðing samin eftirmiðdag fyrir Jónsmessu skírara. Hugleiðingunni verður flutt við "Heilandi messu" á fimmtudag í St. Jakobskirkjunni í Stokkhólmi.
Jóhannesarguðspjall 1:19-27.
Í dagatali kirkjunnar er að finna marga minningardaga dýrlinga. Margir þessara daga hafa tapa innihaldi sínu og oft stendur nafnið eitt eftir. Margir þessara daga eru sögulegir, hafa haft innihald sem stóð fólki nær en í dag, en flestir hafa þessir dagar horfið í tímans rás, og kannski best að það sé svo. Margir minningardagar kristindómsins eru vegna fólks sem látið hefur lífið fyrir trú sína, liðið hryllilegar þjáningar, verið hetjur vegna nafns Drottins á einhvern hátt. Ef við ættum að halda upp á alla minningardaga dýrlinga og píslarvotta, myndum við fljótlega verða leið á stanslausri hátíðinni, hversdagurinn hverfa og flugeldasýningin sem haldin væri hvert kvöld yrði leiðgjörn og illa séð.
Hátíðisdagur var þó í kirkjunni minni núna um eftirmiðdaginn í dag, þar sem nokkrir safnaðarmeðlimir úr koptísku kirkjunna (frá Egyptalandi) báðu um að fá að syngja nokkra sálma, kveikja á nokkrum kertum og láta brenna smá reykelsi í keri meðan á bænagjörðinni stæði. Þetta myndi taka 30 mínútur. Við þessu var auðvitað orðið. Ég slökkti á reykskynjaranum í kirkjuskipinu og gaf þeim þann tíma sem þau þurftu. Fyrir þessu fólki, koptunum mínum, er aðfangadagur Jónsmessu á sumri, fæðingardegi Jóhannes skírara Sakaríjassonar. Það var gaman að fylgjast með þessari athöfn og að lokum gáfu þau mér lítinn kross að gjöf frá Egyptalandi.
Ein vitur manneskja sagði einusinni að í raun væru ekki til þau orð í orðaforða okkar manna sem gætu mögulega lýst dýrð Guðs, eðli hans og visku. Að hann væri í raun of stór og mikill að við, manneskjur, ættum þess kost að skilja heilagleika hans. En önnur manneskja sagði að þetta væri vonlaust; að reyna að útskýra Guð með orðum. Best væri að segja að ljósið, það væri skuggi Drottins Guðs. Í Fyrsta Jóhannesarbréfi stendur þó að Guð sé kærleikur. Í raun segir það mér allt. Ég þarfnast ekki fleiri orða, ekki fleiri skýringa; Hann er Kærleikur. Auðvitað er að finna fleiri titla fyrir Guð í Bibíunni; hann kallast friðarhöfðingi, konungur konunga, skapari, herra, faðir, dýrðlegur, heilagur, Guð... Eftir að hafa lesið um alla þá titla sem hann hefur getur maður vart annað en upplifað sig sem ógnarlítinn. Svo lítinn að erfitt er að skapa tengingu við hann, við duftsins synir og dætur.
Hvernig getum við frætt um hann, hvernig getum við boðað hann? Maður verður svo lítill eitthvað í samanburði við "skuggan af eilífu ljósi og dýrð Drottins". Manni finnst maður vera óverðugur, syndugur, skítugur og einskis virði. Hvað er ég? Er ég nokkuð annað fyrir augum Guðs en sandkorn á ströndu? Hvað er ég að Guð skuli minnast mín? Eða eins og sálmaskáldið segir í áttunda Davíðssálmi "hvað er þá maðurinn, að þú minnist hans, og mannsins bar, að þú vitjir þess?"
Till einmitt þessara, til okkar manneskja miðaði Jóhannes skírari orðum sínum: Verið viðbúin. Hann kemur til þín, því að þú ert honum kær, þú skiptir máli og Guð vill leiða þig, samkvæmt því sem hann hefur lofað, til eilífs lífs með honum. Það er einmitt þetta sem er höfuðatriði trúarinnar: Fyrir Guði skiptir þú máli, hvernig þú ert meðhöndaður/meðhöndluð, hvenrig líf þú færð og hvernig þú vinnur úr því. Við erum öll jafnmikilvæg sem börn hans. Við erum kannski sem sandkorn á ströndu, en hvert og eitt okkar þekkir hann með nafni og kallar á okkur. Hverju og einu okkar hefur hann ætlað hlutverk. Hann, faðir okkar himneskur, elskar okkur nákvæmlega eins og við erum. Hann lyftir okkur úr duftinu og segir: Þú, ert einstakur/einstök rétt eins og þú ert. Verkefnin sem okkur eru falin eru misjöfn, en öll jafn mikilvæg til að hið himneska takmarkið megi nást.
Ég hef oft sagt að ég hafi hitt marga engla á ævinni. Margir þessara tilheyra minni fjölskyldu, vinum, eða fólki sem ég hef kynnst á ævinni, eða hverra verk ég hef séð. Orðið engill merkir sendiboði eða boðari. Í orðum, í verkum og lífi okkar eigum við að vera boða Guðs náð, kærleika, fyrirgefningu og umburðarlyndi. Enn slíkur boðberi var Jóhannes, kallaður skírari. Hann kom í heiminn til að vittna um um þann sem koms skyldi. Hann hvatti fólk að gera "afturhvarf" til trúar og lífs með Guði, því Guðs ríki væri nærri. Aldrei hefur Guðs ríki verið nærri, en einmitt nú.
20.6.2008 | 23:45
En artikel från Svenska Dagbladet, 20:e juni 2008
Talande om att ha otur med sitt ordval:
15-åring åtalas för mord på vårdare
Malmö: Den 15-årige pojke som i maj knivskar en vårdare till döds på behandlingshemmet i Tunagården i Malmö på torsdagen mistänks för mord. Av den rättspsykiatriska undersökning som pojken genomgått framgår att han är allvarligt psykiskt störd och i behov av vård. TT.
Jag säger nu bara: Jasså!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er í nokkrum samskiptum við íslenska námsmenn hérna í Svíþjóð, þá á ég við námsmenn á svæðinu kringum Stokkhólm og norður um Uppsali, jafnvel norður þar um. Þetta fólk er flest á námslánum og er að berjast við að flytja ekki nema lítinn hluta námslánanna sinna til Svíþjóðar vegna þeirra ástæðu sem er beinharður og bitur sannleikur okkar námsmanna, en það er ógnar ráðaleysi íslenskra stjórnvalda. Það virðist sem stjórnvöld séu í ljótum leik með litla fjármuni okkar, sem eru að verða að engu áður en þeir komast í hendur okkar.
Því miður virðist íslenskum stjórnmálamönnum vera sama um okkur, að okkur sem síðar munu að sjálfssögðu greiða þessi lán á súperháum vöxtum, vaxtabótum og í raun aldrei ná að greiða neitt niður nema "kostnað". Á sama tíma erum við að auðga Ísland með þekkingu, þekkingu sem stjórnvöld gera ráð fyrir að færist til landsins.
Ég segi enn og aftur og stend við það: SKAMMIST ykkar. Þessi ótúttlegu vinnubrögð og skipulögðu aðfarir að okkur námsmönnum eru fyrir neðan virðingu okkar flestra. Kannski ekki ykkar virðingu en með sífallandi gengi krónunnar eruði að leika með framtíð landsins. Þið eruð að gera það að verkum að fólk, þekkingin kemur ekki lengur til Íslands aftur.
Við námsmenn munum minnast óstjórnar ykkar í næstu kosningum. VIð munum minnast þess þegar námslánin okkar voru gerð einskis virði áður en þau náðu höndum okkar. Við munum ekki gleyma eins og oft er Íslendinga siður. VIð munum ekki blekkjast af kosningaárstilbrigðum ykkar, við munum eins og við erum nú þjálfuð í hér erlendis.
Hafið engar þakkir fyrir...
17.6.2008 | 11:43
Íslensk stjórnvöld hafa notið blómlegrar tíðar, því miður missti íslenska þjóðin af því
Besta gjöfin til þjóðarinnar á "afmælisdegi" lýðveldisins hefði verið að Geir forsætisráðherra hefði ekki komið til hátíðahaldanna heldur hefði skroppið í lax eða eitthvað, bara haldið sig víðsfjarri. Þá hefði jú þjóðin sloppið við alla froðuna. VIð verðum að fá hvíld frá froðusnökkum steinhússins við Austurvöll endrum og sinnum. Ég tel að íslenska þjóðin eigi að fá að velja milli:
a) Halda þjóðhátíðardaginn með sama sniði og áður?
EÐA
b) Sleppa hátíðahöldum og senda þjóðina á lækkuðum fargjöldum til sólarlanda?
![]() |
Forsætisráðherra bjartsýnn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2008 | 08:22
Þjóðhátíð - til hvers?
Þjóðhátíðardagurinn er tákngervingur hins sorglega í íslenskri þjóðarsögu. Hvers erum við að minnast? Af hverju valdist 17. júní af öllum dögum? Ég get ekki séð að Íslendingum sé neinn sómi af tilkomu þessa dags. Satt er það og rétt að Íslendingar áttu inni sjálfstæðiskröfuna og jafnvel samþykki Dana, en hvernig við Íslendingar fórum að, verður okkur einatt til skammar og lítilsvirðingar. Það sem er svo lágkúrulegt í stórum dráttum er að Íslendingar tóku sér sjálfsstæði þegar herraþjóðin Danir voru hersettnir af Þjóðverjum. Danir höfðu verið sviptir ráðum yfir utanríkismálum sínum og höfðu svo til engin opinber samskipti við útlönd. Herinn var lamaður af Þjóðverjum og sama þjóð hélt uppi ógnarstjórn meðal Dana. Kóngurinn var svo til í stofufangelsi í Kaupmannahöfn og gat ekki borið hönd fyrir höfuð sér hvað varðar Íslendinga. Vissulega höfðu Danir samþykkt að að þessu kæmi að Íslendingar fengju sjálfstæði, en þetta var versti tíminn til að gera slíkt. Íslendingar (svo sem þeim er svo gjarnt þegar kemur að stjórnvöldum) spörkuðu í "liggjandi manninn". Íslensk stjórnvöld æddu fram, heimtuðu, kröfðu og tóku. Merkisberi þessarar aðfarar var hinn löngudauði Jón Sigurðsson því jú allar þjóðir þurfa sinn Bólívar. Hryggð konungs í Kaupmannahöfn er merkjanleg yfir ótímabærum aðförum Íslendinga, þjóðarinnar sem hann hélt svo mikið upp á.
Það var ekkert gott við sjálfstæðisheimt Íslendinga á Þingvöllun árið 1944. Ótímabær, hryggileg, snúið á hersetna Dani (sem höfðu alls ekki verið svo slæmir mót Íslendingum, a.m.k. ekki verri en mót sínu eigin fólki) og setti Ísland á pall með öðrum tækifærissinnuðum þjóðum. Hefðu Íslendingar beðið þar til stríðinu hefði verið lokið, hefðum við verið meiri menn fyrir vikið.
Svo er það þetta með Jón Sigurðsson. Ég held í raun að hann hafi ekki verið sú hetja sem flestir vilja telja hann. Hann var sennilega tækifærissinni eins og flestir sem skreytt hafa svið íslenskra stjórnmála. Í raun tel ég að stærstu hetjur íslenskrar menningar og þjóðarréttar sé: Jón Arason biskup (píslarvottur mót áhrifum valdsmanna Danakonungs og síðasti verndari íslenskrar menningar þar til ....) Rasmus Kristján Rask kom fram á sjónarsviðið og stuðlaði að því að Íslendingar tala enn sitt tungumál. Hann sá hvert stefndi og gerði stóra hluti til að vernda tunguna. Snorra Sturluson mætti einnig setja með þessum köppum enda stórmerkilegur og verk hans öll. Þökk sé honum að við eigum sögur, bragarhætti og heimildir um hina fornu Ásatrú.
Jamm fagnið hóflega og setjið heldur gleðikraftinn á 1. desember í staðinn. Eða setjir þjóðhátíðardaginn á stofndag Alþingis 930. Bara ekki þenna hryggilega dag 17. júni.
16.6.2008 | 17:59
Ófeigur Bjarnarson
Jæja, kæru landar, ferðamálayfirvöld... og hugsandi fólk annað! Gefið bangsa líf, landinu góða landkynningu og yfirvöldum tækifæri til að nota peninga í eitthvað vitrænt sem þjóðin metur mikils. Ég hvet fólk að hugsa til bangsa, bjarnartegundar sem er í útrýmingarhættu. Gerið okkur hinum hugsandi Íslendingum ekki þá skömm að drepa bangsann.
![]() |
Reynt að ná birninum lifandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.6.2008 | 07:28
Tékkland 2 - 3 Tyrkland
Jamm, það fór ekki á milli mála hvað var að gerast hérna í húsinu mínu í gærkvöldi. Tyrkirnir sem eiga heima á 5 hæðinni og svo grannarnir í næsta húsi trylltust af sigurgleði þegar fyrsta markið rann inn og síðan komu tvö til, rétt eins og á færibandi. Svalaborði og stól var fleygt út af svölunum og hrópin og lætin voru að gera alla granna heyrnarlausa. Bílarnir sem parkerað var utan við íbúðina rétt sluppu þegar öldósir fengu líka vængi og flugu sömu leið og svalaborðið og stóllinn... Jamm og ég hélt að íþróttir væru bara hættulegar fyrir þá sem iðka þær.
Þessi ótrúlegi sigur var jú vissulega ótrúlegur í alla staði. Grannarnir í húsinu hliðiná urðu greinilega rafmagnslausir því þeir héldu uppi þeim vana að kveikja og slökkva ljósin þegar eitthvað gerðist í leiknum. Svo bara kviknaði ekki aftur eitt skiptið svo þeir flykktust yfir í húsið mitt, á hæð 5 og þar jókst gleðin um minnst helming.
Ef einhverjir Tékkar búa hér, þá hafa þeir haft eitthvað hjóðara um mig, að mér virðist.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)