27.5.2008 | 16:59
Police brutality?
Það vekur ekki furðu mína beinlínis að fólk skipi sér í tvær fylkingar með kaftfora guttanum eða lögreglumanninum með stutta kveikjuþráðinn. Það hefur löngum verið svo að fólk í óupplýstu ástandi sínu, tekur sér skjól bak við fjöldan og þannig lætur gjalla með ókvæðisorðum að öðrum hvorum aðilanum. Báðir eiga sök að máli. Guttinn kjaftfori, velur að þenja sig út fyrir framan vini sína, leikja þá "hetju" sem til þarf til að fá virðingu og lotningu vinarhópsins. Guttinn er að staðsetja sig í goggunarröðinni og með því að taka smá "fæting" skýst hann upp á við í fyrrnefndri röð goggunarinnar. Hann sýnir hvað honum hefur lærst á sinni hlutfarslega stuttu ævi og beitir kunnáttu sinni í erlendum tungumálum til uppreisnar sinnar mót lögvörðu valdboði starfsmanna ríkisins. Lögreglumaðurinn, illa launaður og þreyttur eflaust eftir langar vaktavinnu, þrautpíndur, lætur agaleysi og illa uppfóstran guttans kjaftfora espa sig og etja. Hann lætur undan, stuttur kveikiþráðurinn kveikir í tundrinu og púff púff... hann ræðst til atlögu mót guttanum kjaftfora. Hann hefur greinilega misst af lögregluæfingatímum í Lögregluskolanum [e. Police Academy]. Við skulum ekki dæma þá of hart, hvorki guttan kjarftfora nér heldur úttaugaða lögreglumanninn. VIð verðum þess í stað að biðja og heitast vona að þessir tveir lendi ekki í neinum af lífsins stóru raunum. Að minnsta kosti ekki þegar filmaðir, á opinberum stað eða í vinnugalla (uniformi).
Líklega fær lögreglan þá virðingu sem hún hefur unnið til og guttinn kjaftfori sinn rauðmarða háls til minningar um misheppnaða verslunarferð. Allir ættu að geta dregið lærdóm af þessu, en raunar tel ég að engum beri að refsa. Þetta verði víti, öðrum til varnaðar.
![]() |
Mál lögreglumanns til ríkissaksóknara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.5.2008 | 17:24
Læknar keisarans í Kína
Einhversstaðar las ég það að fyrr á tímum hafi verið vitur keisari í Kína sem sá við fégráðugum embættismönnum sem höfðu auðgast ótæpilega í skjóli skriffinsku og flókinna siðvenja. Sem dæmi um klókindi keisarans lét hann embættismenn fá greitt í þeim mæli sem hagvöxtur, framleiðsla og gróði ríkiskassans jókst.
Annað dæmi um klókindi keisarans var að vegna ótta keisarans um heilindi lækna sinna, greiddi hann þeim aðeins laun þegar hann var frískur og við góða heilsu. Þegar hann veiktist eða var slappur fengu þeir aðeins lítið eitt greitt - eða ekkert! Dó keisarinn, urðu þeir atvinnulausir og var fleygt út fyrir múra hinnar Forboðnu borgar.
Mér veður hugsað til ráðherraliðsins á Íslandi, ráðuneytisstjóranna, ríkislögreglustjóra og allra þessara "stjóra" sem eru til - og ég veit ekki til hvers!
26.5.2008 | 06:02
Til hamingju með afmælið pabbi
Til hamingju með 70 árin elsku pabbi og takk fyrir þann þú ert og hefur verið mér allt mitt líf.
Takk fyrir nýtt og gamalt. Takk fyrir horfna daga og líðandi augnablik. Mínútur og dagar renna í sama farveg. Niður í stöðuvatn tímans. Við sitjum í báti atburðanna leyfum augnablikum að lyfta bátnum á vatnsfletinum. Djúpt í vatninu er þungur straumur, en hann sér maður ekki. Straumurinn kallast framvinda. Handan vatnsins eru hinar fegurstu lendur fyrirheita og drauma. En ferðin sjálf yfir stöðuvatn tímans er mikilvæg, því á leiðinni verðum við að veiða minningar til að nærast á þegar landi er náð. Sagan um vatnið á sér engan endi. Hún er saga tíma, tilfinninga, skilyrðislauss kærleika og náðar. Hún er saga okkar mannfólksins og þess sem gefur okkur lífið. Hún er saga lífsins og þess sem gaf það. Hún er saga atburða, gjörða fólksins sem er á siglingu og drauma.
Hún er saga.... en engin venjuleg mannkynssaga!
Eða eins og Dag Hammaskjöld sagði:
"The longest journey is the journey inwards"
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 19:47
Nokkrar staðreyndir um lífið og tilveruna
Frá því að Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar 1945, hafa 140 stríð brotist út.
Napóleon fékk stólpípu á hverjum degi.
Einn milljarður sekúntna er 32 ár.
Jákvæður árangur starfs AA samtakanna er áætlaður um 5%.
Á Haítí á aðeins 1 af hverjum 200 íbúum bíl.
Einn þriðji hluti allra fullorðinna ýtir á "snooze"hnappinn á vekjaraklukkunni sinni þrisvar sinnum áður en þeir vakna.
"Drakúla" merkir sonur djöfulsins á rúmensku.
10% af líkamsþunga þínum reiknas vera bakteríur.
Hamstrar geta "gert það" 75 sinnum á dag.
Pablo Picasso vildi oftast fá að greiða með ávísun. Hann gerði það vegna þess að fólk leysti ekki út ávísanirnar, heldur vildi heldur halda þeim vegna eiginhandaráritunarinnar.
Julio Iglesias vann sem lögfræðingur áður enn hann gerðist söngvari. Sama gerði John Cleese.
Ísland var fyrsta landið í heiminum að leyfa fórstureyðingar 1935 skv. lögum.
Hæsti foss i heimi er í Venezúela. Hann heitir Englafoss og er 979 m hár.
Þú hefur ríkari bakteríuflóru í munninum en í rassinum.
23.5.2008 | 19:23
Leti á leti ofan
Í dag er ég búinn að vera vinna. Mér reiknast til að um 3000 manns hafi komið í kirkjuna í dag og það verður að teljast fínt á venjulegum vinnudegi. Það er yndislegt að geta haft kirkjuna opna fyrir gesti og gangandi, geta gefið fólki kost á að koma inn, ganga inn í þögnina, inn í rósemdina. Það er þetta sem gerir kirkjuna meðal annars svo máttuga, að hún getur boðið upp á þögn. Þögn er ein af fágætum stórborgarinnar. Að geta skotið sér inn í kirkjuna, sest á einhvern bekkinn eða bara vafrað um, kveikt á kerti, dregið biblíuorð og eða hugleitt - er eitthvað sem fólk verður að kynnast. Gefa sér 15 mínútur á dag bara í að hlusta, þegja og hugsa.
Í dag hlustaði ég á skriftir skjólstæðings kirkjunnar. Ég var eini presturinn á staðnum svo þetta kom í minn hlut. Það rann upp fyrir mér enn á ný, hversu ótrúlega dýrmætar skriftir eru. Hversu máttugt fyrirbæri þetta er. Ég fór fullkomlega eftir sænska skriftaspeglinum. Eftir 30 mínútna samtal, játningu og fyrirgefningu, gengum við, ég og skjólstæðingur kirkjunnar fram og kveiktum á ljósi bænaljósstjakanum frammi í kirkjunni. Þetta var yndisleg stund. Þetta er að verða æ algengara í Svíþjóð og ég hef hlustað á skriftir nokkrum sinnum eftir að ég kom til Stokkhólms. Það er auðvellt að sjá hversu fólki líður betur eftir svona trúnaðarsamtal (undir merkjum og formi skriftaritualsins). Mæli með þessu!
Á morgun verður sennilega enn fleira fólk á ferðinni. Launahelgi í Svíþjóð og fólk úti að versla og eyða peningum í ís, kaffi og kökur á kaffistöðunum við Kungsträdgården. :) Svo koma gestir annað kvöld heim og þá er víst vissara að druslast til að vera hress og ekki þreyta sig að óþörfu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2008 | 08:19
Nazistakross eda svastika?
Fékk tölvupóst frá kunningja... Svo sem ekki í frásögur færandi nema hann sagði að líklega myndi fólk misskilja þetta með hurðina og leggja að jöfnu "svastíkuna" og svo "nazistakrossinn". Merkið á þessari fallegu hurð hefur EKKERT með nazisman að gera. Hurðin var smíðuð um 1910-20 og húsið bygg nokkuð innan þess. Nazisminn tók upp þetta gamla merki og sneri því upp á kant. Svo þar með eru tengslin rofin við upphafsmerkingu og útlit svastíkunnar sem var trúarlegt tákn eða galdrastafur í mörgum löndum um árhundruð ef ekki þúsund ára.
Hjálpi mér allir heilagir! Hvað fólk er viðkvæmt!
20.5.2008 | 19:00
Upplandsgatan þrjátíuogeitthvað
Var á labbi með Raquel og Mikka núna í gær. Ég hafði lengi vitað af þessari dásamlegu "jugend" eða "art nouveau" hurð. Hún er listilega gerð í reisulegu húsi hérna við Upplandsgötuna í Stokkhólmi. Það að hún hafi fengið að standa óáreitt allt frá tíunda áratug 20. aldar, lifað af tvær heimstyrjaldir, offorsa og ómenningu, er alveg frábært. Hérna sést hún nýskröpuð og lökkuð með kristalskorna glerinu sínu sem virðulegur fulltrúi skreytiþ, ævintýra- og flúrstíls 20. aldarinnar. Gjörið svo vel!
20.5.2008 | 18:43
Netnotkun eyðir atvinnumöguleikum þúsunda
Ég sat í dag í neðanjarðarlestinni hér í Stokkhólmi og las áhugaverða grein í frétta- og auglýsingablaðinu "Metro" sem dreifist ókeypis á strætó- og lestarstöðvum. Í greininni er fjallað um hvað netsörfið kostar þjóðina, bæði í glötuðum vinnutíma, afköstum og síðan í því að fólk gengur samtímis um atvinnulaust.
Netsörfið á vinnutíma kostar atvinnuveitendur milljarða, segir í greininni. Fyrir um ári síðan sörfaði að meðaltali hver starfskraftur burt um það bil tveimur vinnutímum á viku. Í dag hefur þessi tala tvöfaldast. Tölvuumsjónarmenn í litlum og stórum fyrirtækjum á meginlandi Evrópu gefa upp að starfsfólk noti um það bil 48 mínútur á dag í einkanotkun á tölvunni og vinnutíma. Þetta styðja kannanir frá fyrirtækinu Websence.
Ef maður deilir þessum tíma niður á hinar 4,3 milljónir sem hafa störf í Svíþjóð, samsvarar þetta um 430 000 störfum. Allt sörfið kostar svo fyrirtækin stórar summur, því þeim reiknas til að fyrirtæki með 200 starfsmönnum glatar um það bil 10 milljónum SEK (12 millj. ISK) á sama tíma.
Er fólk alveg samviskulaust???
20.5.2008 | 07:04
Vegabréfsútgáfa fyrir Guðs ríkið
Jæja, þá er enn eitt barnið komið með ríkisborgararétt í Guðs ríki. Skemmtileg athöfn og yndislegt fólk sem bara ljómaði af gleði yfir barninu sínu og ríkisborgararéttinum. Oft finnst mér eins og ég sé til á alveg sérstakan hátt þegar ég skíri börn. Það er eins og lífið, tilveran og þetta stórkostlega lífsjafnvægi sé svo fullkomið. Þegar hönd mín fyllist með jatni og ég eys vatninu yfir skírnarþegann líður mér eins og "blessuðum". Áhyggjur hverfa og mér finnst ég vera "notaður" - verkfæri andans, verkfæri hinnar heilögu framvindu. Að sjá barnið helgast fyrir orð, efni og anda og fær líf sitt helgað hinu besta sem til er.
Hér er ég fyrir athöfnina. Foreldrarnir báðu sérstaklega að ég hefði íslensku prestklæðin svo ég varð við því. Jæja, hérna er mynd sem tekin var eftir athöfnina :)
18.5.2008 | 05:57
Ildefonso Falcones með morgunkaffinu
Við höfum setið nú, ég og "Fonsó" og dreygt í okkur 2 bolla af kaffi og borðað smá morgunmat. Ég vaknaði klukkan 07:00 (05:00 ísl. tíma) og fór framúr, dáðist af uppþvottavélinni og hellti upp á kaffi. Hafði sótt í gærkvöldi nýju bókina sem ég var að fjárfesta í (920 ÍKR) "Katedralen vid havet" eftir Ildefonso Falcones. Ég var svo spenntur að byrja að ég stóðst ekki mátið og er búinn að lesa í 30 mín yfir kaffibollanum sem fyrr segir. Bókin lofar góðu, einar 666 síður en því miður á andstyggilegum pappír. Ég lifi það nú af. Nútíma fjöldaframleiðsla gerir það að verkum að bækurnar hér verða ódýrari, en að sama skapi í lélegra bandi, á lélegri pappír og ekki eins góðar í hönd.
Well, líklega best að fara undirbúa sig fyrir daginn. Skrifa skírnarvottorð og koma við hjá katólsku bókabúðinni og kaupa skírnarkerti (þau eru svo FLOTT). Handgerð og það sést. Vaxið ylmar og þau brenna hægt og vel + helmingi ódýrari en kertin hjá lúterskum. :) Líklega tek ég Ildefonso með mér í vinnuna, sýni honum City og les hann svolítið í auðum stundum í dag. Skrýtið að þegar maður verður eldri, finnst manni það vera mikilvægara að aðhafast stanslaust. Ég fíla ekki bara að gera ekkert. Mér finnst það svo hræðileg sóum á tíma. Samt er ég svo þreyttur stundum að ég dorma við t.d. tölvuna hérna eða sit framan við sjómið og blunda lítið án þess eiginlega að missa nokkuð af sjónvarpsefninu. Jæja, best að fara hreyfa sig, stökkva í sturtu og fara í nýstraujuðu skyrtuna (strauaði 6 skyrtur meðan Miss Marple leysti gátuna um eitruðu bréfin).
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2008 | 18:55
Laugardagur... og ég bíð eftir Miss Marple
Dagurinn í dag hefur verið svolítið öðruvísi en flestir laugardagar. Ég var í prófi í kúrsinum mínum um menningar-, lista og íbúasögu Pompeyjar. Prófið var salpróf. Langt síðan ég hef verið í 6 tíma skriflegu prófi. Puttinn á mér var kominn með far eftir pennan og ég var að deyja úr þurrki, þar sem ég hafði gleymt að hugsa út í að taka með mér drykk. Prófið gekk vel. Ég sat í 6 tíma og fór ekkert út. Var hreint og beint að deyja í kroppinum eftir þessa maraþonsetu. Þetta var mikil greiningarvinna og gagnaðist listfræðin vel þar. Erfiðasti hlutinn, notkun greiningarlykla á hina fjóra málningarstílana og greining byggingarefnis og aðferða við notkun þess... Erfitt að gera þetta á blaði. En þetta tókst stóráfallalaust.
Eftir prófið hélt ég heim á leið, en kom við hjá Georgi og Hrönn góðum grönnum og löndum mínum hér í húsinu. Hrönn hafði rifið sig framúr árla morguns og bakað köku. Kökunni var svo skolað niður með góðu sterku kaffi. Just like home! Ég var kvaddur með uppþvottavél sem er að malla og sulla framm í eldhúsi núna. Gott til þess að hugsa að uppvaskið þurfi ekki að vera stressþáttur þegar maður getur verið án þess. :) TAKK!
Annars er Mikki að vinna, félagarnir úti að djamma, ég búinn að fara í göngutúr, sækja bók til kunningja míns og er að fara poppa. Jamm, nú verður það popp og kók kvöld yfir Miss Marple sem ætlar víst skv. sjónvarpsvísinum að svo óvænt leysa morðgátu. Einhver er að senda fólki baneitruð sendibréf og Marple ætlar að vera fljót til og "svara" bréfunum :) Sem minnir mig á að skrifa bréf í kvöld. Á morgun er ég svo að vinna í kirkjunni.
Ég á að skíra stúlkubarn á morgun í kirkjunni. Það verður gaman. Búinn að tala við foreldrana tvisvar og kom það upp á föstudaginn að mamman væri óskírð. Hún spurði hvort hún mætti skírast á eftir dóttur sinni. Svo þetta verður tvöföld skírn. Ennþá skemmtilegra. Kveiki þá lifandi ljós hér í kvöld fyrir þeim og deginum á morgun eins og ég geri þegar ég á að skíra eða jarða.
Jæja, best að fara poppa og leita að handbókinni minni. :)
17.5.2008 | 06:45
Hústaka? Hvaða rugl er nú það?
Halló! Þetta er ekki Danmörk þar sem hústökumenn eru þjóðfélagsleg stærð og vandamál. Á Íslandi gildir að rífa kofanna sem þetta fólk er að safnast í skjóli myrkurs í og senda svo eigendum reikninginn. Fólk sem á húseignir í Reykjavík og gerir ekkert í því að halda þessum húsum sínum mannheldum á ekki skilið að eiga þau. Þannig er bara það. Ef þú ert svona svakalega ríkur að geta látið standa autt hús hér og þar, ættiru að geta lokað því kyrfilega eða staðið fyrir því að það sé rifið/fjarlægt.
Ef þú ert hinsvegar svo fátækur að geta ekkert aðhafst eða að baki liggja "vandamál" sem gera það að verkum að samfélagið þarf að taka í taumana (borgaryfirvöld, lögregla og heilbrigðisyfirvöld) verður þú bara að taka því sem gert verður þegjandi og hljóðalaust. Þú sem eigandi svona húss, ert ekki ábyrgðarlaus vegna aumingjaskapar. Enginn er ábyrgðarlaus. Sé þér rétt hjálparhönd frá yfirvöldum, eða hvað þá boðið fjármunir fyrir kofann, segir þú að sjálfsögðu "Já takk" og "takk svo rosalega fyrir aðstoðina. Ég er svo þakklátur".
Þannig er það nú. Óþarfi að vera búa til heilsu- og öryggishættur, nóg er af þeim. Held að ég segi bara "Amen, eftir efninu". :)
![]() |
Enn hústaka í miðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.5.2008 | 05:58
Hræðsla, hræðsla, hræðsla
Það er klárt að Björn Bjarnason er ekki einn um að vera smeykur við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á stjórnarskrá Íslands. Allar þjóðaratkvæagreiðslur eru af hinu illa að mati stjórnmálamanna. Þeir greyin líklegast halda að í því að halda þjóðaratkvlðagreiðslu sé lýst vantrausti á þá sem kjörna fulltrúa þjóðar og lands. Því fer þó víðs fjarri. Ég tel að það að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu af og til t.d. um stærri málefni kannski á nokkurra ára fresti, sé af hinu góða. Hleypi fersku lofti í þjóðmálin, geri fólk samtímis meðvitað og áhugasamt um stjórnmál. Áhugasemi fólksins myndi svo gera það sem allir vilja: Hafa meðvitað og lifandi "demókratí".
Að vilja ekki þjóðaratkvæðagreiðslu er bara merki um hræðslu. Hræðslu við að eitthvað óhreint komin undan steinunum þegar við förum að velta fyrir okkur og stúdera stjórnmálin og kynna okkur í þaula athafnir stjórnmálamanna.
![]() |
Á móti þjóðaratkvæðagreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 10:06
Goda gärningar och levande tro
Mina bröder, vad hjälper det om någon säger sig ha tro men inte har gärningar? Inte kan väl tron rädda honom? Om en broder eller syster är utan kläder och saknar mat för dagen, vad hjälper det då om någon av er säger: "Gå i frid, håll er varma och ät er mätta", men inte ger dem vad kroppen behöver? Så är det också med tron: I sig själv, utan gärningar, är den död. (Jakobsbrevet 2:14-17)
Att beskriva Guds kärlek är lika svårt och att försöka beskriva den heliga anden med ord. Det är lika hopplöst att försöka att beskriva en behaglig doft för en annan person eller sin erfarenhet efter någon betydelsefull händelse. Det är lika svårt och för en nybliven moder att beskriva förlossning för en man som inte har förutsättningar för att kunna förstå. Jag undrar ofta om folk förstår vad ordet mässa betyder. Det säkert finns lika många förklaringar och vi är många här idag, om inte fler. Min förståelse för detta ord fick en ny dimension när jag besökte en kyrka för några år sedan. Mässan hade redan pågått ett tag och de sista nattvardsgästerna höll på att gå tillbaka till sina platser i kyrkan. Två präster hjälptes åt med mässan, en gammal man och en yngre, en som säkert hade inte varit präst så länge. Den gamle mannen fick uppenbarligen styra och handleda den unga prästen genom att viska, peka och ge blickar hit och dit. Då hände något som har knytning till dagens text från Jakobsbrevet.
Den gamla prästen vände sig mot församlingen läste välsignelsen på latin. När han var klar gjorde han korstecknet, klappade ihop sina händer en gång och sade ite, missa est som betyder; gå, det är skickat. Efter mässan kunde jag inte annat än gå till den gamla prästen och fråga varför han klappade samman händerna efter mässan och vilken betydelse orden ite, missa est hade för honom. Den unge prästen fick översätta från spanskan, men förklaringen var fantastisk tyckte jag. Kristus, i vars plats jag står här idag, delade ut brödet till dessa som var med honom på skärtorsdagen. Han delade inte bröd och vin för att han var hungrig, utan för han ville leva bland lärjungarna på ett särskilt sätt, skapa gemenskap. De som kom till kyrkan idag upplevde Guds närvaro på ett helt särskilt sätt, en gemenskap i Kristus. Men de som inte kom, som hade förhinder av något slag, till dem skall de som var närvarande gå till och sprida den kärlek de hörde om och upplevde här idag. Därför, som herden, klappar jag samman händerna och skickar min flock ut att göra ljusets arbete medan dagen ger. Så många var gamla prästens förklaringsord.
Med orden gå, det är skickat menas att det levande ordet skall utskickas, och bli till goda gärningar som inspireras av den villkorslösa kärleken som vi har bevittnat här idag och vid alla gudstjänster i all tid. Slutade mässan endast på välsignelsen skulle det ändå saknas så mycket. Guds ord, hans verksamhet skall bredas ut. Om orden inte fick gestaltas i någon god gärning stympas tron. Det finns alltid någon som är ensam, någon fattig, någon som behöver din närvaro, någon som behöver känna trygghet, behöver ett lyssnande öra, uppmuntrande ord ett leende. Den villkorslösa kärleken tar inget från oss, men kan ge oss så oerhört mycket. Den heliga sanna glädjen att kunna hjälpa, finnas till för andra och be för andra, det är att vara kristen. Många vill inte gå till kyrkan, säger att de har sin Gud och sin tro för sig själv. Det är rätt, man behöver inte komma till kyrkan för att räknas som kristen, så länge man lever sin tro och låter den blomstra och genomsyra sitt liv. Då kan den, genom goda gärningar, ge riklig skörd. Självisk tro, som gör att en upphöjer sig över andra och fyller individen av högmod, är död tro. Men är den uppväckt av Guds heliga ande, av Guds väsen; den villkorslösa kärleken, då spelar ett kyrkobesök mindre roll.
Hugleiðing mín flutt við "helande messu" í St. Jakobskirkjunni í Stockholm 15.05.2008.
Trúmál og siðferði | Breytt 16.5.2008 kl. 06:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2008 | 09:16
Sumarið komið í Stokkhólmi
Reyndar er búið að vera kallt þrjá síðustu daga. Eftir hitabylgju í 3 daga með um +25°C og sól, hjakkaðist hitastigið jafnt og þétt niður í þær +12°C sem verma okkur hér í dag, undir skýjuðum himni og hægum andvara. Japönsku kirsuberjatrén hafa fellt blómin og epplatrén og perutrén hafa tekið við með hvítum og beikum blómum.
Ég sit hér heima núna og er að velta því fyrir mér hvernig sumarið verði. Hvernig verður sumarið veðurfarslega, fjárhagslega, atvinnulega og skólalega. Ég er enn að bíða eftir svari frá einum skóla sem ég hef aótt um nám við nú í haust. Ég verð reyndar áfram í meistaranáminu í Uppsala háskóla, en þetta á bara að vera meira svona "hobby". Þetta snýst um magisternám í guðfræði. En ég er ekki búinn að fá neitt svar ennþá, hvort ég hafi komist inn. Það voru víst fleira hundrað umsækjendur. En það þýðir ekki annað en að vera vongóður. Þetta gæti verið svo skemmtilegt nám.
Um þessar mundir er ég að leita að bók sem ég ætla mér að halda áfram að þýða í sumar. Þetta er gömul bók sem mér þykir ósköp vænt um. Hún er fágæti en samt ekki ómöglegt að fá lánaða, bara þarf að fara í millisafnaleiðangur. :) Bókina langar mig að þýða í lausum stundum í sumar. Ég á helminginn ljósritaðan, en vantar afganginn. Svo núna er ég að snúast í því að redda mér ljósritum og / eða bara orginal (en sú bókin ku vera afskaplega dýr). Fyrir mörgun árum lukkaðist ég þýða um það bil 1/4 af bókinni. Sú vinna glataðist 2004, en þá er bara byrja upp á nýtt og gera enn betur.
Á laugardag (þjóðhátíðardag Noregs) er ég að fara í próf í Pompeji-kúrsinum mínum. Fornleifafræðin er svo skemmtileg. Kannski maður hefði átt að skella sér í hana bara og gerast fornleifafræðingur? Nja, einhversstaðar verður maður að hætta þessari akademísku göngu sinni innan skólakerfisins og byrja nota eitthvað af uppsafnaðri þekkingunni. :) Ég bara elska að læra. Það er svo gaman. Lærdómur er lífið, lífið er lærdómur.
14.5.2008 | 06:13
Lessing leið
Doris Lessing fékk nóbelsverðlaunin í bókmenntum nú í desember síðastliðnum. Lengi ver vitað að gengið hafði verið hjá henni og oft til að geta deilt út verðlaununum á það sem Svíarnir kalla "politiskt korrekt sätt" eða samkvæmt öllum reglum um jafnræði og jafna dreifingu. Jæja, núna er Doris bitur heima í sínum slitna sófa. Blekið hefur gengið til þurrðar í pennanum og andagiftin hefur yfirgefið hana. Hún segir það ekki með beinum orðum, en telur það í raun vera "fjandans óheppni" (eins og fréttakonan nefnir það) að hafa fengið svona seint þessi, af flestum, eftirsóttu verðlaun. Gamla 88 ára Doris Lessing vill meina að öll fjölmiðlaumfjöllunin kringum verðlaunin hafi orðið til þess að geta hennar til að skrifa hafi horfið.
Líklega verður það bara gin í tónik sem fyllir hönd hennar í framtíðinni, í stað pennans.
http://www.dn.se/DNet/jsp/polopoly.jsp?d=2374&a=768835
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)