24.2.2009 | 20:29
"Og þá var glatt í höllinni..."
Í dag gaf Carl XVI Gústaf Svíakonungur samþykki sitt fyrir trúlofun Viktoríu krónprinsessu og Daníels frá Ockelbo. Ríkisráðið/ríkisstjórnin samþykkti ráðahaginn sömuleiðis. Nú er þetta klappað og klárt. Brúðkaup verður semsagt sumarið 2010. Staður og stund verða ekki ákveðin fyrr en er nær dregur.
Victoria krónprinsessa og Daniel Westling (verðandi prins Daniel, hertogi af Västergötland)
Svíþjóð | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 09:33
Réttlátt krafa Steingríms og krossferð þjóðarinnar
Eftir að hafa heyrt fréttir af eign og kaupum íslenskra "fjármálamanna" á milljarðakróna íbúðum á bestu stöðum í Lundúnum, New York, skemmtisnekkjum, verslunum, uppkaupum á heilu sumarbústaðalöndunum, eyjum og laxveiðiám hér og þar, hér heima og erlendis, vakna vissar grunsemdir um að ekki hafi nú allt farið rétt fram. Milljarðakróna íbúð í New York og Lundúnum? Er þetta ekki einhver bilun?
Ég á litla íbúð í austurbænum í Reykjavík. Hún var sennilega um 16 milljóna króna virði fyrir um ári síðan. Ég á bara lítinn hluta í henni á móti íbúðalánasjóði og svo lífeyrissjóðinum mínum. Það mun taka mig allt lífið, gefið að ég verði sæmilega gamall, að borga íbúðina þannig að ég verði skuldlaus. Rétt eins og staðan er núna, sé ég reyndar fram á að mér muni vart endast ævin til að borga upp íbúðina. Á meðan kaupa í flottræfilshætti sínum aðilar úr "fjármálaheimi Íslands" milljarðakróna íbúðir. Og borga á borðið.
Ég er ekki súr og ekki bitur, langt í frá. En eftir að hafa sagt það svo oft áður, og löngu fyrir efnahagshrunið, að þetta stæðist ekki, stæðist ekki helstu viðurkennd lögmál - svíður að þetta fólk skuli komast upp með svona óheilbrigða fjármálastefnu sem kostað hefur þjóðina æruna.
Ég styð Steingrím Sigfússon heilshugar í aðgerðum hans. Öflum upplýsinga um hvað varð af auð Íslendinga og krefjumst endurgreiðslu og nauðungarsölu á verðmætum auðmanna. Hann er okkar Sigurður Fáfnisbani. Gullinu verðum við að ná undan drekanum Fáfni (auðmönnunum sem leika okkur svo hart).
![]() |
Skattaskjól skoðuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2009 | 18:53
Kistill Pandóru
Af hægagangi þeim sem skyndilega virðist hafa heltekið Alþingi, þar sem áform voru um að setja frumvarp til laga um Seðlabanka á dagskrá, virðist sem ljósskímu hafi verið hleypt í "skjalaskápinn". Nú virðist sem allir óttist að opna kistil Pandóru.
Þetta eru ljótir tímar þar sem heljargreip er haldið um sannfæringu, trúmennsku, lýðræði, sannleika og drengskap!
*** Kistill Pandóru ***
![]() |
Lausn ekki fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2009 | 15:47
John Edgar Hoover
Í bloggi sínu lætur Haraldur Bjarnason að því leiða að framsóknarmenn óttist hugsanlegar uppljóstranir Davíðs Oddssonar, eins bankastjóra Seðlabanka Íslands, og vilji því fresta vinnslu frumvarps til laga um Seðlabankann. Það er sami aumingjaskapurinn hjá Framsóknarflokki. Kannski sátu þeir of lengi við fótaskemil Davíðs í forsætisráðherratíð hans, hver veit. Kannski voru bitlingarnir of margir til að hægt væri að fela þá með góðu móti og þetta veit Davíð kannski.
J E Hoover (mynd) D Oddson (mynd)
Ég minnist þess sem sagt var um einn fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI, einn John Edgar Hoover. Um hann var sagt að hann væri sá Bandaríkjamaður sem ENGINN vildi atast í eða vekja illsku hjá, því hann ætti í sínum fórum leyniupplýsingar um alla helstu ráðamenn ríkisins, fyrrum ráðamenn og verðandi ráðamenn - og ekki nóg með það, heldur var í upplýsingasafni hans fjöldinn allur af útlendum ráðamönnum á öllum sviðum. John Edgar Hoover var semsagt "ósnertanlegur". Hann vissi allt, ALLT um fjármál, stjórnarathafnir, átti meðal annars gott safn óbirtra ljósmynda og var þekkingarbrunnur um allt það sem ekki var almennt vitað. Hann mun ekki hafa hikað við að opna skjalaskápa sína þegar einhver tróð honum um tær.
Mér finnst þetta með "upplýsingarnar hans Davíðs" bera vissan keim af skjalaskápshótunum téðs forstjóra FBI, ef marka má orð Haraldar bloggara Bjarnasonar. Er þessu svo illa komið hjá okkur á Íslandi að þetta geti verið satt? Að fyrrverandi stjórnmálamenn sem ekki geta endanlega slitið sig frá fyrri störfum haldi "skjalaskáp" heima? Varla. Eða...
_____________
Hér er bloggið hans Haraldar Bjarnasonar: http://hallibjarna.blog.is/blog/hallibjarna/entry/811412/
![]() |
Skynsamlegt að bíða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.8.2009 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2009 | 16:51
Afleiðingarnar efnahagshrunsins - í Svíþjóð
Í gær komu vondu fréttirnar. SAAB (Svenska automobile AB) fyrirtækið er farið á hausinn. Ríkisvaldið mun ekki koma því til aðstoðar. Þó hefur það fengið greiðslustöðvun. Hefur SAAB fengið tækifæri að sýna fram á hvort fyrirtækið eigi framtíðarvon, gengum endurskipulagningu eða/og endurfjármögnun. Bara flestir halda að sér höndum og vilja ekki kasta peningunum sínum út um gluggann. "SAAB getur ekki greitt neitt af skuldum sínum" segir Nils-Olof Ollevik fréttamaður Svenska Dagbladet " fyrirtækið er gjaldþrota, því er öllu lokið, endanlega, fyrir alla tíð". Maud Olofsson atvinnumálaráðherra Svía telur ekki vænlegt að reyna bjarga SAAB. Fyrirtækið hafi náð botninum í öllum skilningi og aðstæður í heiminum lúti bara að einu: Endalokunum er náð hjá þessu gamla gróna sænskfædda fyrirtæki. Lán frá sænska ríkinu eða frá ESB er ekki kostur í stöðunni, segir Maud. Eftir að GM (General Motors) keypi SAAB með gróðavon í huga fyrir nokkrum árum. En síðan hefur bilaiðnaðurinn verið á hægri niðurleið og hagkerfið sömuleiðis. GM losaði sig við SAAB og ýtti því frá sér núna fyrir skömmu, í von um að bjarga sjálfu sér.
Allt þetta verður svo til að snjóboltaáhrifin fara láta verða vart við sig. Eftir að heildsalarnir fara á hausinn, fara smávörusalarnir sömuleiðis að kveinka sér og þeir sem aðeins hafa þjónustað SAAB munu fara sömu leið. Fjöldauppsagnir eru daglegur raunveruleiki í Svíþjóð og út um allan heim.
SvD: Laugard. 21. feb. 2009.
![]() |
Evrópuríki funda um kreppuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svíþjóð | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2009 | 11:10
Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér...
Orð Lúkasarguðspjalls "'Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér', en sérð þá eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns." [Lúk. 6:42]
Fréttir um illsku stjórnvalda í Íran eru næstum því daglegt brauð í fréttaflutningi fréttastofa sem hafa eitthvað með Vesturlönd að gera. Mikið er til í því sem þar er ritað og ógnarverkin ljót og ill. Mannvonskunni virðast stundum engin takmörk sett og sjaldan eða aldrei vantar á hugmyndaflug illvirkjanna þegar kemur að nýjum aðferðum til pyndinga.
Allt frá því er Kóraninn var fullskrifaður og færður í eina bók, lesinn og ekki síst túlkaður hafa verið framinn illvirki og dómsmorð í nafni trúarinnar. Íslam er ekki eina trúarhreyfingin þar sem meðal trúaðra tíðkast aftökur í nafni trúarinnar eða túlkana á trúartextum. Kristin miðaldakirkja var ekki síður dugleg við efnið. Galdrabrennur, dómsmorð - að ógleymdum hinum alræmda Heilaga Rannsóknarrétti. Í Bandaríkjunum voru ekki síður ofsóknir og þá af reformertum nýbúum (landnemum) mót frumbyggjum og síðan mót sínum eigin.
_________________
Ég vil nefna að á síðasta ári voru 37 manns teknir af lífi skv. dómsniðurstöðu í Bandaríska dómskerfinu. Flestir höfðu beðið á dauðadeildin svokölluðu í von og ótta um náðun, jafnvel á síðustu stundu. Þar af voru 36 teknir af lífi með "dauðasprautu" og 1 settur í rafmagnsstólinn. Frá upphafi (frá þeim tíma þá dauðarefsingar voru leyfðar hafa í Bandaríkjunum:
155 verið teknir af lífi í rafmagnsstólnum, 2 verið skotnir af aftökusveit, 11 hafa verið settir í gasklefa og 3 hengdir og 965 fengið "dauðasprautuna". Í ár hafa þegar 14 verið teknir af lífi í Bandaríkjunum, flestir eða 8 í Texas.
Orð Lúkasarguðspjalls "'Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér', en sérð þá eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns." [Lúk. 6:42]
![]() |
46 aftökur í Íran á árinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.2.2009 | 21:00
Landið eitt kjördæmi - fækkun þingmanna
Íslendingar eru ríflega 300 000 talsins. Nema beitt sé beinu lýðræði í kosningum verða landsmenn að treysta á fulltrúa sína, þingmennina, til að ráða fyrir sínum málum. Þetta kallast fulltrúalýðræði.
Landinu hefur löngum verið skipt upp í kjördæmi þar sem fjöldi atkvæða bak við kjördæmakjörna þingmenn hefur verið mismunandi. Í þessu hefur falist öfugsnúin byggðastefna. Mín tillaga er sú að að sameina ber allt landið í eitt kjördæmi. Gefa ber kost á persónukosningu. Um leið ber að fækka þingmönnum á Alþingi úr 63 í 50 eða um 13 þingmenn. Nú er unnið að því að fækka fastanefndum þingsins. Ber um leið að fækka þingmönnum. Koma ber í veg fyrir að þingmenn sitji sem ráðherrar, heldur fái starfsfrið til að sinna þingmennskunni einni og þá þeirri nefndasetu sem þörf er á. Sérhæfir einstaklingar séu síðan kallaðir til ráðherrastarfa. Þeir hafi ekki kosningarrétt á Alþingi.
![]() |
Frumvarp um fækkun nefnda komið fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.2.2009 | 13:59
Hættur í Golfstraumi
Ég vona að Íslendingar láti heyra frá sér eftir þetta slys. Tveir þungvopnaðir kjarnorkukafbátar í miðjum Golfstrauminum ná að skella saman og þar með ógna ekki bara sjálfum sér og 210 manna áhöfn, heldur öllu lífi í norðurhöfum. Það eru ekki bara gömlu kjarnorkuverin í Dounreay og Sellafield sem við þurfum að hafa áhyggjur af, heldur litlu kjarnorkuverin sem leynast í mögum þessara kafbáta og stærri herskipa á yfirborði úthafanna.
Ég vona að Íslendingar láti í ljós áhyggjur sínar yfir mögulegum áhrifum stríðsleikja meðlimslanda ESB í nútíð og framtíð.
![]() |
Kjarnorkukafbátar rákust saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.2.2009 | 19:59
Nekt - eftir kúnstarinnar reglum
Fyrir fjórum árum sat ég námskeið um list endurreisnarinnar við Stokkhólmsháskóla. Þetta var sérlega skemmtilegt og fróðlegt námskeið sem hafði fjöldann allan af broslegum nálgunum að listinni, fegurðarmati þess tíma sem var til umfjöllunar og síðan en ekki síst sýn og kröfu kirkjunnar sem eins helsta styrkveitanda og vinnuveitanda i listabransanum um frómheit (þegar það átti við). Spurningin um nekt og fegurð frjálslega vaxinna kvenna, nefstórra harðsoðinna manna eða fjarska metrósexuella einstaklinga, þar sem kyngreining myndefnisins var med eindæmum erfið.
- Peter Paul Rubens (ca 1639) "Þrjár hefðardömur"
Skemmtileg umræða um kynfæri karla og kvenna var meginþema eins fyrirlestrarins - eða réttara sagt aðfara frómra einstaklinga í að mála yfir, hylja og eða hreint og beint skrapa burt kynfæri listasögunnar í endurreisnarlistinni. Greinilega sáu ekki allir listina og hið fagurfræðilega, heldur var hugur þeirra heltekinn af saurugum þönkum og því varð að hylja. Þegar Michaelangelo hafði málað stærsta hluta þaks og gaflveggs Sixtínsku kapellunnar í Páfagarði, fannst mörgum nektin vera yfirdrifin, svo hann fékk víða skella fáránlegum dulum hér - og aðallega þar. Enginn sagði neitt um yfirmáta vöðvastæltu konurnar sem höfðu brjóstkassa eins og menn á sterum og framhandleggi á stærð við lærisvöðva á stæltum karlmanni, eða voru hárlausar með öllu "þarna niðri", nei öllum var sama um það.
Michaelangelo Buenorotti (1501-1504) "Davíð"
Fyrirlesarinn, gestaprófessor frá meginlandi Evrópu, benti okkur á margt áhugavert annað sem birtist við listsköpun endurreisnarinnar. Hún gaf dæmi t.d. um hina frægu styttu Michaelangelos Davíð (sem stendur á Ráðhústorginu framan við Palazzo Vecchio) í Flórens. Davíð þar sem hann stendur stoltur eftir að hafa slöngvað risann Goliat er, eins og hún sagði ekki umskorinn. Vissulega var Davíð ein aðalhetja Gyðinga og Gyðingur í "húð" og hár; en ekki forhúð. Hann var umskorinn. Í því meðal annars lá sáttmáli Guðs og Ísraelsþjóðar Gamla testamentisins, að öll sveinbörn skyldu umskerast á áttunda degi. Á styttu Michaelangelos er Davíð ekki umskorinn. Var þetta fúsk hjá Michaelangelo eða með ráðum gert? Hver voru fegurðarídeölin? Það sem er ennþá fyndnara er: Að á þakmálverki Michaelangelos er Adam ( í sköpunarmyndinni í þaki Sixtínsku kapellunnar) með nafla. Og þá getur maður spurt sig: Hvers vegna í ósköpunum er hann með nafla?
Michaelangelo Buenorotti (ca 1509) "Sköpun Adams"
14.2.2009 | 20:33
Um hjónavígslurétt kirkjunnar
Stórmerkur tímamótafundur var haldinn á biskupafundi Sænsku kirkjunnar nú á dögunum. Duglegir guðfræðingar og réttsýnir hirðar sýndu að kirkjan í Svíþjóð sækir fram inn í 21. öldina full af lífi og áræðni, en umfram allt sem lifandi þátttakandi í lífi því sem henni var ætlaður staður í; í framvarðasveit hinna góðu verka. Kirkjan viðurkenndi líka að henni eru sett ýmis mörk af ýmsum toga.
Allbeinskeyttar umræður höfðu átt sér stað á téðum biskupafundi þar sem allir 13 sitjandi biskupar Sænsku kirkjunnar sátu ásamt erkibiskupi. Eftir fundinn ákváðu 9 af 13 biskupum kirkjunnar að óska eftir því við Riksdagen (sænska þingið) og við Kyrkomötet (Kirkjuþing Sænsku kirkjunnar) að gengið verði við því að hjónavígsluréttur sá sem kirkjan hafi verði frá henni tekinn. Þetta sé farsælast og til þess fallið að prestar þurfi ekki að "neyðast" til að gefa saman samkynhneigð pör - gegn sannfæringu sinni. Þannig verði allir sænskir borgara og þeir sem vilja láta gefa sig saman í "hjónaband" eða "vígða sambúð" að fara fyrst til borgaralegra yfirvalda, skrá sig þar og síðan - ef vilji er fyrir hendi að finna sér kirkju og prest þar sem þau/þær/þeir geti svo "gengið í það heilaga" frammi fyrir augliti Guðs.
Þetta er sögulegt því í þessari beiðni 9 biskupa kirkjunnar er farið fram á staðfestingu þess sem í raun er frá upphafi aðeins "júrdídísk gjörning" þ.e.a.s. lögformlegur gjörningur. Hjónabandið er ekki heilög stofnun nema í augum þeirra sem vilja fá blessun kirkjunnar. Þeir sem kjósa að "gifta sig" borgaralega þurfa það með ekki að taka þátt í þeirri hugmyndafræði sem kirkjuleg siðfræði og guðfræði umvefur sína athöfn.
Frumkvæði biskupanna níu og tillaga þeirra hefur gersamlega keyrt þvert á kirkjuþingið sænska og afvopnað það. Kirkjuþingið hefur með máttleysi og seinagangi sýnt að það hefur ekki burði til að bregðast við knýjandi málum líðandi stundar. Kirkjan tapar fólki í stórum stíl. Fólki finnst kirkjan vera máttlaus og ekki hafa skýra stefnu. Að 9 biskupar á biskupafundinum tækju af skarið og segðu segir mikið um stöðu kirkjunnar og þjóðkirkna nágrannalandanna. Sinnuleysi, hægagangur, þekkingarleysi á hreyfingu samfélagsins og þörf fólks í æ afhelgaðra samfélagi er að gera út af við kirkjur norðurlanda. Útspil biskupa Sænsku kirkjunnar var því viturlegt og tímabært. Viðbrögð kirkjunnar fólks og þeirra sem hafa sagt sig úr kirkjunni hafa verið almennt jákvæði.
Hjónabandið er EKKI kirkjuleg stofnum. Fjölskyldan er heldur ekki kirkjuleg stofnun. Kirkjan og trúin mælir með stofnun hjónabands og þess ramma sem hjónabandið setur sambandi tveggja einstaklinga og síðar í mörgum tilfellum ef börn fara að koma. Það er æskilegt að börn njóti nærveru foreldra. Af þeim læra þau og eiga að njóta þess besta sem einstaklingar eiga og vilja gefa barni/börnum sínum. Það er því eðlilegt að kirkjan vilji helga og biðja fyrir bandi tveggja einstaklinga. Þegar kirkjan getur ekki einast um allar fjölskyldugerðir er ljóst að kirkjan styður misrétti og sundrungu. Þá er best að halda að sér höndum og gefa frá sér sjálftekið vald. Kirkjan verður þar með ekki eins tengd ríkisvaldinu (sem sá aðili sem útfærir "embættisverk" fyrir ríkið). Aukið frelsi kirkjunnar er því til góðs fyrir alla viðkomandi. Líka þá sem ekki leita til hennar.
Eftir það sem nefnt hefur verið spunnust þar saman í meirihlutaákvörðun 9 biskupa Á stórmerkum tímamótafundi biskupa Sænsku kirkjunnar ákváðu 9 af 13 biskupum
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.2.2009 | 21:34
Óheppileg orð í hæsta máta
Eftir harða stefnu ESB mót Íslandi þegar landið þurfti hvað bráðast og nauðsynlegast á fjárhagsaðstoð að halda og sjálfur skollaleikur Gordons ráðherra í Bretlandi Brown stóð sem hæst - vill nýskipaður ráðherra viðskiptamála halla sér að ESB. Þetta er er beinlínis niðrandi fyrir okkar þjóðarstolt, eða það litla sem eftir er af því.
Hvernig dettur manngreyinu svona þvættingur í hug og á þessum tíma? Er hann kominn með rugluna líka? Ég hef afar slæma tilfinningu fyrir EURO og frábið mér allar þreifingar í átt mót innleiðingu slíkrar mynteiningar.
Ég styð allar tillögur sem snúa að því að efla efnahagslegt samstarf við þá þjóð sem stendur okkur næst; Norðmenn. Að taka upp EURO væri að ganga frá vinaborði og kasta sér í ógreinilegan og illa lyktandi graut ósamstæðra og óstöðuga og vaklandi fjölþjóðaríkis ESB. Slíkt má ekki gerast.
![]() |
Rökrétt að taka upp evru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.2.2009 | 18:21
Seðlabanki Svíþjóðar lækkar vexti í sögulegt 1%
Á fréttamannafundi sem haldinn var í morgun var tilkynnti seðlabankastjórinn Stefan Ingves um sögulega lækkun viðmiðunarvaxtaprósentu bankans í 1%. Sagði hann þetta gert til að mæta lækkun verðbólgu og alvarlegu ástandi efnahagslífsins. Útflutningur hefur hríðfallið, minni kaupgeta fólks hér (í Svíþjóð) og eftirspurn eftir sænskum vörum hefur minnkað erlendis í frá.
Með aðgerðinni er markmið Sænska seðlabankans að minnka áhrif verðbólgunnar og jafnframt halda henni í 2%. Stefan Ingves sagði að líklega myndi atvinnuleysið aukast og komast í 9% af vinnubærum mannafla, en síðan eftir 2011 rétti landið út kútnum. Það væri bara að halda út.
Sjá fréttina: http://www.dn.se/DNet/jsp/polopoly.jsp?d=3130&a=882712
![]() |
Peningamálastefnu ekki breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2009 | 12:30
Jarðafara(ó)siðir
Í sjónvarpsþætti sænska ríkissjónvarpsins SVT sem gengur undir nafninu Uppdrag granskning hefur sannarlega verið svipt hulunni af svikum og ekki minnst ógeðfeldum starfsháttum kirkjugarðsstarfsmanna hér í landi. Að því síðar
Um nokkurt skeið hefur rannsókn á vegum sænskra fjölmiðla á útfarasiðum Svía. Kirkjulegar athafnir hafa verið rannsakaðar, aftur rannsakaðar og svo enn á ný. Ekkert hefur þar komið fram sem Svíum mislíkar, vissulega skoðanirnar margar um tónlist, lengt, ræðu prests og svo framvegins. Almenn ánægja er með þjónustu þá sem fólk fær þegar um kirkjulegar og borgaralegar útfararathafnir er að ræða.
En þegar sjónvarpsfólk og rannsóknablaðamenn fóru að "grafa" dýpra og ganga á fólk, fóru að koma í ljós óhuggulegir hlutir. Allt í einu var eins og stungið hefði verið á kýli og gröfturinn vall út. Reiði fólks varð hamslaus og fréttamenn Uppdrag granskning fréttaþáttarins tóku að kynna sér málið enn ýtarlegar.
Fram kom að lengi hefur sú venja verið til staðar hjá kirkjugarayfirvöldum hér víða í Svíþjóð að eftir útfararathöfn er lokið og kistan hefur verið látin síga í gröfina að þjappað er ofan á kistulokið með lítilli gröfu. Með þessu er kistulokið brotið og hliðar kistunnar leggjast saman. Eftir þessar aðfarir er kistan oft svo útleikin að sjá má sundurkraminn líkamann sem í kistunni liggur og jafnvel brotna hauskúpuna. Nóg um slíkar lýsingar. Samkvæmt upplýsingum kirkjugarðsstarfsmanna er þetta gert í því augnamiði að spara seinnitíma vinnu. Sé þetta gert þarf ekki, skv. kirkjugarðsstarfsmönnum, að fylla á með mold síðar og sparar maður þar tíma og starfsfólk.
Svona aðfarir eru að mínu viti ógeðfeldar í hæsta lagi. Vona ég svo sannarlega að svona vinnubrögð þekkist ekki á Íslandi. En rétt væri að kanna það samt.
Hér er vísun í sjónvarpsþáttinn Uppdrag granskning á SVT:
http://svt.se/svt/jsp/Crosslink.jsp?d=93154&a=1135916&lid=puff_1340808&lpos=extra_0
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.2.2009 | 07:13
Nýr íslenskur doktor
Ég er svo stoltur af landa mínum og góðri vinkonu Hrönn Jörundsdóttur. Hún varði doktorsritgerð sína núna á föstudag hér úti í Stokkhólmi. Ritgerðin hennar Temporal and spatial trends of organohalogens in guillemot (uria aalge) from North Western Europe er skrifuð við Umhverfislífefnafræðideild Stokkhólmsháskóla og er hægt að kynna sér efni hennar með því að fylgja slóðinni http://www.miljokemi.su.se/aktuellt/nyheter?id=46&lang=sv .
Ég óska dr.Hrönn og öllum hennar innilega til hamingju með stóra áfangann.
Quod bonum, felix faustumque sit!
4.2.2009 | 22:30
Afasi & Filthy
Afasi & Filthy
Líklega best að senda eitthvað gott frá Svíþjóð til að hressa upp á fólkið heima á Íslandi.
Skrambi góð tónlist um bjartsýni! Njótið vel!
____________________
TEXTINN:
Vers:
Många dom låter strömmen föra dom fram
Av olika anledningar ligger vissa på soffan andra får ett jobb och dom flesta dom gör vad dom kan
Så nu går man ut gymnasiet och ekonomin den är lika med noll
Och så pluggar man vidare inte för att man vill, bara för att det inte finns några jobb
Eller så jobbar man svart japp mellan morgon och natt
Kanske till och med kvällar och helger med massa tur kan man få sej en rast
Man ska väl inte klaga antar jag för vårt land är ju tryggt
Aldrig krig, knappt nån svält - men fan inget anställningsskydd
Refr x2.
Vissa förknippar sin arbetssituation med välbehag
Och pratar om jobb som nånting som dom gör sej förtjänta av
På sätt och vis är det väl rätt och riktigt men
Dom som kvalificerar för samma sak och dom letar efter samma jobb men dom heter Muhammed i efternamn dom får sticka hem
I landet med om största varmaste öppnade famnar
Röstar man fram att endast vissa ska bli kramade mjukt
Det finns platser på vägen där vissa av löftena stannar
Och det gör att man får forsätta va arbetslös eller slava som djur
Allting kommer lösas och bli bättre igen...
x2
Dom lägger fram förslag efter den franska modellen
Att du kan anställas utan några som helst tryggheter och sparkas på fläcken (va, va? meeen)
Ett litet jobb i ditt lilla liv jag menar vad är det?
Välkommen till ditt nya tidsfördriv hälsningar AUC
Och så tycker dom mest att man bara klagar och gnäller
Vanliga människor utan plats i vårat vardagssamhälle
Men man ska väl inte klaga antar jag för vårt land är ju tryggt
Aldrig krig, knappt nån svält - men fan inget anställningsskydd!
Refr x2:
Allting kommer lösas och bli bättre igen
Om du har pengar i fickan eller ett ess i din ärm
Och vi tror vi strävar mot samma mål
Men när man tittar på dig är det bara all you!
![]() |
Hvernig á að taka á hallanum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
3.2.2009 | 19:37
Að rífast um páfans skegg
Með það í huga hvað fáir páfar hafa verið skeggjaðir er hugtakið sennilega svolítið snúið og merkingarlega öfugsnúið. Í raun er það nátengt því að rífast um keisarans skegg. Hallast ég að því að hið fyrra sé upprunalegra. Hér sé í raun átt við að rífast um ekkert. (Síðasti skeggjaði páfinn var jú Innocentíus XII [1691-1700]).
Það blæs um hans heilagleika páfann í Róm þessa dagana. Það virðist ekki vera laust við að þessi páfi sem nú situr, Benedikt XVI., hafi svolítið gaman að því að hræra upp í pólitískri og trúarlegri umræðu (sami hlutur) af og til. Forveri Benedikts páfa, Jóhannes Páll II. var hin mesta friðardúfa, þótt hann væri staðfastur í sinni trú og margir yrðu að ganga gegn samvisku sinni til að fylgja páfa að málum. Trú páfa og trú kirkjunnar er sú sama, þar sem útlegging hins fyrrnefnda ræður.
Páfinn hefur lent í umræðunni aftur nú síðustu daga vegna sáttaleitanna hans við "Bræðrafélagið Pius X" (oftast kallað bara SSPX) þar sem biskupinn Richard Williamson er í forsvari. Félagsskapurinn fyrrnefndi hefur oft lent milli tannanna á fólki vegna sérstaklegar sögutúlkunar þeirra á því sem hefur með Helförina i Síðari heimstyrjöldinni að gera. Williamson biskup hafnar að Gyðingar hafi verið sendir í gasklefanna og þannig 6 milljónir drepnar að skipun yfirmanna Nasista í Þýskalandi (og herteknum löndum). Ekki er ein báran stök, heldur hefur téður biskup Williamson fullyrt að árásin á nokkrar byggingar í New York og Washington i Bandaríkjunum þann 11. september - hafi verið gerð af Bandaríkjamönnum sjálfum.
Helstu viðbrögð og þau hörðustu hafa orðið vegna afneitunar þessa katólska biskups á helför Gyðinga í Heimstyrjöldinni síðari. Þessi ummæli og önnur urðu til þess að forvera núverandi páfa Jóhannes Páll II bannfærði biskup þennan og félagsskapinn. Hann fékk t.d. ekki inni í kirkjum katólsku kirkjunnar og varð að leita á náðir annarra kirkjudeilda til að fá þak undir höfuðið. Jóhannes Páll II. páfi semsagt bannfærir þessa hreyfingu 1. júlí 1988, sem hann skyldi sem að væri að kljúfa kirkjuna. Megin rökin fyrir bannfæringu páfa voru ekki staðhæfingar leiðtoga SSPX um Gyðinga eða annað af sögulegum toga, heldur agabrot gegn páfavaldinu. Þeir vildu stjórna sér sem sjálfstæðri stofnun innan rómversk katólsku kirkjunnar. Svo virðist sem vandinn hafi komið upp í valdatíð Lefebvre erkibiskups, sem geðjaðist ekki að breytingum þeim sem gerðar voru á helgihaldi og stjórn rómversk katólsku kirkjunnar eftir Annað Vatíkansþingið.
Nú 21. janúar 2009 afnemur semsagt páfinn Benedikt XVI bannfæringu forvera síns og leyfir félaginu að teljast á ný til "sauða sinna", en gefur prestum og biskupum ekki vald til að þjóna embættum þeim sem þeir áður höfðu vígst til.
Talið er að þessi umdeildi gjörningur páfa að rétta út sáttarhönd til þessa umdeilda hóps/fylkingar sé gerður í því augnamiði að halda fast um "einingu kirkjunnar". Hætta sé á að hundruðin þúsunda fólks yfirgefi annars kirkjuna og stofna endanlega nýja og að samningastaða páfa gagnvart hópi Williamsons biskups SSPX verði betri ef hann er "undir valdi" páfa. Þannig er það skýring Páfastóls að hér sé EKKIverið að sættast á sögutúlkun SSPX nér skrýtnar skoðanir hreyfingarinnar, heldur verið að "bjarga því sem bjargað verði" í samskiptum Páfagarðs og SSPX.
![]() |
Páfiinn veldur enn uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 5.2.2009 kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)