1.9.2008 | 12:23
Elgveiðin hafin
Einmitt! Elgveiðin er hafin. Ekki þó á Íslandi, heldur í Svíþjóð. Nú er hafinn sá tími þegar maður er þakklátur fyrir að maður er ekki elgur. Japp, veiðsísonið er hafið og ekkert við því að gera. Veiði er samkvæmt heimildum mínum leyfð um alla Svíþjóð frá og með deginum í dag, fyrir utan á Gotlandi - en þar eru engir elgar. Þó hefur stjórnvöldum fundist það ráð að banna elgveiðina þar með sérstakri reglugerð, þannig að fólk sé ekki að vafra um með hólkinn, skimandi efitir einhverju sem líkist elg. Þetta er kannski bara góð hugmynd. SKILJIÐ SKOTVOPNIN EFTIR HEIMA!
Svíarnir segja að maður verði að veiða minnst 100 000 elgi á hverju ári svo að það verði hægt að sjá skógana fyrir elgum. Fjölgunin hafi verið mikil, eða mest í byrjun níunda áratugarins, en þá er áætlað að um 600 000 elgir hafi verið á stjákli - vappandi um skógana, brytjandi þá niður og étandi. Núna er þetta meira "under controle".
Já, það er ekkert gaman að vera elgur núna! Fy fan, nej!
1.9.2008 | 07:52
Hvílíkur prólóg til Íslandsferðar!
Ég lít nú yfir vinnuborðið mitt og bara styn! Allir þessir pappírar, rusl, óskilgreint pappírsflóð, skipulagt kaos: Stundarskrár, lykil og lausnarorð á háskólavefina, skráningarblöð, ljósmyndir, hjónavígslubókanir, skírnareyðublöð, nýjar skólabækur, síminn, hleðslutæki, kortageymslan, CD-ar, heftari, umslög úff.... of langt mál að telja upp! Í miðjunni er litla ljósið frá börnunum mínum Magdalenu og Nikulási sem ég fékk í jólagjöf fyrir rúmum þremur árum. Ljósið sem var í er fyrir löngu brunnið, en ég set alltaf nýtt og kveiki á því á hverjum degi og hverju kvöldi þegar ég er heima og gæti ljóssins. Lítið leiðarljós, bænaljós fyrir börnin mín.
Á morgun fer ég til Íslands í stutta heimsókn. Það er langt síðan ég var á Íslandi síðast. Það mun hafa verið í febrúar sem ég leit ættland mitt augum, elskulega fjölskyldu og börnin mín. Of langur tími. Ég er að reyna núna að koma skipulagi á næstu daga hér í Svíþjóð. Skólarnir eru byrjaðir og geri ég því ráðstafanir vegna þeirra tíma sem ég verð ekki viðstaddur við. Fékk frí í kirkjunni þessa daga. Tek í staðinn vinnu þegar ég kem heim aftur til Stokkhólms. Reyndar vann ég tvöfallt í gær til að vinna af mér tvo daga í næstu viku. Það verður gott að komast frá þessu öllu í nokkra daga og smjúga inn í hversdaginn á Íslandi, góða Íslandi. Hlakka óumræðanlega að geta bara sest niður á fallega æskuheimilinu mínu og notið góða kaffisins heima og verið meðal þeirra sem eru mér svo kærir.
Það er eins og náttúran sé að undirbúa mig undir Íslandsferð, því hérna var kallt í morgun og gjóla. Íslenskt veður... eller hur! Í CD spilarnum er Sarastro að syngja í Töfraflautunni. Trú, kærleiki, einlægleiki, sannleiki, fyrirgefning - að vera manneskja! Um gildi þess að vera manneskja. Hvílíkur yndislegur texti. Hið sammannlega, breyskleikan og umburðarlyndið. Kærleikan sem hver manneskja skal bera til annara. Agape! eins og það stóð í grískunni! Hvílikur prólóg til Íslandsferðar!
Fékk bréf frá gömlum vinum í Danmörku, Birthe og Kay í umliðinni viku. Þau spurðu mig hvort ég væri ekki til í að senda þeim myndir af fjölskyldunni og sérstaklega börnunum mínum. Þetta er svo ljúft og gott fólk. Alltaf senda þau gjafir á afmælumog jólum til krílanna minna. Ég sendi þeim svo myndir þegar ég kem heim aftur frá Íslandi. Svona fólk eru burðarstólpar samfélagsins. Talandi um vini og vinskap. Ég var að vinna í kirkjunni í gærkvöldi. Gestur þar kom til mín og spurði mig hvort ég værir ekki Baldur, Íslendingurinn? Ég jánkaði því. "Jú" sagði hann "þú ert prestur frá Íslandi - kannski þekkir þú gamlan og góðan vin minn frá Íslandi, Kristjan Boooooooason?" Jú, sannarlega kannast ég við gamla kennarann minn sr. Kristján Búason, grískudósent! Við spjölluðum alllengi saman og sagði hann mér margt skemmtilegt. Kannski fór svo vel á með okkur því báðir vorum við jú útlendir, hann Ameríkani og ég það sem ég er. Ósköp getur heimurinn verið lítill! Jæja, best að halda áfram með tiltektina hér. Sjáumst Ísland!
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2008 | 19:48
Masjävlar (2004)
Í kvöld hef ég horft á sænsku kvikmyndina Masjävlar. Kvikmyndin var sýna á SVT1 það er að segja RÚV þeirra Svía. Kvikmyndin var svo skemmtilega sammannleg og falleg með öllum tilbrigðum sínum við mannlega náttúru, litfengi og fegurð í ljótleika - þetta var eins og paletta hins sammannlega. Sögusviðið var í stuttu máli það að ung kona kemur heim frá stórborginni í sveitina til að samfagna föður sínum sjötugum. Hún, hún sem hið þögla vitni lífsins í sænsku Dölunum er skyndilega fangin í tilfinninganna ólgusjó - knappas sundfær sjálf vegna eigin tilfinningabyrðar. Ofurseld tilfinningum dregst hún inn í stórdramatískt fjölskyldulífið sem sannarlega hefur ekki sýnt sitt rétta andlit lengi. Ausið hefur verið eldsneyti í gegnum árin á andlega köstinn sem við hátíðahöldin í sambandi við afmæli föður hennar. Nú er kösturinn síðan fyrir margt löngu síðan gegnósa. Tundið frá tilfinningabombu hátíðarhalda tendrar bólið stóra og stuttlifaða. Niðurstaða myndarinnar er ein stór tilfinningasúpa hinna miklu fórna en síðan hinna stóru sátta.
Frábær kvikmynd með góðum leikurum sem hver á eftir öðrum gerir sitt besta og meira til. Þeir helstu: Sofia Helin, Barbro Enberg, Joakim Lindblad, Lars-Gunnar Aronsson.
28.8.2008 | 18:28
Fánaborg hvað þá!
Fánaborg!
Þetta er nú bara einn fáni. Fánaborg er síðast þegar ég vissi þegar mörgum fánum er safnað saman í þéttri uppsetningu fánastanga - öðrum kosti að gerð sé svona "fánaborg" með því að hvirfla saman ca. 5 fána.
![]() |
Íslensk fánaborg í Aþenu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2008 | 17:33
Álftir á Lappkerinu - vangaveltur um líf
Lífið er eins og spírall, spírall sem vefst eins og vera ber um sig sjálfan, gormur sem verður eins og tákn fyrir hið síendurtekna í lífinu og samtímis framvindu lífsins um leið. Aftur og aftur er maður minntur á það sem liðið er, gott og slæmt. Líf mitt kemur að vera svona rétt eins og annara og við því er lítið að gera. Maður getur lært af endurteknum svipmyndum frá hinu liðna og hugsað fram í ókunna myrkrið sem bíður okkar allra að stíga inn í. Myrkrið er ekki endilega neikvætt. Heldur tákn fyrir hið ókunna, óvissu og hið hulda. Um helgina annaðist ég sem fulltrúi dómkirkjusafnaðarins hér í Stokkhólmi hjónavígslu í kirkjunni minni. Þarna var fallegt par á ferð sem á sér bjarta framtíð. Með fyrirbæn, handyfirlagningu og blessun Drottins sendum við þau út í lífið. Mér varð óneitanlega hugsað til þeirra hjónavígslna sem ég hef annast og svo til þess tíma þá er ég stóð í sömu fótsporum. Allt virtist vera svo bjart og framtíðin falleg og heillandi, sem hún var. En svo skiptast veður og áttir og það sem ekki á að gerast gerist. Það sem ekki var til í myndinni í upphafi skýtur upp kollinum. Mismunandi áherslur, langanir, líf tveir ólíkir vegir skilja sundur hinn þegar venjulega veg. Á sunnudag átti ég frí úr vinnunni. Ég var mest heima og hugsaði um lífið og tilveruna. Ég setti upp forrit í tölvunni minni sem ég þarf til að geta verið í fjarnáminu í Falun í Dölunum og pantaði mikilvægustu skólabókina sem ég svo fékk með pósti í gær. Vangaveltur mínar fjölluðu þann daginn um stríð og frið. Hér á ég ekki við hið fræga rit Leó greifa Tolstoy, en mínir þankar fjölluðu engu minna um líf, æsku, kærleika, ást, hrörnun, öldrun lífið og dauðann. Lifandi gekk ég um litla skóginn umhverfis Stóra Skuggan, sunnan Lappkersins. Ungviði álftanna, móbrúnir ungar þeirra, ófleygir svömluðu milli foreldra sinna þarna úti á litla Lappkerinu. Fannhvítir foreldrarnir höfðu auga með að enginn kæmi of nærri ungunum. Þetta spennuspil á litla Lappkerinu er sannarlega sjónarspil. Ungar andanna sem syntu allt umkring létu lítið á sér bera og voru í skjóli af foreldrum sínum. Svanirnir svo stórir sem þeir eru gátu hæglega bitið í sundur eða slegið ungana niður dauða með þungum vængjaslögum sínum. Allir vissu sinn stað og sinn sess í samfélagi litla Lappkersins. Barátta lifsins mót dauða og ögrun umhverfisins. Ég á líka litla unga sem synt hafa nú í 4 ár á sínu óaðgengilega vatni. Þeir vaxa og dafna og þekkja umhverfi sitt. Þeir eru ungar viljasterkra foreldra. Foreldra sem myndu gefa líf sitt væri það þeim til lífs steðjaði ógn að. Álftirnar á Lappkerinu virðast stundum vera farnar að æfa flugtök á vatninu eftir að þær hafa verið í sárum. Farið er að bera á nýjum flugfjöðrum, þær snurfusa sig og plokka í dúninn. Þær eru farnar að hugsa sér til brottfarar. Ungarnir læra sig eitthvað nýtt á hverjum degi. Pabba- og mömmu-álftin synda sjaldan saman lengur á vatninu. Það verður að koma vetur og vor til að þau leggi hugi saman. Þannig er lífsins gangur. Þau hverfa á braut í haust og skilja ungviðið eftir í lífsins ólgusjó.
Ungarnir velja oft að synda með einu foreldranna. Hvort þetta er gangur lífsins veit ég ekki, en svona er þetta eða er þetta val foreldranna að svona sé þetta? Enn ein spurningin sem ég kann ekki svar við. Því lengra ég geng í skóginum og nálgast heim veit ég meira hvað ég veit lítið. Þetta er skrýtið líf.
Mann langar oft að segja svo mikið, segja frá lífinu. Segja frá þeim dimmu stöðum þar sem ég hef getað kveikt ljós og séð nýja heima, skilið myrkrið og varpað leyndardómi þess í ljóssins skyn. Af hverju, spyr ég mig, eigum við svo erfitt með að lifa með lífinu, lifa með lífinu í allri þeirri ljóssins og litanna dýrð sme þar er að finna? Af hverju steytum við alltaf um smásteina og látum þá fella okkur? Ég vona að gráum álftarungarnir sjái lífið eins og það er, ekki bara með augum þess sem þeir elta, enda myndu þeir aðeins verða fleygir, en ekki vita hvert þeir ættu að fljúga. Guð gefi að þeir læri að fljúga og vita hvert þeir eiga að fljúga. Ungarnir mínir, lærið að fljúga leitið ljóssins og fegurðar lífsins víða og skapið tilgang með lífinu og lærið af reynslu annara.28.8.2008 | 15:59
Ég veit hvert peningarnir fóru sem nota átti í nætursjónauka
Lesið gjarnan bloggið hennar Ólínu Þorvarðardóttur:
http://olinathorv.blog.is/blog/olinathorv/entry/626408/ Það er skelfilegt að sjálfsupphafningin, siðleysi stjórnmálamanna þurfi að kosta okkur þjóðina svo mikið. Hversu betur hefði ekki þessum greiðslum til stjórnmálamanna - til auglýsingaferða þeirra sjálfra - verið betur komið við kaup á nætursjónauka fyrir Landhelgisgæsluna? Ég held að þótt við séum stolt af okkar silfupeningum frá Peking, þá held ég að þjóðin vilji frekar geta bjargað fólki heldur en að sjá Þorgerði Katrínu og hennar samstjórnarfólk á áhorfendapöllunum í Hreiðrinu í Peking. Ég get ekkert fyrir útskýringar um að það hafði verið "rétt" að senda helling af stjórnmálamönnum, ráðuneytisstjórum og mökum þeirra - mér stendur öryggi landsmanna og gesta okkar á Íslandi hjarta nær en að greiða undir rassinn á þessum stjórnmálamönnum sem hvort eð virðast vera okkur bara til óbærilegrar byrðar.
![]() |
Nætursjónaukar aðeins í einni þyrlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2008 | 18:11
Örebro og sænska sumarið!
Þá er maður búinn að fá smjörþefinn af Svensonsumarinu. Einn kunningja okkar Mikka, Henke hefur eitthvert fátal skipta komið og fengið að gista og notið af stórstaðsmenningunni hér í Stokkhólmi. Þetta hafa verið skemmtilegar heimsóknir. Alltaf gaman að sjá að fólk fer enn í heimsóknir til hvers annars. Jæja, við ákváðum nú í vikunni að endurgjalda heimsóknirnar og fórum með rútubíl (2,5 klst) til Örebro. Rútan var á ferð til Oslóar með viðkomu á nokkrum stöðum. Jæja, fólk var þar nestað og byrjaði þegar að maula á sitthverju ætu OG ÓÆTU... Íslendingar geta nú vart státað að betur lyktandi mat en Svíarnir með sinn surströmning. Nóg um það. Manni verður bara bumbult af hugsuninni. Annars eru frændur okkar Svíar nú að gófla í sig humri sem það væri á færibandi. Humarinn þennan kalla þeir kräftor. Minna humarveislur þeirra helst á matorgíur auðugra Rómverja fyrr á tímum. Svona líta þessi monster út - og fólk leggur sér þetta til matar. Dýrkunin er komin á það stig að frímerki hefur verið gefið út með afmynd þessara óargadýra:
Nóg um matsiðina. Þegar komið var til Örebro, var ferðaplönum breytt og ferðinni heitið til Fagersta tjaldsvæðisins eða réttara sagt tjaldvagnasvæðisins. Ekið var gegnum Lindesberg og síðan af þjóðveginum og á týpískan íslenskan sveitaveg með holum og allt! Fínir dagar fóru í hönd og var grillað og spilað, farið í göngutúra og slíkt sem tilheyrir sumarferð út á landið. Á einni svona gönguferð rákumst við á lítinn, kannski 15 - 20 cm langan snák. Hann var drjúgur með sig þrátt fyrir smæð sína, reisti sig upp og reyndi að höggva til okkar þegar við nálguðumst of mikið. Svo við bara létum snáksa vera í friði, en ég gaf honum nafnið Smákur; hann var jú smár og snákur! Smákur litli. Mynd af honum neðst í umfjölluninni. Góðir dagar sem voru nauðsynlegir rétt áður en skólarnir byrja. Námið við Högskolan í Falun byrjaði nú á mánudag. Þetta er að mestu leyti fjarnám, svo nærveru minnar var ekki krafist. Uppsala háskóli krefst hinsvegar nærveru núna á föstudag en þá hefst haustönnin þar, mín síðasta haustönn þar.
Í gærkvöldi var svo ekið til Örebro aftur úr sveitinni. Það rigndi en það skyggði ekkert á ánægjuna af því að hafa verið á smá flakki. Vegna veðursins var ákveðið að leyfa mér að fá nasasjón af því sem kallast sænsk kvikmyndalist og nú tölum við ekki um hálfhljóðar svarthvítar 4 tíma filmur Ingmars Bergmann. Ónei, nú var það kvikmyndin Smala Sussie, ( http://www.moviezine.se/filmsidor/smala_sussie.shtml ). Myndin sem hefur alveg ótrúlega fyndin söguþráð, flæktan fram og tilbaka, svolítið Pulp Fiction-leg. En fyrst og fremst er þetta grínmynd hjúpuð hinum vermlenska framburði sænskunnar (Värmland liggur mót landamærunum að Noregi, norður um stóru vötnin Vänern og Vättern). Ferlega fín og skemmtileg kvikmynd og ég fékk illt í magann af hlátri!!! Er það merki um að ég er farinn að "försvenskast"?
Á myndinni að ofan getur að líta litlu höfnina við hjólhýsahverfið. Bátarnir skvömpuðu þarna, margir með kräft-búrin tóm eftir velheppnaða veiði og enn betur heppnaða átveislur :) Jæja, best að slútta þessu núna í bili. Langaði bara að segja frá því hversu gaman þetta var og hvað mér leið vel. Fannst gott að komast frá hversdeginum eftir helgina. Hérna kemur svo Smákur litli:
Ferðalög | Breytt 28.8.2008 kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2008 | 06:36
Hvað kosta biðlaun borgarstjóranna Reykvíkinga á mánuði?
Ég reyni að fylgjast með því sem er að gerast heima á Íslandi og stundum er maður heppinn og fær umfjöllun í fjölmiðlum hér ytra. Síðustu dagana hefur Íslenska handboltaliðið gert að umfjöllunin hefur verið glaðleg, upplífgandi og full af spennandi orðum sem kætt hafa upp landann. Áður en handboltaliðið krækti í ólympíusilfrið var þó allt annað upp á teningnum. Hér ytra var rætt um borgarstjóramálin í Reykjavík. Ég var spurður hvort hægt væri að senda einhvern framhaldsskólabekk í stafskynningu og leyfa þeim kannski að verma borgarstjórastólinn agnarögn. Ég sagði að sennilega, gegn lítilsháttar greiðslu, væri hægt að koma því við. Þessi farsi hefur gengið allt of lengi fyrir tómu húsi. Þetta háttarlag sem engan endi virðist ætla að taka, hefur birt borgarbúum þau sannindi að það er ekki þeirra vegna sem fólk velst til borgarráðssetu, eða setu sem borgarfulltrúa, ó nei. Hér er einkapotið, sjálfsupphafningin og hryggð mannlegs eðlis í sýningarglugganum. Framavonir einstaklinga eru settar öllu framar og borgarbúum er svarað með þótta og yfirlæti. Að síðan allir svokallaðir borgarstjórar fái biðlaun, er auðvitað bilun. Hefur einhver tekið saman hvað þetta kostar borgina á mánuði? Þetta er skelfilegt! Sorglegt!
Eitt enn sem líta má á sem beina afleiðingu þessa borgarstjórnarfarsa er að starfsheiti borgarstjóra hefur skaðast. Óráðsía í meðferð embættisins hefur gert það næsta virðingarlaust. Fólk hlær að borgarstjórunum. Mál- og orðtæki fara sennilega að skapast sem verða minnisvarðar þessa niðurlægingartímabils í sögu borgarinnar. Þetta er farið, í alvöru, að minna á forsætisráðherratal Ítalíu, þar sem yfir 50 (ef ekki 60) forsætisráðherrar hafa setið síðan frá stríðsárunum, - enn er það svo að maður knappast man hver vermir stólinn þar í landi. Maður hreinlega hefur ekki áhuga lengur.
Takið ykkur á núna. Setjið einhvern aðila í stólinn og setjið galdralím á rassinn á honum/henni svo að honum/henni verði ekki vellt úr stólnum eða hann/hún komist ekki þaðan!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.8.2008 kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.8.2008 | 16:16
Orð dagsins í kjölfar ljúfsárs sigurs
"Við vorum best þeirra sem ekki sigruðu"
![]() |
Íslendingar taka við silfrinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2008 | 08:55
Til hamingju Frakkar! Til hamingju Íslendingar!
Jamm sit hérna og horfi á úrslitaleikinn. Sænsku íþróttafréttamennirnir eru á bandi Íslands, en geta því miður ekki orða bundist yfir getulausum leik Íslendinganna. Þeir reyna að lofa ekki um of Frakkarna, en ég get ekki orða bundist. Frakkarnir leika skemmtilega og viðburðaríkan handbolta. Það sama verður ekki sagt um okkar menn. En þeir eru sennilega bara sáttir við silfur. Það sem í raun vekur spurningar hjá mér er: Við höfum engu að tapa, silfur í höfn og allt annað væri fínt. Af hverju spilum við ekki að meira dyrfsku? Bara leikum okkur og komum enn á ný á óvart?
Jæja, best að hætta þessu snakki....
Ísland, - til hamingju með silfrið. Frakkar, - til hamingju med sigurinn!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 08:04
Bravó! Ísland 32 - Pólland 30
Það var ótrúlega skemmtilegt að sitja við sjónvarpið í morgun og horfa á leik Íslendinga og Pólverja. Reyndar varð ég að fara nokkrum sinnum frá tækinu til að stressa ekki of mikið. Ég kíkti fyrir horn þegar áhorfendur byrjuðu að æpa "Ísland, Ísland" ....". Þetta var sannarlega lifandi leikur, harður eins og hann á að vera, hvergi lægt né gefið eftir og niðurstaðan: Íslendingar í undanúrslit á Ólympíuleikunum, var ekki til að gera sigurinn minna sætan. Lofsorðum sænska íþróttafréttamannanna ætlaði aldrei að ljúka. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fékk frábæra dóma og landsliðið ausið með skjallandi orðaflaumi. Þetta vermdi hjarta mitt og mér fannst ég svo sem um örskotsstund vera kominn heim að sjónvarpinu á Íslandi.
Bravó Ísland! Undanúrslit! Hjálpi mér allir heilagir!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 18:00
Svangir sendiráðsmenn
Nú þegar Kínverjar halda Ólympíuleikana svo glæsilega virðist utsent starfsfólk þeirra í annari heimsálfu varla hafa til hnífs eða skeiðar (eða réttara sagt prjóna sinna). Í gljáfægðum sendiráðsbílum fara þeir austur í hreppa og sækja sér björg í bú. Líklega er bensínkostnaðurinn meiri en sparnaðurinn af því að kaupa grænmetið í búðum í Reykjavík. Líklega eru það hin annars óvelkomnu smádýr, myglusveppir og slíkt annað próteinríkt gums sem fólkið er að sækja sér. Lyfin liggja í ódýru grænmetinu greinilega. Þetta leiðir huga minn að því að ég átti samtal við einn ónefndan sendifulltrúa erlends lands hér í Stokkhólmi fyrir nokkru. Hann tjáði mér að þót flest lönd hefðu glæsilega risnu og gætu af og til sólundað stórum fjárhæðum í veisluhöld og kynningarstefnur væri svo þó ekki einatt fyrir komið. Hefði hann verið á ferðalagi fyrir nokkru. Hefði honum hlotnast sá heiður að vera boðinn í "ambasadsveislu". Nú ekkert vantaði á dýrðirnar og kræsingarnar. Þar fékk hann að heyra að sendiherra Eritreu væri alltaf boðinn í ALLAR veislur, þar eð hann hefði ekki fengið laun í 5 ár og því öllum veislum feginn. Þessu sýndu öll sendiráðin í borginni skilning og var honum einatt boðið í allar veislur og móttökur.
Hugur minn leitar nú til hinna ágætu vina okkar Kinverjanna á Víðimelnum í Reykjavík. Skyldi vera svo komið að þeir hafi ofgert sér í Olympíuhugsjóninni og gert of vel í sambandi við leikanna og gleymt sínum eigin þegnum erlendis? Auðvitað ætti að hvetja fólk að skjóta saman smá aurum eða jafnvel senda mat til þeirra þannig að þið heima á Íslandi þyrftuð ekki að sjá Kínverjarassa upp úr öllum ruslatunnum og standa næturvakt við grænmetisbeðin ykkar.
Bestu kveðjur úr allsnægtum Stokkhólms, þar sem allir hafa eitthvað í sig og á! :)
![]() |
Sendiráðsmenn hirða grænmetisúrgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2008 | 20:44
Klikkaðir atvinnubílstjórar
Ég tók strætó í morgun niður í bæ. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað ég varð fyrir reynslu sem ég kýs ekki að verða fyrir aftur. Þannig var að ég hafði puðrast upp í strætóinn og bílstjórinn hafði ekki einusinni fyrir því að kíkja á strætókortið mitt. Hann var einfaldlega of upptekinn af því að babbla í farsímann sinn. Ég var ósáttur við að hann væri að snakka þetta í símann en sagði ekkert. Man bara næsta að kaupa ekki strætókort þar sem það virðist ekki vera skoðað af bístjórunum af neinni gaumgæfni. Nóg um það. Þegar strætóinn þurfti að fara um gótuslóða sem er krókóttur og upp í mót. Gata þessi, Ekhagsvägen er búin gamalmennum og svo ungu fólki sem fer mest ferðasinna með krakkana sína í barnavögnum. Bílstjórinn ók þessa leið í dag og þegar hann hafði sveigt upp til Ekhagstorget, samtímis gjammandi í símann, rétt missti hann af því að strauja móður með barn í vagni. Þetta vakti óhug farþega.
Þessi sami bístjóri hætti ekki að tala í símann, heldur hélt spjallinu áfram og ók framhjá biðskýli niður við Bergiusvägen. Þar stóð fólk og beið. Ég gekk þá fram og spurði hann hvort hann vildi ekki bara stöðva vagninn svo ég gæti stigið út, því annan eins aula hefði ég ekki ekið með í fleiri ár. Ég kvaðst myndu hafa samband við strætófyrirtækið og tilkynna um aksturslag, símanotkun og gleymsku hans. Ég sagði að ég hefði borgað fyrir strætókort, en ekki rússibanamiða.
Auðvitað hringdi ég svo til strætófyrirtækisins Busslink og tilkynnti um hvað gerst hefði. Og svarið var: "Já, leiðinlegt að heyra, en við vonum alltaf að bístjórar séu ekki að tala við fólk í akstri, en það er voðalega lítið sem við getum gert." Auðvitað var þetta ekki svarið sem ég var eftir svo ég gerði bara sem ég geri alltaf þegar ég nenni ekki að hanga í einhverju lyftutónlistardæmi, svo ég tók burt núllin í lok númerisins og setti - 02 í staðinn fyrir síðustu 2 tölurnar. Þá náði ég sambandi við einhvern stationsansvarig í höfuðstöðvunum. Ég spjallaði stutt við hann og hann tjáði mér að við þessu yrði brugðist. Hann bað um ökutíma strætisvagnsins og leiðarnúmer. Ég var ánægður, virtist sem tekið hefði verið á þessu - eða það var a.m.k. tilfinning mín. :) Vonandi verður lát á þessu sms og símtalaóværu hjá strætisvagnabístjórum í Stokkhólmi. Að Svíar hafi ekki bannað gsm notkun í akstri er ótrúlegt, sjálf umferðaröryggisþjóðin. Usss....
Á morgun byrjar Stockholms kulturfestival. Ég ætla í göngu sem heitir "heliga rum" og er farið frá Synagógunni hér í borg, til St. Eugenía (katólska safnaðains) og til St. Jakobskirkjunnar þar sem ég á svo að fjalla um kirkjuna, starfsemi, list og arkitektúr. Gaman! :) Best að fleygja sér í bælið og vera vakandi í staðinn á morgun. Hej då!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.8.2008 | 19:28
08.08.08
Ég vaknaði klukkan 08:08 í morgun. Veit ekki af hverju, því klukkan var stillt á 08:00. Ég hugsaði að þetta væri bara eitthvert djók. Í dag er "Stokkhólmsdagurinn". Svíar nota ennþá svæðisnúmer í símkerfinu sínu og svæðisnúmerið hér í Stokkhólmi er 08. Dagsetningin var því valin sem sérstakur einnarhátíðar veisludagur bara til að skemmta sér! Hvaða aðra ástæðu þarf maður: Ég semsagt vaknaði klukkan 08:08 þann 08.08.'08 og í dag er 08-dagurinn. Klikkun!
Ég var að vinna í kirkjunni í dag. Ég sá um hina svokölluðu vísmessu sem er stutt messa með nútímalegu tónlagi eftir nótum Per Harling. Þetta var skemmtilegt og þónokkuð margir leiddu leið sína í Jakobskirkjuna. Þetta var skemmtileg og gefandi stund og fjarska gaman að sjá að margir höfðu komið um langan veg. Eftir messuna hafði einn af fastagestunum sett fram kanelsnúða á disk og ég hafði sett fram kaffi áður en messan hófst. Allir voru svo áhugasamir um ferðina til Barcelona og vildu heyra allt um ferðina. Sama gilti um fastagestina á orgeltónleikana núna í dag. Að ég hafði farið í stutta ferð virtist vera á allra viti. Þetta var notalegt og í dag hafa tveir prestskollegar hér í Stokkhólmi hringt og einn komið við í kirkjunni bara til að heyra hvort ég hefði ekki haft það fínt í útlöndum Velti því fyrir mér hvort svona hefði nú gerst á öðrum stöðum hmmm...
Varð svo enn glaðari þegar ég frétti að dómprófasturinn minn hann Åke Bonnier væri farinn að blogga. Mér fannst þetta alveg þrælgóð hugmynd hjá honum. Auðvitað mun hann fá ýmisviðbrögð við því sem hann skrifar, bæði góð og minna góð, en mér finnst hann hugrakkur! Bravó Åke!
Nú er ég eiginlega bara þreyttur. Búinn að vera vinna síðan klukkan hálf tíu í morgun, búinn að hafa eina vísmessu í kirkjunni, vinna sem vaktis, versla, baða og núna langar mig bara slappa af. Líklega les lítið eitt í Jobsbók og kíki svo á sjónvarpið. Læt þetta nægja í bili. Bless!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2008 | 20:55
Barcelona
Barcelona! Hola!
(mynd: Ég í Barcelona, við þurran gosbrunn rétt við Av. Diagonal)
Það er í senn gott og fróðlegt að vera kominn heim frá þessari langþráðu ferð til Barcelona og síðan lítið tregabundið og umvafið vissum söknuði að þurfa sjá á bakið á þessari heillandi og margslungnu borg. Ferðalög gefa mér svo mikið. Ég þrái að ferðast. Ég endurnærist og fyllist von og trú á það sem býr handa allra drauma, en síðast en ekki síst líka upplifi ég hversdaginn á annan og meira lifandi og gefandi máta. Hversdagurinn fær líf og verður sérstakur þegar hann er settur til samanburðar við vel heppnaða ferð. Þannig að Barcelónaferðin var gefandi bæði á heimavelli sem ytra. Ferðin var eins og fyrr segir langþráð. Jafnvel áður en ég fluttist til Svíþjóðar hafði ég dáðst af hinni sérspænsku Nýlistar, eða Jugendlistar. Antoní Gaudí, hinn frægi arkitekt og höfundur hins spánska modernisma i byggingarlist á stóran heiður af því að ég hef svo lengi dregist að !Barcelona. Hver þekkir ekki hin stóru verk hans, Parc Güell, La sagrada familía, Casa Batlló, Casa Milá og fleiri verka. Hugmyndirnar taka engan endi og leikurinn er síðan bundinn í föst og endingargóð form (og kostnaðarsöm).
(mynd: Fánar á húsi Banco de Espana: fh. Catalunya, Spánn, Barcelona)
Ferðalag fyrir mig er pílagrímsferð í óeiginlegri merkingu. Þegar landað var á flugvellinum utan Barcelona var eins og maður gengi á vegg. Hitinn var 33°C og rakinn svakalegur. Það var ekki þurr þráður á manni þegar á hótelið var komið og prógrammið yfirfarið. Í stuttu máli var ferðalagið hafið með að kaupa kort í neðanjarðarlestar- og strætókerfið. Það var notað mikið í ferðinni og létt að læra á kerfið sem var afskaplega umsvifamikið, en þó byggt á greinilega mörgum misjöfnum útþennslustigum. Oft þurfti maður að ganga um löng göng, þröng og loftlaus til að skipta frá einni línu til annarar. Ég er 184cm langur. Við flesta uppganga og tröppur varð ég að beygja mig til að reka ekki höfuðið upp undir. Soldið skondið, greinilega er ég með þeim lengri þarna.
Annars er best að skoða borgir með því að ganga um götur og torg. Því miður voru allir gosbrunnar borgarinnar án vatns vegna hins þurra sumars og vatnsskortsins þar af leiðandi. Fannst mörgum þetta (mér líka) afskaplega fúlt þar sem margir gosbrunnarnir leika stórt hlutverk í listaverkum og því að skapa hið fjölbreytta umhverfi sem einkennir svo borg og list hennar. Vegna hitans hefði alveg verið hugsandi að fara í fótabað í einhverjum þessara.
(mynd: Ég í La Sagrada Familía. Lofthæð upp undir hvelfingu er 60 metrar í hliðarskipinu)
Eftirminnilegar eru ferðir á slóðir fyrrnefnds Gaudís. La Sagrada Familía var ógleymanleg. Hvlílík bygging, bákn og listaverk. Kirkjan sem annars stendur í fátæklegu hverfi borgarinnar hefur lengi reist sig yfir niðurnýdd húsin og þannig skapað framtíð fyrir hverfið í heild. Þegar hefur kirkjan verið takmark ferðamanna í yfir eitthundrað ár. Byrjað var að byggja hana fyrir 1882 en síðan hefur byggingin tekið sinn tíma vegna misjafns pólitísks áhuga, stöðu kirkjunnar, fráfalli Gaudís og svo peningaskorts. Búist er við að hún verði fullbyggð með sínum 170 metra háa miðjuturni (Hallgrímskirkja 74 metrar) 2026-8. Aðrar byggingar Gaudís voru margar skoðaðar og söfnin í Barcelona fóri ekki varhluta af athygli okkar ferðamanna.
Mikilfenglegar byggingar geta verið litlar. Ekki bara stórar hallir, leikvangar og dómkirkjur eru stórfenglegar. Stórfengleiki getur verið bundinn tilfinningu fyrir hinu heilaga. Í hinni litlu kirkju Santa Maria del Mar upplifði ég hana í smæð sinni sem einhverja hina stærstu andlegu musterum sem ég hef komið inn í. Stórleiki hennar var nærvera hins heilaga, hins eftirsótta og þess sem var svo nærri. Hins ósýnilega, heilaga og máttuga. Þessi látlausa kirkja stendur í Gotneska hverfinu (gamla bænum) í Barcelona ber allt með sér sem prýða skal helgidóm... Löngum hefur fólk leitast við að lýsa hinu heilaga - ég mun ekki reyna það. Orð mín verða alltaf fátæklegri en reynslan.
(mynd: Parc Güell í Barcelona)
Breytileiki og líf borgarinnar í Barca, borginni sem nefnd er eftir föður Hannibals frá Karþagó; Hamilkars Barca, kemur stanslaust á óvart. Opnunartími verslana, matvenjur, trúarlíf, næturlíf, hræðsla eða kunnáttuleysi heimamanna í tungumálum, opinbert og óopinbert viðhorf til ferðamanna - allt er hið sérstakasta að reyna og upplifa. Lyktin sem einkennir borgina, byggingar frá mismunandi tímum og skeiðum sem saman mynda lifandi, skemmtilega og heillandi borg þar sem fólki úir og grúir saman. Þar sem katalónsku og kastíllísku er jafnt blandað saman ómeðvitað og málverndunarstefna stendur á gömlum grunni, bundin pólitískri ójafnvægissögu þjóðar og þjóðarbrots. Yndisleg borg sem ég vil gjarnan heimsækja aftur.
Parc Güell: http://sv.wikipedia.org/wiki/Parc_G%C3%BCell
La Sagrada Famílía: http://en.wikipedia.org/wiki/Sagrada_Fam%C3%ADlia
Barcelona (turistinfo): http://www.bcn.cat/english/ihome.htm
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2008 | 16:09
Sól, sumar og 31°C undir heiðskírum himni
Það er búið að vera að mörgu að hyggja og dagurinn búinn að vera nokkuð annasamur. Þó hefur maður nú leyft sér að puðrast niður í bæ, skoða skrílinn og borða ís. Svækjan magnast upp á svörtu malbikinu og dökkum flötum húsa og stétta og allt virðist vera gersamlega að tapa andanum. Gamla fólkið flest heldur sig heima. Neðanjarðarlestirnar eru notaðar svo lengi sem það er hægt, enda svalara neðanjarðar. Síðasta spölinn heim að dyrum var notast við strætó og ég er handviss að hitinn í honum hefur verið nálægt 40°C. Gluggar voru oppnir og kæling í gangi, en samt virðist það ekki hafa haft svo mikið að segja. Lítill krakka byrjaði að smáæla og batnaði þá ekki lyktin sem þegar var þung af svitalykt og hundaskít. Það er spáð sama veðri nokkra daga áfram, en síðan á þessari hitabylgju að ljúka. Reyndar heyrði ég í dag að spáð væri hitameti í Stokkhólmi, en ég á nú bágt með að trúa að því verði náð, svo fjandi heitt er nú ekki enn.
Í kvöld er hugmyndin að fara út og svala sér á nokkrum bjórum, eitthvað verður það nú í minna lagi enda stutt í að maður fari að sötra framleiðslu þeirra Spánverja og njóta av þeirra góðu vínum. Á mánudaginn er ætlunin að hverfa til suðlægri landa. Barcelona er ferðatakmarkið. Í þeirri vögu lista og menningar er ætlunin að dveljast í nokkra daga, drekka í sig fjölbreytileika menningar og andrúmslofts borgar og þjóðar. Ég hlakka mikið til enda mikið að sjá og upplifa. Í gær keypti ég svo ferðalagsbókina "The Last Gospel" eftir David Gibbins. Ágætt að hafa reyfara við hendina þegar sólin er búinn að baka mann og skugginn dregur meira og ölið. Þá er yndislegt að geta lesið góðan heilalausan reyfara :)
Annars var ég að snúast í því að verða mér út um "Intyg om synprövning" sem er staðfesting á að sjón mín sé í fullkomnu lagi og að ég þurfi ekki gleraugu við akstur ökutækis. Þetta þarf skv. íslenskum og sænskum reglum að skaffa sér þegar endurnýja á ökuskírteini. Ég gerði þetta og fékk að borga 100 SEK fyrir þetta bréf/staðfestingu. Þetta verður síðan sent til Íslands eða ég tek það með mér þegar ég fer þangað núna í september. Það sem hefur vakið forvitni mína í þessum undirbúningsprósess er að þar sem á gamla skírteininu mínu segir að útgefandi kortsins og eigandi sé: Ríkislögreglustjórinn. Þegar ég skrifaði til embættisins vegna spurninga ég hafði um hvernig fara ætti að þegar maður væri búsettur erlendis, fékk ég ekkert svar. Ég skrifaði tvisvar sinnum, en embætti ríkisslögreglustjóra svaraði ekki fyrirspurnum mínum. Þetta er bæði óvirðing og sýnir hvað þessi ofvaxna og sjálfrisérversta stofnun er innihaldslaus og stendur sig ekki í upplýsingahlutverki sínu. Léleg þjónusta - eða réttara sagt: Engin þjónusta.
Jæja annars kvarta ég ekki. Sakna minna og íslenskrar náttúru. Kem nú samt bráðlega til Íslands og mun þá reyna að vera svolítið ræktarsamur við mína nánu og kæru. Síðan daginn eftir að ég kem til landsins, munu vinir mínir frá Adolf Fredrik Musikgymnasium koma til landsins á skólaslitaútskriftarferð. Ég ætla að reyna að vera þeim lítið eitt innan handar. Þetta er hópur af mikilhæfum ungmennum sem verða að teljast með þeim allra fremstu í minnst Norður-Evrópu í hljóðfæraleik og söng. :)
Jæja, best að fara gera eitthvað gagnlegt. Heyrumst heimur!