7.3.2009 | 11:30
New Deal og atvinnuatvinnuleysingjar
Hvernig má það vera að enn þann dag í dag er fiskur fluttur óunninn til útlanda? Í fyrsta lagi liggur kostnaður í því að sigla með fiskinn sem samtímis rýrnar í gæðum um borð í skipunum. Meðferð fisksins síðan í móttökulandi er með ýmsu og öllu móti. Allt er samt selt sem íslenskur fiskur og því orðstír okkar Íslendinga og vöru okkar í hættu.
Af hverju er varan ekki fullunnin, seld sem íslensk hrávara sem unnin er til lokastigs og síðan flutt út sem hágæða vara sem enginn nema Íslendingar hafa haft með að gera? Hér er ekki bara um metnaðarmál að ræða, heldur skapast við þetta þúsundir starfa sem Íslendingar eiga að sinna með sóma og stolti. Þetta er nauðsynlegt fyrir hagkerfið og mót atvinnuleysi. Atvinnuleysistryggingasjóður er sagður tæmast við áramótin ef ekkert er að gert. Hér er lausnin. Öll íslensk framleiðsla, hvort sem það er innan fiskiðnaðar, svepparæktar, tækniframleiðslu, kjötframleiðslu, ferðaþjónustu eða hátæknihugbúnaðar, þá er hér um möguleika til starfa og það Á ÍSLANDI.
Að leggja peninga í slíkt er næring fyrir framtíðina. Það er ljóst að Íslendingar neyðast nú að vera forsjálir og hugsa til framtíðar. Skyndigróðinn fór með okkur í ræsið. Nú er lag að hugsa til framtíðar og fá hjólin í samfélaginu að snúast eðlilega. Það er MIKILVÆGT að ekki vaxi úr grasi kynslóð sem sættir sig við atvinnuleysi og jafnvel þekkir ekki hvað er að vera úti á atvinnumarkaðinum. Slíkt þekkist á meginlandi Evrópu og mörg dæmin til þar sem þrjár kynslóðir hafa ekki komið nærri atvinnumarkaði og teljast atvinnuatvinnuleysingjar.
![]() |
Vilja fiskinn heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2009 | 21:59
Skollaleikur Gordons Brown
Það er ljóst að það er sama ruglið í gangi í Bretlandi og sömu gömlu klisjurnar notaðar hjá Gordon Brown og hjá fyrri ríkisstjórn Íslands. Þeir eru fyrir löngu búnir að gera á sig, þeir vita það og lýðurinn finnur fnykinn. Lýðurinn horfir dáleiddur á og hugsar með sér; "það er eitthvað lyktarskyninu hjá mér og sjóninni - Gordon og Geir hafa alltaf verið svo góðir gæjar." En fólkið sá og sér rétt og ekkert er að lyktarskyninu.
Ljót lygin í gegnum árin hefur blindað þjóðina. Rausið og þunn en snúinn röksemdafærslan sýnir að hún stenst ekki. Fjármálamarkaðir Evrópu eru að krafsa í neyðarsjóði hagkerfa sinna landa. ESB ræður ekki við að skapa heildstæða aðgerðastefnu, stóru löndin Þýskaland, Bretland og Frakkland bjarga sínu eigin skinni og nýinngengnu löndin í austri eiga vart til hnífs eða skeiðar vona bara að einhver heildarstefna verði sett í framkvæmd til bjargar efnahagslífinu. Þeirra vonir verða að engu og hvern dag fækkar brauðbitunum sem falla af borði ríku ESB þjóðanna. Enginn verður saddur af því að sleikja mylsnu.
Innviðir ESB eru graut fúnir. Efnahagsstefnan var aldrei til, heldur var hún aðeins blek á pappír. Orðin "sameiginleg efnahagsstefna" voru sem gildra sem austur Evrópulöndin stigu í og sitja nú föst.
Í þessum lygavef stendur Gordon Brown upp og krefst "aukins siðferðis". Hvílík hræsni. Hann talar um að lok "ábyrgðarleysis og óhófs" væru nauðsynleg. Hann ætti að gera öllum hinum vitiborna heimi þann greiða að segja af sér og munstra sig á hjálpargagnaskip á leið til einhvers þess lands þar sem Alþjóðagjaldeyrisstjóðurinn hefur lagt allt í rúst. Þar er þörf fyrir brauð og vatn. Fátækar þjóðir eru siðprúðar og lifa ekki í óhófi. Óhóf og siðleysi sprettur upp þar sem allsnægtirnar eru sem mestar!
![]() |
Brown neitar að hann beri ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2009 | 21:43
Bíðið við: Kemur þetta ykkur á óvart?
Mér verður flökurt!
Ég vona að þessar fréttir komi ekki fólki gersamlega á óvart, því slíkt væri grunnhyggni. Ég held að frá því að efnahagshrunið var staðreynd á Mikjálsmessu (29. sept) hafi ég í raun búist við því að einhverjir kæmust að því hversu spillingin var algjör. Mér var sagt við upphaf málsins, þá er ég sagði að leita ætti fjármuna á erlendum reikningum á Jómfrúreyjum, Cayman Island, Liechtenstein og öðrum skattaparadísum, því eðli spillingar er jú alltaf það sama. Skiptir engu á hvaða tímum við lifum, spillingareðlið er hið sama: Reynt er að græða með óheilindum og siðleysi á tá og fingri þar til allt er að bresta. Þá er hlaupið í skjól og vanþekkingu kennt um. Síðan hverfa þessir bófar undir jörðina og lifa í hamingjusamri spillingu í fjarlægum löndum.
Nú vona ég að íslenska þjóðin sæki sitt réttlæti og svífist einskis.
![]() |
Lánuðu sjálfum sér milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2009 | 07:37
Stjórnlagaþing = djörfung og lýðræði
![]() |
Stjórnlagaþing kosið í haust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2009 | 22:47
Numismatik - fræðin um mynt
Um langt skeið hefur verið unnið að því í Sankti Jakobskirkjunni í Stokkhólmi að smíða sýningarskápa fyrir sautjándualdar kirkjusilfur. Leitast hefur verið við að velja fram það í eigu kirkjunnar sem er af gert er af mestu listfengi samtímis sem sögulega tengingin hefur fengið að vera meðráðandi þáttur. Tímabilið sem valið hefur verið eru fyrstu 57 ár kirkjunnar, eða frá vígsluárinu 1643 til aldamótaársins 1700. Mikill sómi er af framkvæmdinni og hefur "Lilla kyrkomuseet" notið athygli í fjölmiðlum og meðal listelskra. Nokkrir sýningarmunanna eru taldir með besta silfurhandverki/listmuna sem til eru komnir á 17. öldinni.
Í dag bættist við lítil skál sem gleymst hafið í bankahvelfingu kirkjuna, en hún hafði verið tímasett rangt og hafnað í vitlausum kassa. Svo eftir stimplalestur við stækknunargler og brennandi heitt ljós komst undirritaður að því að skálin væri frá 17. öldinni, smíðuð af Mikael Böcke (frá ca 1640) í Stokkhólmi. Kringlótta lágmyndin er af suður þýskum uppruna, sennilega frá því um árið 1550. Þó virðist hún hafa lítinn leyndardóm að geyma, en í botni skálarinnar er minnispeningur sem setur skálina í annað breiðara sögulegt samhengi.
Hér er líklega gullsmíðar/silfursmíðariðnin komin í samspil með því sem nefnt er numismatik, eða myntfræði. Upphleypta miðja skálarinnar hefur nefnilega minnismynt (sem aldrei var hugsuð sem eiginlegur gjaldmiðill) eða "kringlótta medallion" sem sýnileg er ofan og neðanfrá. Gaman væri ef einhver myntsérfræðingur myndi láta heyra frá sér og gefa nánari upplýsingar um hvaða uppruna þessi mynt eða minnispeningur eigi (samhengi og ár).
Að ofan gefur að líta (til vinstri) undir skálina og (til hægri) ofan í skálina. Fyrri myndin (sú sem maður sér ef skálinni er lyft upp og kíkt undir) sýnir þverskurðarmynd af kirkju með hvolfþaki, kúpli og gæti rétt eins verið úr Péturskirkjunni. Þarna gefur að líta hirðana sem komnir eru að veita Jesúbarninu lotningu. Á myndinni til hægri, eða þeirri sem maður sér þegar skálin stendur á borði, er mynd af Kristi með sigurfána umleikinn texta Biblíunnar "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig" eða eins og textinn á innlagða peningnum segir "Ego sum via et veritas; nemo venit ad patrem nisi per me." Jóh. 14:6.
Mér dettur í hug að kannski sögufróðir myntáhugamenn kunni að vita einhver deili á þessum minnispeningi og gætu kannski skrifað athugasemd eða sent mér þá beint tölvupóst. Það áhugaverða er að hvergi er getið hlutverks skálarinnar góðu í samhengi guðsþjónustulífsins í kirkjunni. Skírnarskál hefur hún líklega aldrei verið, þar sem þrjár aðrar skírnarskálar voru til á tilkomutíma skálarinnar til kirkjunnar.
Skálin góða hefur fengið sinn verðuga stað í sýningarglugga kirkjunnar og sómir sér þar vel meðal annarra listgripa sem aðeins sýna þó brotabrot af þeirri ríku listasögu og menningarsögu sem Sankti Jakobskirkjan hefur yfir að búa.
Jorma Isomettä, 1. vaktmeistari, i Sankti Jakobskirkjunni leggur skálina í sýningargluggann
3.3.2009 | 19:31
Um list
Hvaða aðstæður þarf listin í dag til að þrífast? Eru til einhverjir alþjóðastaðlar sem krefjast milljarðakróna húsa? Ef við byggjum ekki tónlistarhús (sem jú alltaf er happadrætti hvað varðar hljómburð) erum við þá ekki menningarþjóð með menningarþjóðum. Ég tel, að í of mikið hafi verið ráðist af þjóð sem telur 300 000 fátækar hræður.
Stolt yfir menningu á ekkert skylt við milljarðakróna húsbyggingar. Við reisum ekki minnisvarða um fræga menn áður en þeir hafa verið fæddir, við klöppum ekki upp söngkonuna frægu sem er enn að leika sér í sandkassa. Við 300 000 manna þjóð byggjum ekki margnota tónlistarhús þegar næstum 10 milljón manna þjóð eins og Danir varð að þiggja óperuhús sitt úr höndum auðjöfurs, þar sem þjóðin ekki hafði ráð á slíku mannvirki sjálf. Við byggjum ekki fjölnota tónleikahús samtímis og við drögum úr tónmennt, greiðum ekki kennurum sómasamleg laun, tryggjum faglærða kennara í öllum skólum og getum ekki boðið upp á háskólavist án rokdýrra "innritunargjalda". Hver á síðan að "fylla þessa flík" sem saumuð er of stór? Ætlum við að kaupa inn erlenda menningarstarfsemi? Höfum við gleymt grasrótinni? Ég held að Íslendinga og þó sérstaklega Reykvíkingar hafi hressilega farið fram úr sjálfum sér. Milljarðakróna tónlistarhús á litla skerinu hans Jón Múla, glerhýsi barið eðju, sand- og saltblásti? Ég held í alvöru að fólki sér ekki sjálfrátt!
![]() |
Tekist á um Tónlistarhús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.3.2009 | 08:05
Norðurlandabandalag
Ég verð að játa að þessi óslitni og sígjammandi áróður fyrir upptöku EURO er óttalega fátæklegur. Fréttin sjálf er leiðandi í skoðanamyndun einstaklinga og því pólitísk. Auðvitað myndi upptaka EURO hafa áhrif í Danmörku, það segir sig sjálft. Því fleiri lönd sem taka upp slíkan gjaldmiðil því erfiðara er að standa mót kröfum ESB sinna. Það sem þó verður æ augljósara í allir umræðunni og sérstaklega umræðunni um EURO eru hin eiginlegu reynsludæmi sem við sjáum og heyrum af nær hvern dag.
Austantjaldslönd eiga erfitt nú á tímum efnahagskreppunnar. Þau hafa flest gengið til liðs við ESB og þannig vonað á stöðugleika og að fá að njóta ávaxta hinna vestrænni Evrópuríkja hvað samstöðu, fyrrnefndan stöðugleika og opnari markaðshlutdeild snertir. En hvað gerist þegar skóinn tekur að kreppa? Gömlu ESB löndin storma út með viðbragðsáætlanir sínar og reyna að bjarga eigin skinni í krafti auðs síns og stórfyrirtækja og banka. Á meðan biðja nýju Austur-Evrópu ESB löndin um stöðugleika, ekki annað. Þau eru ekki með í áfallapakka Frakka eða Þjóðverja, þau eru ekki með! Sum þessara landa hafa tekið upp eða tengst EURO. Þessi lönd eru illa stödd í dag.
EURO er ekki bara stödd á hálu svelli, heldur og í ljótum dansi eigingirninnar og þar með tákngervingur ójöfnuðs og pólitískrar fyrirgreiðslustefnu stofnlandanna.
Það væri illur hlutur fyrir Dani að taka upp EURO. Það væri ENN VERRI hlutur fyrir Ísland að taka upp eða tengjast EURO.
Ég mæli fyrir sterku Norðurlandabandalagi sem myndi þýða náið samstarf í viðskiptum, stjórnkerfi, landhelgis og löggæslu, sama mynteining myndi vera nýtt og Norðurlandabandalagið mynd koma fram sem ein heil og sterk heild. Þetta er mögulegt. Hugsið ykkur stærð Norðurlandabandalagsins frá Svíþjóð/Finnlandi að Grænlandi, frá Norðurpól til miðs Atlantshafsins. Flugumsjón, fiskveiðiumsjón og landhelgisgæsla sameiginleg, sameiginleg tollastefna og viðskiptasamningar yrðu gerði fyrir 30 000 000 í stað 300 000. Það yrði hlustað á okkur.
![]() |
Evruupptaka hefði áhrif í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.2.2009 | 22:42
Vitsgarn
Jæja, þá er maður búinn að redda sér vinnu næsta sumar. Þessi litla eyja í sænska Skerjagarðinum er litla eyríkið mitt næsta sumar. í sex vikur fæ ég að vera hæstráðandi á litla Vitsgarn og nærliggjandi eyjum. Andlegur leiðtogi eyjabúa og landstjóri. Jamm - þetta verður tvisvar þriggja vikna dvöl sem ég hef ráðið mig til þarna í sumarafleysingu sem prestur og hlakka ég mikið til.
Vonandi verður sumarið gott og hægt að sigla, synda og sóla.
Svíþjóð | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.2.2009 | 08:56
Kristur í kreppusamfélaginu
Viðbrögð við grein ritaðri af átta guðfræðingum Önnu Sigríði Pálsdóttir, Arnfríði Guðmundsdóttir, Baldri Kristjánssyni, Hjalta Hugasyni, Pétri Péturssyni, Sólveigu Önnu Bóasdóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Sigurði Árna Þórðarsyni sem birtist í Mbl. síðasliðinn sunnudag.
_______________
Takk fyrir greinina góðu. Athyglivert að sjá hvernig kirkjan setur fram sýn og þátttöku sína núna á tímum lítillar vonar, lítillar gleði og almennt bágs ástands. Þetta var fallegur texti og hlýr eins og búast mátti við frá góðu fólki.
I.
Ég á tvö sjónarhorn til. Um leið og ég þakka aftur fyrir góða grein, vil ég benda á fyrirbærið "líf með Kristi". Fyrra sjónarmið mitt er: Hvað tapaðist með efnahagshruninu? Lífskjör? Fjárhagslegt öryggi? Við erum jú öll lifandi. Í hverju fólst þetta fjárhagslega öryggi? Að lífssparnaður margra lá í hlutabréfum - var það "öryggi"? Versnuðu lífskjör okkar? Fá börnin okkar ekki eftir sem áður að læra að lesa, við fáum aðhlynningu þegar við verðum sjúk eða slösumst. Við fáum þjónustu í öllum greinum atvinnulífs og þjónustu sem völ er á í heiminum. Hvað er það sem tekið var frá okkur sem skipti okkur mestu máli?
Var fjölskyldan tekin frá okkur? Var matur og heilsugæsla tekin frá okkur? Hefur skólum verið lokað og við svipt möguleikum til framhaldsmenntunar á hæsta stigi? Nei.
Ó jú, hlutabréfamarkaðurinn hrundi. Fyrra sjónarmið mitt er semsagt: Hurfu okkar helstu gildi og það sem okkur er dýrmætast. Höfum við ekki bara komið nær því sem Kristur vill að við skulum nálgast, hinum æðri gildum. Boðskapur Krists hvetur okkur að flokka það sem er mikilvægt og sinna því umfram allt: Það er kærleikurinn til Guðs og til náungans. Þetta má svo útfæra þannig að (a) við elskum Guð. Við elskum hvort annað (b) og þar hafa kannanir sýnt að flestir setja fjölskyldu og vini efst á listann. Lýðræði og réttur til málfrelsis, réttur til menntunar og aðgangur að læknisþjónustu, ferðafrelsi og jafnrétti. Jú fleira má telja til og listinn verður langur, en svona hefur það sýnt sig að manneskjan "forgangsraðar" og oftast raðast efnisatriðin sem nefnd hafa verið ofarlega en alltaf meðal 10 efstu og mikilvægustu "mannréttinda" okkar. Í síðari flokknum verkar Kristur sem viðmiðun okkar. Hann hefur gefið okkur kærleikann sem helsta áhrifsþáttinn, mannvirðing og réttur af sama meiði og spurningin stendur enn: Hvers höfum við glatað sem skiptir okkur MIKLU máli?
Í starfi mínu í kirkjunni hef ég starfað með fólki sem á enga von. Þetta fólk er borið inn sem lama maðurinn í guðspjallinu til kirkjunnar af vinum. Lama maðurinn er "apatískur" það er að segja ófær um að hreyfa sig eða tala. Hann er "sálrænt máttvana". Oft eru þetta manneskjur sem glatað hafa von, öryggi, réttindum og eru í raun "persona non grata" (náðarlaust fólk). Ekki er það Kristur sem hefur svipt þessa einstaklinga náð, heldur samfélagið. Samfélagið, stjórnvöld hafa afskráð þetta fólk eða gert það "náðarlaust". Oft eru þetta innflytjendur (löglegir/ólöglegir) eða fólk sem komist hefur á kant við lögin og á erfitt með að samlagast samfélagsgerðinni aftur á ný. Bæði vegna eigin skoðana og samfélagsins. Náðarlausir einstaklingar eiga bara eina von, að vera "bornir til Krists". Enginn beygir kné við þeirra hlið, Samverjar samfélagsins eru fáir og ekki sjaldan kirkjunnar fólk verst i hræsni sinni og reyna að kalla til alla sem mögulegt er til að "sjá um einstaklinginn". Sagan um miskunnsama Samverjan fær í hvert sinn nýtt líf þegar einn svona er borinn inn í kirkjuna.
II.
Síðara atriðið: Kirkjan á ekki að vera safnhús fyrir dýrðlinga. Hún á að vera sjúkrahús fyrir syndara. Kristur er úti á Lækjartorgi, Kristur er í Smáralind, Kristur er í þér og í mér! Okkar er bara hleypa honum að, gefa honum rödd og hendur, hlýjan faðm og vera náunga okkar, náungi. Þar er ég kominn að síðara atriðinu; "lífi með Kristi". Lífið með Kristi vaknar í grasrótinni hið innra. Að leyfa sér að "helgast" að byrja nýtt líf, að taka ábyrgð fyrir sjálfum sér (þótt síðar á langri ævi) er að hleypa lífsgildum Krists inn í samfélagið og inn í okkur.
Kristur er miðlægur frá fyrsta andadrætti. Maðurinn samanstendur af líkama, sál og anda. Líkaminn tilheyrir hinu jarðneska, andinn er Guðs gjöf og sálin er bland beggja. Hún er rödd okkar, hvernig við breytum og vilji okkar. Í henni eru draumar okkar, langanir og ótti. Sálin er eins og jurt. Jurt sem þarf ljós, yl og næringu. Sinnum við sálinni vel verðum við hamingjusöm. Umhverfisþættirnir eru þá minna mikilvægir, en það sem verður mikilvægt í stað þeirra eru fyrrnefnd lífsgildi - þættirnir sem við veljum í 10 efstu sætin í forgangsröðun okkar.
Spurningar mínar eru: Getur bágt efnahagsástand orðið til góðs? Forgangsröðum við á ný og heilbrigðari máta? Komumst við nær "lífinu" í kreppu?
25.2.2009 | 10:29
"Græðgin er söm við sig, jafnvel þótt þeir séu gamlir og illa tenntir"
Það er ljótt að heyra og hryggilegt að íslensk stjórnvöld hafi ekki sýnt þann dug að hefja málsókn gegn Bretum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Dugleysið brýtur niður móralinn og tekur frá íslensku þjóðinni það sem hún virkilega þarfnast mest á að halda nú: Samstöðu og von. Íslenska þjóðin er vonlítil nú. Stjórnmálamenn reyna að halda í gamla tímann með málþófi á þingi, nýju sóparnir eru ekki notaðir og flest bendir til að leitast sé við að halda "status quo" í stjórnkerfinu. Nokkrir þingmenn hafa dug og áræðni að gefa sig að endurskipulagningu og hlusta á raddir fólksins, meðan aðrir reyna hvað þeir geta að nota málþóf og flokkaklæki til að halda aftur af umbótafólki. Íslenska þjóðin þurfti virkilega á þessari málsókn að halda.
Það að Gordon Brown og bresk stjórnvöld spörkuðu í okkur liggjandi, er ófyrirgefanlegt, um leið og við vorum sem þjóð svartmáluð sem glæpamenn og óráðsíufólk. Þetta á við um nokkra einstaklinga en EKKI alla þjóðina. Við erum hið besta friðelskandi fólk, þótt auðvitað finnist svartir sauðir inn á milli.
Uppreisn æru og orðstýs var það sem íslenska þjóðin þurfti helst. Kostnaðurinn var metinn á 200 milljónir króna við slíka málsókn. Með það í huga að íbúð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í New York kostaði yfir milljarð króna eru þetta smápeningar. Í Hávamálum er orðstýr og æra metin hæst alls. Þetta hefur ekki breyst. Hvers vegna fékk ekki Ísland, íslensk þjóð að njóta þess að hefja þessa málsókn á hendur Bretum. Var það IMF sem sagði íslensku stjórnvöldum að þau MÆTTU ekki gera það án þess að taka heftarlegum endurgjöldum og refsingum frá þeim illa sjóði.
Allt er þetta of gegnsætt. Bretar og ESB notuðu IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn) til skrúfa enn harðar á Íslendingum þumalskrúfuna, svo hart að Íslendingar áttu enga samningastöðu. Af hverju fengu Íslendingar ekki lánafyrirgreiðslu fyrr en svo seint sem raun ber vitni um? Voru það ekki Bretar og ESB sem vildu knésetja litla Ísland? Það er mat margra fræðimanna, því miður. Bretar völdu sér blóraböggul sem þeir réðu við. Bretar eru hjómið eitt í alþjóða samskiptum, lifa á fornri frægð. "Hátt lætur í tómri tunnu" eins og máltækið segir. Það sannast með Breta. Því hefði það verið hollt Íslendingum og Bretum að farið hefði verið út í málsókn. Margir segja að málið hefði verið auðunnið. Þetta er sárt! Að Bretar með Gordon Brown spörkuðu í liggjandi Ísland, niðurlægðu og kvöldu er lýsandi fyrir þann sem ræðst á minni máttar til að hefja sig á stall.
Ég minnist í þessu sambandi á orð "járnkanslarans" þýska Bismarcks en hann sagði um Ítali sem réðust á frumstæðar þjóðir Afríku í upphafi 20. aldar: "Græðgin er söm við sig, jafnvel þótt þeir séu gamlir og illa tenntir."
![]() |
Hætt við málssókn gegn Bretum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.2.2009 | 20:29
"Og þá var glatt í höllinni..."
Í dag gaf Carl XVI Gústaf Svíakonungur samþykki sitt fyrir trúlofun Viktoríu krónprinsessu og Daníels frá Ockelbo. Ríkisráðið/ríkisstjórnin samþykkti ráðahaginn sömuleiðis. Nú er þetta klappað og klárt. Brúðkaup verður semsagt sumarið 2010. Staður og stund verða ekki ákveðin fyrr en er nær dregur.
Victoria krónprinsessa og Daniel Westling (verðandi prins Daniel, hertogi af Västergötland)
Svíþjóð | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 09:33
Réttlátt krafa Steingríms og krossferð þjóðarinnar
Eftir að hafa heyrt fréttir af eign og kaupum íslenskra "fjármálamanna" á milljarðakróna íbúðum á bestu stöðum í Lundúnum, New York, skemmtisnekkjum, verslunum, uppkaupum á heilu sumarbústaðalöndunum, eyjum og laxveiðiám hér og þar, hér heima og erlendis, vakna vissar grunsemdir um að ekki hafi nú allt farið rétt fram. Milljarðakróna íbúð í New York og Lundúnum? Er þetta ekki einhver bilun?
Ég á litla íbúð í austurbænum í Reykjavík. Hún var sennilega um 16 milljóna króna virði fyrir um ári síðan. Ég á bara lítinn hluta í henni á móti íbúðalánasjóði og svo lífeyrissjóðinum mínum. Það mun taka mig allt lífið, gefið að ég verði sæmilega gamall, að borga íbúðina þannig að ég verði skuldlaus. Rétt eins og staðan er núna, sé ég reyndar fram á að mér muni vart endast ævin til að borga upp íbúðina. Á meðan kaupa í flottræfilshætti sínum aðilar úr "fjármálaheimi Íslands" milljarðakróna íbúðir. Og borga á borðið.
Ég er ekki súr og ekki bitur, langt í frá. En eftir að hafa sagt það svo oft áður, og löngu fyrir efnahagshrunið, að þetta stæðist ekki, stæðist ekki helstu viðurkennd lögmál - svíður að þetta fólk skuli komast upp með svona óheilbrigða fjármálastefnu sem kostað hefur þjóðina æruna.
Ég styð Steingrím Sigfússon heilshugar í aðgerðum hans. Öflum upplýsinga um hvað varð af auð Íslendinga og krefjumst endurgreiðslu og nauðungarsölu á verðmætum auðmanna. Hann er okkar Sigurður Fáfnisbani. Gullinu verðum við að ná undan drekanum Fáfni (auðmönnunum sem leika okkur svo hart).
![]() |
Skattaskjól skoðuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2009 | 18:53
Kistill Pandóru
Af hægagangi þeim sem skyndilega virðist hafa heltekið Alþingi, þar sem áform voru um að setja frumvarp til laga um Seðlabanka á dagskrá, virðist sem ljósskímu hafi verið hleypt í "skjalaskápinn". Nú virðist sem allir óttist að opna kistil Pandóru.
Þetta eru ljótir tímar þar sem heljargreip er haldið um sannfæringu, trúmennsku, lýðræði, sannleika og drengskap!
*** Kistill Pandóru ***
![]() |
Lausn ekki fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2009 | 15:47
John Edgar Hoover
Í bloggi sínu lætur Haraldur Bjarnason að því leiða að framsóknarmenn óttist hugsanlegar uppljóstranir Davíðs Oddssonar, eins bankastjóra Seðlabanka Íslands, og vilji því fresta vinnslu frumvarps til laga um Seðlabankann. Það er sami aumingjaskapurinn hjá Framsóknarflokki. Kannski sátu þeir of lengi við fótaskemil Davíðs í forsætisráðherratíð hans, hver veit. Kannski voru bitlingarnir of margir til að hægt væri að fela þá með góðu móti og þetta veit Davíð kannski.
J E Hoover (mynd) D Oddson (mynd)
Ég minnist þess sem sagt var um einn fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI, einn John Edgar Hoover. Um hann var sagt að hann væri sá Bandaríkjamaður sem ENGINN vildi atast í eða vekja illsku hjá, því hann ætti í sínum fórum leyniupplýsingar um alla helstu ráðamenn ríkisins, fyrrum ráðamenn og verðandi ráðamenn - og ekki nóg með það, heldur var í upplýsingasafni hans fjöldinn allur af útlendum ráðamönnum á öllum sviðum. John Edgar Hoover var semsagt "ósnertanlegur". Hann vissi allt, ALLT um fjármál, stjórnarathafnir, átti meðal annars gott safn óbirtra ljósmynda og var þekkingarbrunnur um allt það sem ekki var almennt vitað. Hann mun ekki hafa hikað við að opna skjalaskápa sína þegar einhver tróð honum um tær.
Mér finnst þetta með "upplýsingarnar hans Davíðs" bera vissan keim af skjalaskápshótunum téðs forstjóra FBI, ef marka má orð Haraldar bloggara Bjarnasonar. Er þessu svo illa komið hjá okkur á Íslandi að þetta geti verið satt? Að fyrrverandi stjórnmálamenn sem ekki geta endanlega slitið sig frá fyrri störfum haldi "skjalaskáp" heima? Varla. Eða...
_____________
Hér er bloggið hans Haraldar Bjarnasonar: http://hallibjarna.blog.is/blog/hallibjarna/entry/811412/
![]() |
Skynsamlegt að bíða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.8.2009 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2009 | 16:51
Afleiðingarnar efnahagshrunsins - í Svíþjóð
Í gær komu vondu fréttirnar. SAAB (Svenska automobile AB) fyrirtækið er farið á hausinn. Ríkisvaldið mun ekki koma því til aðstoðar. Þó hefur það fengið greiðslustöðvun. Hefur SAAB fengið tækifæri að sýna fram á hvort fyrirtækið eigi framtíðarvon, gengum endurskipulagningu eða/og endurfjármögnun. Bara flestir halda að sér höndum og vilja ekki kasta peningunum sínum út um gluggann. "SAAB getur ekki greitt neitt af skuldum sínum" segir Nils-Olof Ollevik fréttamaður Svenska Dagbladet " fyrirtækið er gjaldþrota, því er öllu lokið, endanlega, fyrir alla tíð". Maud Olofsson atvinnumálaráðherra Svía telur ekki vænlegt að reyna bjarga SAAB. Fyrirtækið hafi náð botninum í öllum skilningi og aðstæður í heiminum lúti bara að einu: Endalokunum er náð hjá þessu gamla gróna sænskfædda fyrirtæki. Lán frá sænska ríkinu eða frá ESB er ekki kostur í stöðunni, segir Maud. Eftir að GM (General Motors) keypi SAAB með gróðavon í huga fyrir nokkrum árum. En síðan hefur bilaiðnaðurinn verið á hægri niðurleið og hagkerfið sömuleiðis. GM losaði sig við SAAB og ýtti því frá sér núna fyrir skömmu, í von um að bjarga sjálfu sér.
Allt þetta verður svo til að snjóboltaáhrifin fara láta verða vart við sig. Eftir að heildsalarnir fara á hausinn, fara smávörusalarnir sömuleiðis að kveinka sér og þeir sem aðeins hafa þjónustað SAAB munu fara sömu leið. Fjöldauppsagnir eru daglegur raunveruleiki í Svíþjóð og út um allan heim.
SvD: Laugard. 21. feb. 2009.
![]() |
Evrópuríki funda um kreppuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svíþjóð | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.2.2009 | 11:10
Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér...
Orð Lúkasarguðspjalls "'Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér', en sérð þá eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns." [Lúk. 6:42]
Fréttir um illsku stjórnvalda í Íran eru næstum því daglegt brauð í fréttaflutningi fréttastofa sem hafa eitthvað með Vesturlönd að gera. Mikið er til í því sem þar er ritað og ógnarverkin ljót og ill. Mannvonskunni virðast stundum engin takmörk sett og sjaldan eða aldrei vantar á hugmyndaflug illvirkjanna þegar kemur að nýjum aðferðum til pyndinga.
Allt frá því er Kóraninn var fullskrifaður og færður í eina bók, lesinn og ekki síst túlkaður hafa verið framinn illvirki og dómsmorð í nafni trúarinnar. Íslam er ekki eina trúarhreyfingin þar sem meðal trúaðra tíðkast aftökur í nafni trúarinnar eða túlkana á trúartextum. Kristin miðaldakirkja var ekki síður dugleg við efnið. Galdrabrennur, dómsmorð - að ógleymdum hinum alræmda Heilaga Rannsóknarrétti. Í Bandaríkjunum voru ekki síður ofsóknir og þá af reformertum nýbúum (landnemum) mót frumbyggjum og síðan mót sínum eigin.
_________________
Ég vil nefna að á síðasta ári voru 37 manns teknir af lífi skv. dómsniðurstöðu í Bandaríska dómskerfinu. Flestir höfðu beðið á dauðadeildin svokölluðu í von og ótta um náðun, jafnvel á síðustu stundu. Þar af voru 36 teknir af lífi með "dauðasprautu" og 1 settur í rafmagnsstólinn. Frá upphafi (frá þeim tíma þá dauðarefsingar voru leyfðar hafa í Bandaríkjunum:
155 verið teknir af lífi í rafmagnsstólnum, 2 verið skotnir af aftökusveit, 11 hafa verið settir í gasklefa og 3 hengdir og 965 fengið "dauðasprautuna". Í ár hafa þegar 14 verið teknir af lífi í Bandaríkjunum, flestir eða 8 í Texas.
Orð Lúkasarguðspjalls "'Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér', en sérð þá eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns." [Lúk. 6:42]
![]() |
46 aftökur í Íran á árinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)