12.12.2008 | 09:24
Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það
Ég var að lesa blogg Ólínu Þorvarðardóttur ttp://olinathorv.blog.is/blog/olinathorv/entry/741256/ og fannst ég knúinn að leggja nokkur orð hér inn á mitt blogg. Ólína hefur á réttu að standa. Það versta er að Íslendingar eru ekki vanir að segja frá þegar þeim misbýður. Ástæðan er hein og einföld: Allir eru spilltir. Sama hvert litið er, allir reyna að svíkja út peninga. Bankarnir gera það löglega en siðlaust, einstaklingar ólöglega því þeir eiga ekki kost á öðru. Þannig er Ísland. Það er búið að eyðileggja sýn Íslendingsins á heiðarleika. Hvað herrarnir hafast að, hinir halda sér leyfist það! Með fordæmi stjórnvalda hefur þjóðin séð að það er ekki til neins að vera heiðarleg.
Sýndarsiðfræði stjórnmálamanna og háttarlag i fjölmiðlum þegar þeir hálfkæfðir í bindishnútunum sínum reyna að segja eitthvað "formlegt" annað hvort á slæmri kanselísku eða svo vitstolnu málfari að engum skilst orð eða meining af því sem þeir segja. Þessu fólk lærist aldrei að ljúga að þjóðinni. Lygin er svo gegnsæ og þjóðinni misbýður meir og meir þar til þeirri stund er náð að fólkinu, þjóðinni stendur hreinlega á sama. Hjónin sem leikið hafa séð með kennitölur og verið í fyrirtækjaleik eru kannski holdgervingar þess samfélags sem stjórnmálamenn hafa unnið hvað ötulast að að skapa.
Ráðumst að grunni vandans ekki að afleiðingunum bara. Slökkvum eldinn, en komum í veg fyrir frekari bruna!
![]() |
Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.12.2008 | 19:12
11 ár
Ótrúlegt hvað tíminn flýgur! Elsku góða dóttir mín hún Magdalena á afmæli í dag. Hún fæddist á Heilbrigðsstofun Austurlands á Egilsstöðum þann 9. desember 1997, tæplega tveimur vikum eftir að ég hafði verið settur prestur í Valþjófsstaðarprestakalli. Við vorum nýflutt austur á Hérað og bjuggum í Fellabæ. Þetta voru tímar mikilla breytinga í lífi okkar hjóna. Flutningur, breyting á störfum okkar beggja, ég nývígður prestur, konan mín í fæðingarorlofi, fyrsta barn, fjölskyldur okkar hinum megin á landinu, bágur fjárhagur - jú þetta voru tímar mikilla sviptinga. Stutt var í fyrstu jarðarförina mína og enn styttra í fyrstu skírnina. Eldskírn fyrir mig og mína.
Í öllu þessu fæddist litla jólastjarnan okkar; Magdalena. Hún var óvær og var magaveik fyrstu mánuðina - en ljós á myrkum stuttum vetrardögum. Rúmum mánuði síðar skírði mamma hennar hana í Áskirkju í Fellum við guðsþjónustu hjá pabba sínum.
Ég hringdi í hana Magdalenu mína núna í dag og óskaði frumburði mínum til hamingju með daginn. Það er skrýtið að vera svo fjarri á stóru dögunum í lífi barnanna sinna, en svona er lífið.
Til hamingju með daginn Magdalena mín! @--,-`-------
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook
9.12.2008 | 07:51
Orð umheimsins um Ísland
Ég var að bíða eftir að fá bækur afhendar á bókasafni Stokkhólmsháskóla þegar fyrrum kennari minn hér, prófessor við listfræðideildina kemur til mín.
Hún heilsar upp á mig og kynnir manninn sinn sem er prófessor í alþjóðarétti við sama skóla. Við spjöllum stutt og síðan spyr hún mig hvernig þetta sé eiginlega með Ísland núna og hvort allt sé ekki að verða betra núna? "Nei" svaraði ég, "allt er við sama þar. Bágt ástand og óskemmtilegt." "Þetta er með ólíkindum" bætir hún við. Þetta hlýtur að fara verða betra þar sem Ísland hefur fengið fyrirgreiðslu víða og síðan hefur nú líklega farið fram mikil uppstokkun?" Ég gaf lítið út á það, en þá spyr hann (maðurinn hennar): "Viltu meina að það hafi ekki verið nein mannaskipti né heldur uppstokkun í yfirstjórn ríkis og efnahagslífs?" "Nei" svara ég. "Engin. Yfirmennirnir vilja ekki fara." "Vilja ekki fara" spurði hann, "hvað áttu við? 'Vilja ekki fara' ?" "Nei, sagði ég!" "Þá er viðbúið að allt endurtaki sig þegar þeir eru búnir með fjármagnið sem þeir hafa fengið frá ríkjum og stofnunum!" sagði prófessorinn og hristi höfuðið. "Já, það er viðbúið" svaraði ég "og í raun það sem fólkið bíður eftir".
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.12.2008 | 11:08
Kirkja og vísindi - heiladauði
Samkvæmt gamalli kirkjulegri hefð hefur guðspjallamaðurinn Lúkas einatt verið umræddur sem læknirinn Lúkas. Eitthvað er sennilega til í þessu, því þessi söguhefð er fjarska gömul og lífseig. Lúkas er talinn vera höfundur/ritstjóri samnefnds guðspjalls, Lúkasarguðspjalls og Postulasögunnar. Margt styður þessa kenningu um höfund þessara rita og að Lúkas hafi verið kunnugur í lækningaaðferðum síns tíma. Enginn myndi kalla hann lækni í dag, hefðum við tækifæri á að sjá hvernig hann gekk til verka. Margt hefur breyst síðan hann gekk á jarðarkringlunni - ekki minnst læknavísindin.
Ástæða þess að ég sest nú niður og skrifa þessi fátæklegu orð mín hér í dag er eftirminnilegt samtal sem ég átti fyrir nokkru um líknarmorð (euthanasia). Við sátum nokkur saman og spjölluðum vandamálin sem standa fyrir dyrum allra trúarhreyfinga, þeirra sem ekki lifa í fullkomni afneitun á heiminum og því sem hann gefur. Við vorum fjögur sem sötruðum kaffi og borðuðum lussekatter (saffranssnúða). Tvö af okkur vorum voru mótmælendur af Lúterskum grunni, ein rómverskur katólikki og einn utan trúfélaga.
Vangaveltur okkar fjölluðu um virðinguna fyrir lífinu. Mannlega virðingu og viðhald lífs. Umræðurnar voru heitar á köflum, en sameiginlegur vilji okkar til að finna lausn á vandamálinu án neinna kreddukasta var yfirsterkari tilfinningahitanum.
Umræðan fór frá líknardrápi til skilgreiningarinnar um "dauða" þ.e.a.s. hvað sé endanlegur dauði einnar manneskju. Við urðum öll sátt um að heiladauði, væri líklega hugtakið sem gæfi fyllilegasta stöðvun starfsemi líkamans sem lífheildar. Öndun og hjartsláttur eru forsendur þess að líkaminn fái til sín næringu og súrefni. Þegar þessum þáttum er ekki að dreifa, deyja frumur og líkaminn tapar skjótt eiginleikum sínum og lífi. Það hefur verið sýnt fram á að þótt engin mælanleg starfsemi sé til lengur í heila einstaklings, er hægt með öndunarvél að framlengja líf líffæra.
Með þessari aðferð, sem lengi hefur verið notuð, hefur gefist tækifæri til að sýna fram á að samspil heila og líkama er rofið. "Heiladauði" hefur verið mikið notað hugtak af læknastétt og oft í formi hálfgerðs "lausnarorðs". Hér á ég við að í vitund fólks er orðið "heiladauði" merkingarberandi fyrir "endalok lífs" eða "endalok NN eins og hún eða hann var "og við þekktum hann/hana öll".
Heiladauði er ekki samheiti dauða. Heiladauði er ekki orð sem þýðir ekki dauði, eða er jafngildi dauða, heldur ERdauði. Heiladauði er því ekki "kóma" eða eins og það nefnist á ensku coma - heldur fullkominn heiladauði. Fólk getur vaknað út kóma, enda þá er fyrir hendi hluti eða fullkomin heilastarfsemi sem af einhverjum orsökum hefur verið lömuð, en mælanleg/sýnileg. Kóma hefur í grófum dráttum verið skipt í tvö stig: PVS (Persistent Vegitative State) og MCS (Minimally Conscious State).
Hér er ekki verið að búa til "enn eina dauðaskilgreiningu". Hér er bara verið að gefa hinu þekkta nafn. Fólk getur dáið af ýmsum orsökum. Fólk getur "skilið við" vegna sjúkdóms, hjartaáfalla, slysa og svo framvegis. Sumum er "bjargað til baka", öðrum ekki. Sumir komast fljótt eða eftir lengri tíma úr sínu alvarlega veikindaástandi meðan aðrir deyja. Hér gerist að fólk getur fengið það sem kallast heiladauði; lok starfsemi heila. Þetta er óafturkræft ástand. Líkamanum er hægt að halda gangandi, en hugsun og personuleiki. Þessi dauði einstaklingsins er endanlegur.
Gamlar kreddur sem við þekkjum frá tímum Nikolausar Kóperníkusar [1473 - 1543] og Galíleos Galílei [1564-1642] um að sólin hefði verið miðja sólkerfisins voru jafn fjarstæðukenndar á sínum tíma eins og álit og hugmyndir fólks í dag um að hjartsláttur og púls sé til sönnunar fyrir því að sálin sé enn til staðar í einstaklingum (jafnvel þótt engin heilastarfsemi sé fyrir hendi). Hversu margir hafa ekki í sögu Ísland (og heimsins) verið kviksettir þar sem engin púls var mælanlegur og hjartsláttur sömuleiðis? Flest þekkjum við einhverjar sögur þar að lútandi. Hjartað stýrist af heilanum og öndunin með. Því er það þegar heilinn deyr að sál og líkami skiljast að og líf fjarar út.
Ágústínus kirkjufaðir, sem sannarlega vildi ekki meina að hugur og sál væru tengd heilanum, sagði "að þegar starfsemi heilans, sem stýrir líkamanum lýkur, hverfur sálin frá líkamanum. Því þegar starfsemi heilans, sem er svo að segja í þjónustu sálarinnar, hættir vegna einhvers galla eða röskunar af einhverju tagi, er það eins og sálin sé ekki lengur til staðar og hefur farið burt. [De Gen. ad lit., LVII, kap. 19; PL 34, 365]. Orð Ágústínusar eru gömul en styðja frá fornu fari þessa hugsun um brotthvarf persónunnar. Hann hafði ekki sömu tæki og við í dag til að skera úr um hvort heilastarfsemi væri fyrir hendi, en samt gefur okkur hugmynd um hversu lengi þessar pælingar hafa verið í gangi - og eflaust svo lengi sem mannleg vitund hefur verið fyrir hendi.
Jæja, við sátum og ræddum þessi mál fram og til baka. Ég vissi að einhver hafði reynslu af því að náinn fjölskyldumeðlimur hafði dáið heiladauða. Síðar fengum við að vita að hafa verið í öndunarvél í 3 mánuði hafi þessi ættingi verið aftengdur og í kjölfarið hafi öll líkamleg starfsemi hætt. Það kom á óvart að það var einmitt sú manneskja sem var mest "pró" eða jákvæð fyrir "heiladauðaskilgreiningunni".
Við sem sátum þarna og drukkum ofmarga kaffibolla og borðuðum of margar piparkökur og lussekatter komum þennan dag úr ólíkum áttum, félagslega, trúarlega, hvað varðar fjölskyldustöðu og lífssýn. Síðan hafa leiðir okkar komið saman nokkur skipti. Öll úr mismundi áttum, leidd af sannleiksþrá og að geta talað ábyrgt og yfirvegað um spurningar lífsins. Öll ákváðum við að gefa rödd hvors annars rými og að vera tekin til álita. Ekkert af okkur ákvað að koma aftur eða að við mæltum okkur mót, en við höfum hist síðan dregin af virðingunni fyrir hvort öðrum, viljanum að læra eitthvað nýtt og að vera náungi náunga okkar.
Trú og hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.12.2008 | 20:38
Annar sunnudagur í aðventu - hugleiðing
"Kom þú, kom, vor Immanúel!"
Ótti er einn af streituvöldum mannkyns. Það er skrýtið hvað óttinn er oft ógrundaður. Óvissa getur valdið ótta. Óvissa um hvort við stöndum okkur í starfinu, hjónabandinu, félagsskapnum, vinahópnum, lífsgæðakapphlaupinu eða því öðru sem okkur er mikilvægt - veldur streitu.
Einu sinni var lítil mús. Hún þjáðist af ofsahræðslu vegna katta almennt. Einn dag sat hún og bað til Guðs. "Kæri herra Guð, gerð mig að ketti svo ég þurfi aldrei að óttast þá meir!" Og bæn músarinnar var svarað, hún var nú orðin að gulbröndóttum ketti. Kötturinn var sjálfur logandi hræddur við hunda. Einn dag bað músin: "Kæri herra Guð, gerðu mig að stórum hundi, svo ég þurfi aldrei að óttast hunda" og þegar í stað breyttist kötturinn í stóran grimmúðlegan hund. Hundurinn vappaði um glaður þar til hann hitti ljón. Hann varð ofsahræddur og bað hátt og í hljóði til Guðs: "Guð, ger mig að stóru grimmu ljóni, svo ég aldrei þurfi að óttast annað ljón." Í sömu svipan breyttist hundurinn stóri í ljón, grimmúðlegt og hættulegt. "Nú er ég laus við allar áhyggjur" hugsaði ljónið. Á svipuðum slóðum var veiðimaður á ferð og hafði hann komið auga á ljónið og hafði riffil með sér. Þá er ljónið sá að hann hlóð riffilinn, bað það innilega til Guðs: "Guð, ger mig að manneskju, allir óttast þær. Þá mun ég loksins finnast ég trygg." Á sömu stund breyttist ljónið í manneskju. Manneskjan fór trygg í lun og full af sjálfsöryggi heim. Þetta hefur verið stór dagur, líklega best að fara heim og hvíla sig, hugsaði manneskjan. Rétt í því þegar manneskjan hafði opnað dyrnar að húsinu sínu og stigið inn í eldhúsið, skaust lítil mús yfir gólfið. Manneskjan æpti, hoppaði upp á stól í ofsahræðslu og hristist af skelfingu.
Trúðu á Guð, treystu þeim sem kemur. Brjóttu vítahringinn, brjóttu af þér upphugsaðar hindranir. Treystu Guði og þú hefur ekkert að óttast frekar. Hann er, var og verður uppspretta sannleika, friðar, kærleika, jafnréttis, fyrirgefningar og umburðarlyndis. Fylktu þér að baki honum og þú munt aldrei óttast meir!
Trú og hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.12.2008 | 12:33
Nú er ég kjaftstopp!
Lesið þetta og veltið fyrir ykkur hvort allt sé í lagi?
http://visir.is/article/20081204/VIDSKIPTI06/230143719
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.12.2008 | 12:10
Fyrirmyndar stjórnendur?
Og landsliðsþjálfarinn hrópar af hliðarlínunni:
Strákar! Tala saman!
![]() |
Hitti Davíð ekki í tæpt ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 11:07
Landráð
I X. kafla almennra hegningarlaga (lög 40:1940) er fjallað um landráð. Þetta er áhugaverð klausúla sem er gaman að skoða. Hegningarlögin eru afskaplega tætt af viðbótum, ákvæðum sem komið hafa síðar, milliríkjasamningum og ákvæðum þeirra og slíku. En meginstofn laganna er enn að með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða. Fer það nú eftir því hvernig maður les lagatextana hvernig þeir túlkas hverju sinni og eflaust hvar í stjórnmálaflokk sá er les er settur.
Nú er ég óbundinn neinum stjórnmálaflokki. Ég er frjáls að mínum skoðunum og nýt þess að kosningar eru bæði lýðræðislegar og leynilegar. Þannig getur hver og einn greitt atkvæði eftir samvisku sinni. Krossað við það stjórnmálaafl sem hann telur að best geti þjónað fólki og landi hin hefðbundnu fjögur árin.
Lögin er því til þess fallin að hafa hemil á fólki, tryggja öryggi og velferð okkar. Þegar lögin eru brotin, er refsað eftir þeim. Við þekkjum lögin, við þekkjum í hverju refsingarnar eru faldar - en umfram allt hvað samfélaginu er fyrir bestu. Því samfélagi sem við viljum tilheyra og eigum rætur okkar í. Einmitt þetta er áhugavert! Það er þetta samfélag sem við skiljum. Sjaldnast þurfum við að kíkja í lagasafn Alþingis til að vita hvort við megum þetta eða hitt. Þessi vitneskja er einfaldlega samgróin okkur og samfélagsmynd okkar. Við vitum oftast hvað við megum ganga langt.
Að þjóna landi og þjóð á ekki að vera skylda, heldur okkur ljúfara en skylt. Því vaknar mín spurning um forgangsröðun og drengskap þegar ég sé fréttir um bankamál. Hvernig má það vera að lög um bankamál og reglur þar að lútandi eru settar hagsmunum ríkisins ofar. Ég rakst á þessa grein ofantilgreindra laga:
91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem falsar, ónýtir eða kemur undan skjali eða öðrum munum, sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.
Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri.
Mér varð hugsað til þeirra "bankaleyndar" sem oft hefur verið nefnd nú af frammámönnum landsins. Embættismönnum sem starfa fyrir ríki og þjóð. Hver er sú bankaleynd sem er hagsmunum ríkisins æðri? Má einfaldlega skýla sér bak við bankaleynd þegar þjóðarhagsmunir eru í tafli og vitneskja um eitthvað sem er mikilvægt á neyðartímum fyrir þjóðina að vita, er haldið aftur?
Nema .... allt sé náttúrlega bara hreinn uppspuni.
Ég tel að það að kasta fram orðunum "bankaleynd", "leynisamningum" eða slíkum orðum, eru til þess fallin að "auka vægi" einstaklinga í hræðsluáróðursskyni; að þeir sem hafi uppi þessi orð verði stikkfríir vegna "þeirra upplýsinga" sem þeir búa yfir? Ég hreinlega veit ekki. Þetta er sú tilfinning sem vissulega kemur upp þegar við heyrum vikulega um þessa"leynd".
![]() |
Davíð ber fyrir sig bankaleynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.12.2008 | 11:15
Ekki einu sinni Davíð getur stolið jólunum! Jólin mín eru heilög!
Margt kann að breytast, jú víst er það svo. Það er aðlögunarhæfni mannsins sem hefur gert honum mögulegt að þreyja svo lengi.
Hvað þarf meira en gleði í hjarta, kærleika til allra manna og frið með þjóðum? Jólin eru svo frábær að jafnvel þótt alla pakka vanti og lítið sé í buddunni er samt hægt að halda gleðileg jól, heilög og betri en öll önnur jól.
Tröllið sem stal jólunum í bókinni hefur engu að stela lengur. Gleðin yfir jólum er sannheilög og þótt allir alþingismenn leggist á eitt saman með fjármálamönnum á landinu að eyðileggja fyrir okkur hin sönnu gleði er það nú svo að engum tekst að taka frá okkur jólahátíðina. Hún er ekki af þessum heimi, en samt í heiminum.
![]() |
Kreppan hefur áhrif á jólahald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.11.2008 | 10:26
Grýla
... hjálpi mér hamingjan. Er fólk alveg orðið snarvitlaust. Ég segi það enn og afur: Grýla er herfileg og ljót - það er ekki í hennar valdi að "prýða" eitt eða neitt. Getur fólk ekki reynt að koma betur fyrir sig orði?
Hverjum dettur svo í hug að hengja Grýlu á jólatréð?
![]() |
Grýla prýðir Óslóartréð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.11.2008 | 23:11
Fyrsti sunnudagur í aðventu - hugleiðing
Í höfuðborg Austurríkis hinni fallegu Vínarborg, stendur fjarska látlaus en áhugaverð kirkja, Kapusínkirkjan. Hún hefur svo að segja komist á ferðamannakortið vegna þess að í henni eru grafir keisara Habsborgaraættarinnar - allavega flestra þeirra sem féllu frá eftir 1618. Fyrir þá sem hafa ryðgað í mannkynssögunni sinni þá ríkti Habsborgaraættin yfir Heilaga Austrómverska keisaradæminu frá upphafi 13. aldar þar til 1918 eða þá er ríkið hafði skroppið saman í það sem rúmlega taldi Ungverjaland og Austurríki. Og af hverju vel ég nú að tala um grafhvelfingar keisara nú á nýársdegi kirkjunnar, fyrsta degi í jólaföstu? Ef til vill finnst einhverjum þetta vera hálf kaldranalegt þegar fólk á helst að vera glatt og fagna nýju kirkjuári. En við ársskipti er viðeigandi að vera áminnt um hvað það er sem RAUNVERULEGA skiptir máli. Það er beinlínis hollt að líta sér nær og hugsa um þau landamæri sem girða af jarðneskt líf okkar. Það er okkur þá heillavænlegt að líta á "auðæfi" okkar, þau auðæfi sem þekkja engin landamæri, þau sönnu auðæfi sem við tökum með okkur þegar veröldin dregur sín landamæri. Þau auðæfi sem hvorki mölur eða ryð fá eytt.
Þegar einhver af keisurum (eða keisaraynjum) hinnar gömlu ættar Habsborgaranna lést fór fram sálumessa yfir/fyrir þeim látna i miðborg Vínarborgar. Eftir að henni lauk hófst gríðarleg líkfylgd frá þeirri kirkju þvert yfir borgina til Kapúsínkirkjunnar, þar sem viðkomandi átti að fá sinn hinsta jarðneska hvílustað. Þegar komið var að kirkjudyrunum með kistu keisarans var knúið þrisvar á kirkjudyrnar. Prestur svaraði bak luktra dyra: "Hver er þar?" "Það er hans postullega hátign, keisarinn" var svarað að bragði utan kirkjudyranna. Presturinn svaraði þá: "Ég þekki hann ekki." Aftur var knúið dyra og presturinn spurði á sömu leið sem fyrr "hver er þar?" "Það er keisarinn" var svarað þegar í stað. "Ég þekki hann ekki" svaraði presturinn. Þriðja sinni var barið þrisvar sinnum á dyr Kapúsínkirkjunnar. Það er svarað inni í frá kirkjunni "hver er þar?" Eftir stutta stund er svarað: "Það er iðrandi syndari, bróðir þinn". Dyrunum var þá lokið upp og presturinn sagði: "Kom inn bróðir".
Þetta leikræna ritúal minnir okkur á að ferðin sú sem við öll verðum einn dag að leggja upp í, er ferðin frá hroka og yfirlæti til auðmýktar og látleysis. Ferðin frá auðæfasöfnun þessa heims til söfnun auðæfa eilífa lífsins. Guð er áhugasamari um það sem við gerum, en um það sem við segjum. Orðin tóm og engin verk eru sem sláturfórn og brennifórn, rétt eins og segir í Davíðsálmi 51. Hjartans bæn sem breytir okkur; hvernig við hugsum og hvernig við breytum - er bæn sem Guð hefur heyrt og svarað. Hvers virði er bæn án hjarta? Hvers virði er hugsun án athafna? Já, hugsunin verður áfram bara hugsun, hugmynd - en ekkert meira.
Hinir framliðnu af húsi austurísku keisarafjölskyldunnar var veitt aðgengi að grafarkirkjunni, EF þeir komu fram sem aumir syndarar og viðurkenndu syndir sínar. Jafnvel þótt sjálft ritúalið væri táknrænt , var gildi athafnarinnar gífurlegt fyrir tilkall ættarinnar til krúnunnar, því að baki orðum rítúalsins bjó djúp guðfræðileg merking: Ef einhver vill vera mestur meðal annarra, verður hann að verða hinn minnsti og allra þjónn (sbr. Mark. 9:35).
Dagarnir fyrir fyrsta sunnudag í jólaföstu/aðventu eru svolítið dimmir. Drungi þeirra getur verið þyngjandi fyrir okkur mannfólkið. En nú þegar nýársdagur kirkjunnar, er nýtt kirkjuár hefst á fyrsta degi aðventu, er rétt að horfa bæði til baka og fram á við. Hér á ekki við að lifa í depurð yfir því sem ekki var gert og hvers við hefðum viljað koma í framkvæmd. Margt verður ekki alltaf eins og við hefðum helst á kosið. Rétt er því á fyrsta degi nýs kirkjuárs að horfa fram á við, sjá hvaða tækifæri bíða eftir að við sýnum þeim athygli og áhuga. Við höfum 365 daga fram fyrir okkur sem allir eru fylltir með áhugaverðum og spennandi viðfangsefnum, verkefnum sem bíða okkar sem kristinna einstaklinga. Þetta er eins og ratleikur þar sem ein vísbending bendir á aðra og þekking okkar eykst og áhugi. Þannig fá dagarnir líf og yndi okkar af þeim eykst til muna.
Gleðilegt nýtt kirkjuár!
Trú og hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.11.2008 | 16:28
Minningarmörk i Hólavallagarði
Mér finnst rétt svona í tilefni þess að 170 ár eru síðan vökukona Hólavallagarðs Guðrún Oddsdóttir, amtmanns Stefáns Stefánssonar, var grafin í garðinum og hann þar með helgaður framtíðar hlutverki; sínu að veita Reykvíkingum hinsta jarðneska hvílustað - að minna á frábæra bók Björns Th. Björnssonar listfræðings Minningarmörk í Hólavallagarði. Bókin kom út hjá Máli og menningu árið 1988. Bókin er prýdd mörgum ljósmyndum og teikningum.
Endilega kynnið ykkur þessa frábæru bók Björns Th.
![]() |
Kirkjugarðurinn við Suðurgötu 170 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 12:08
Óveður og óveður, ekki sami hluturinn
Seint á hverju hausti er sendur inn á öll heimili í Svíþjóð bæklingur frá sænsku vegagerðinni. Þetta er bæklingur með myndum og áhugaverðum fyrirsögnum, en innihaldið er einatt hið sama: "Þetta hvíta sem kemur úr loftinu: það heitir snjór og árstíðin heitir vetur" ... síðan er á fjarska barnvænan hátt fjallað um að snjór geti skapað hálku og svo þegar snjór og frost fari saman sé voðinn vís - svo ekki sé talað um þegar svo fer að hlýna aftur og allt verður blautt og slabb út um allt.
Jafnvel þótt farið sé gersamlega í undirstöðuatriði þessarar árstíðar þ.e.a.s. komandi vetrar virðist fólk alltaf jafn óviðbúið. Fólk asnast til að keyra um á verulega slitnum Yul Brynnerum (fyrir þá sem muna eftir honum) ekur hratt og af mikilli vankunnáttu. Svo lendir fólk í raðárekstrum og oft verða mannskæð slys og enginn skilur af hverju!
Í morgun var svo hellingur af fólki sem stóð fyrir utan strætisvagnabiðskýlið framan við húsið mitt. Flestir voru grautfúlir og argir út í strætisvagnsbílstjórann fyrir að það hafði snjóað í nótt og skaflar út um allt! Hvað er þetta með fólk? Og aumingja bílstjórinn sem reyndi að aka varlega og ausa ekki snjó yfir fólk og farþegum heilum á áfangastað!
Hvað er það sem fólk skilur ekki?
![]() |
Óveður í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2008 | 18:47
Dómsunnudagurinn
Það er létt að dæma. En er jafn létt að dæma rétt? Hvaða dóm óttumst við mest og hvernig er lífið eftir þann dóm, ef líf skal kalla? Hvernig er að vera dæmdur að ósekju? Dómshugsanir voru aðalþema texta guðsþjónustunnar í dag í kirkjunni.
Hinn síðasti dómur, dómur allra dóma. Dómuinn sá hinn endanlegi var þema dagsins í dag. Dómur Guðs yfir sköpuninni. Í dag er nefnilega skv. sænsku kirkjudagatali hinn svokallaði "dómsunnudagur" - síðasti dagur kirkjuársins. Næsta sunnudag er 1. i aðventu/jólaföstu og þar með nýársdagur kirkjunnar. Þessi dagur hefur svo nöturlegt þema (dómurinn) því okkur er gert að horfa um öxl og læra af því sem betur mátti fara, en síðan næsta sunnudag að halda fram í bjartari framtíð. Um það ræddi ræðumaður dagsins sem talaði í guðsþjónustunni. Ég sá um sjálfa messugjörðina.
Jæja, best að fara hvíla sig eftir langan dag! Góða nótt hrelldi heimur!
Trú og hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.11.2008 | 21:26
Messa heilagrar Sesselju - 22. nóvember
Í kvöld ætla ég að venju að setjast niður stinga geisladiski í DVD-spilarann og hlusta á Messu heilagrar Sesselju eftir Joseph Haydn. Þetta hef ég gert nú í a.m.k. 8 ár. Heilög Sesselja er að gamalli kirkjuhefð verndardýrðlingur tónlistarinnar í kirkjunni. Minningardagur þessa dýrðlings er 22. nóvember er sömuleiðis afmælisdagur minn. Mér finnst þetta passa svo vel því kirkjutónlist er mér hugleikin og kær.
Hef þetta stutt blogg í kvöld - því ég þarf að undirbúa messu fyrir morgundaginn. :) Góða nótt hrelldi heimur!
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.11.2008 | 10:13
Hvaða lausn er í því að banna vændi?
Margar þjóðir hafa nú tekið til við að banna vændi með lögum, gera það refsivert að kaupa og þar með komið af stað enn verri vítahring.
Með því að gera vændi saknæmt, er verið að skapa undirheimaveröld sem mun efla um allan mun ólöglega neðanjarðarstarfsemi og þrælastarfsemi undirheimaklíka og mafíuvelda. Þetta mun þannig tengjast eiturefnaneyslu og sölu á fíkniefnum og hverfa frá hinum "þekkta" heimi hversdagsins. Öryggi þeirra sem selja líkama sinn, eða réttara sagt nota líkama sinn sem atvinnutæki, munu líða fyrir óöryggi og réttleysi gagnvart lögum og ekki njóta neinnar lagaverndar.
Er ekki betra að þessi elsta starfsgrein heimsins fái að vera til á yfirborðinu, leyfa mannlega virðingu fyrir heiðvirt starf, gefa þessu fólki sem starfar á sviði vændis heilbrigðisþjónustu, tryggingar og öryggi. Með því að fela vændið, hverfur það ekki. Það mun alltaf vera til. Það er mitt mat að mannréttindum og mannvirðingu sé betur skýlt og varið gegn því að fela þessa starfsgrein ekki.
![]() |
Vændið verði ólöglegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)