25.1.2009 | 08:17
Ísland á barmi taugaáfalls
Það er svo skrýtið að þegar ég hugsa til baka til stjórnmálasögunnar, eins og ég man hana, að hún hefur einkennst af lygum, leynimakki, hinu þekkta minnisleysi og gleymsku stjórnmálamanna, týndum minnisblöðum, kaupum á hlutabréfum í fyrirtækjum sem síðan má ekki tala um, eiginhagsmunapoti, nepótisma (frændsemishyggju í embættaveitingum), þekkingarleysi á "þjóðarsálinni" og almennum hroka. Þetta eru þær hugsanir sem veltast um í kollinum á mér þegar mér verður hugsað til stjórnmálamanna.
Það er oft eins og lygarnar myndi gaddavírsgirðingu milli fólksins og þingmanna/ráðherra. Þessi gaddavírsgirðing fær á sig mynd rósarunna og verður mér hugsað til þyrnigerðisins í ævintýrinu af Þyrnirós, nema bak við þyrnigerðið íslenska liggur ljótur svangur dreki.
Þreyta fólksins í landinu hefur náð hættumörkum. Í dag fer minna fyrir samúð fólksins, í dag fer meira fyrir hræðslu stjórnmálamanna og ótta. Þeir eiga á hættu að missa stólanna sína, hið ljúfa líf er á enda og ljóst að núna óttast þeir það eitt að fara á biðlaun og síðan að þurfa leita sér að störfum. Hver vill ráða þingmann sem hefur verið frá upphafi þingmennsku sinnar viljalaust verkfæri flokksagans? Hver vill ráða þingmann sem hefur tapað minninu og veit ekki hvað gerðist á síðasta fundið í fjárlaganefnd, sem týnt hefur "minnisblöðunum" sínum og man ekki hvort hann hefur farið á þá fundi með seðlabankastjórum sem skyldan býður honum? Ekki ég. Líklega best að setja slíka einstaklinga í starfsnám einhversstaðar en ekki í ábyrgðarfullar stöður neins staðar.
Mér finnst að tillagan sem ég heyrði einhversstaðar um að kjósa ætti í maí, væri slæm. Í raun á bara að setja utanþingsstjórn. Sem síðan mun veita okkur tíma til að endurskapa lýðræðið og fá inn nýtt fólk og ný skírara pólitískt afl.
![]() |
Rof milli þings og þjóðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2009 | 12:53
Nokkrir hlutir sem vinna þarf að nú þegar:
1. Setja utanþingsstjórn
2. Losa Ísland undan afskiptum IMF og afþakka alla aðstoð þeirrar stofnunar.
3. Lækka nýhækkaða vaxtaprósentu. Fella niður alla vexti af innlánum í bönkum í 2 ár.
4. Einfalda rekstur Seðlabanka Ísland. Endurnýja og fækka í stjórn allra fjármálastofnanna.
5. Boða til þingkosninga að 2 árum liðnum. Nýjir flokkar, nýtt fólk, ný lýðræðishugsun.
6. Vinna að gerð nýrra stjórnarskrár.
7. Setja í gang alhliða rannsókn á fjárflutningi stóreignamanna frá Íslandi sl. 3 ár.
8. Rannsaka "neoptism" [ http://sv.wikipedia.org/wiki/Nepotism ] í embættaveitingum.
9. Skoða kostnað ráðuneyta af ónauðsynlegum ferðalögum og veisluhöldum.
10. Tengja íslensku krónuna þeirr norsku og hefja gerð viskiptabandalags við Norðmenn.
![]() |
Stjórnarskipti breyta engu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2009 | 22:56
Of seint að kjósa í maí
Það er of seint að kjósa í maí. Þá munu falla á íslenska þegna þessa lands miklar skuldir og því rétt að ný stjórn hafi tekið við nokkru áður, eða síðast einum mánuði áður. Ég tel rétt að fara út í kosningar eigi síðar 22. mars. Það er ljóst að stjórnarflokkarnir reyna hvað þeir geta að halda sem lengst í stjórnartauma. Það eru augljóslega ekki hagsmunir þjóðarinnar sem bornir eru fyrir brjósti, heldur eigin hagsmunir og sá tími sem stjórnarflokkarnir þurfa til að breiða yfir og fela óskaparverk sín.
Stjórnin frá! Utanþingsstjórn strax.
![]() |
Geir: Kosið í maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2009 | 11:05
Flettismettið farið að sækja í sig veðrið
Þetta er náttúrulega alveg klikkað! Netið sannarlega getur sett fólk úr jafnvægi. Frétti um konu sem hafði skrifað í "tilkynningadálkinn á facebook.com "Er döpur, líklega dey ég í dag". Nú það vantaði ekki viðbrögðin hjá öllum skráðum vinum og vandamönnum sem og fjölda annara. Hún þurfti nú að svara þessari athygli og varð bráðspræk fyrir vikið. Svona gekk þetta nokkrum sinnum. Þegar hún varð leið á hversdeginum skrifaði hún eitthvað í líkingu við ofansagt. Svo fór viðbrögðum fólks að linna og loks enginn sem sýndi þessu "kalli" hennar neina athygli. Svo einn dag varð hún svo fúl og leið yfir þessu og sárlega svekt út í fólk að taka ekki hótanir hennar alvarlega, að hún tók líf sitt.
Þetta er hryggileg frásögn ekki síður en sú sem frétt Mbl. segir frá. Netið getur verið hættulegt á marga vísu. Ein frétt frá Kanada sagði frá því að 24 ára stelpa hafði fitnað um 30 kg á hálfu ári bara af því að sitja við tölvuna sína og hreyfa sig ekki lengur (var í fjarnámi). Einn 31 árs maður fannst dáinn við tölvuna sína, en hann mun hafa legið með andlitið á lyklaborðinu í 3 vikur. Það var enginn af "netvinum" hans sem gerði viðvart, nei það var pósturinn. Svona getur lífið verið skrýtið.
logout....
![]() |
Myrti fyrrum eiginkonu sína vegna stöðubreytingar á Facebook |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 18:16
Undirskriftasöfnun - áskorun
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.1.2009 | 17:17
UTANÞINGSSTJÓRN
Utanþingsstjórn strax!
Óskaplega er mönnum annt um stólana sína á Alþingi. Það er ekki þjóðin sem er sett fremst, nei - stólarnir. Össur hefur ekki íhugað að það sé kannski best fyrir þjóðina að skipa UTANÞINGSSTJÓRN. Forseti Ísland (eini beint þjóðkjörni fulltrúi þjóðarinnar) myndi sitja í forsæti og kalla til sérhæfða einstaklinga til að sinna rekstri og áfallsjöfnun þjóðarbúsins, sem nú bráðum fær fleiri þunga skelli. Því er brýnt að hæfir einstaklingar, ekki neinir stólabundnir froðusnakkar sitji í vegi fyrir umbótum og nýju lýðræði.
![]() |
Viljum ekki stjórnarkreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 09:20
Stigmögnun - og svo sögulok
Mér brá ekkert sérstaklega þegar ég sá þessa frétt í morgun. Ég hef hálft í hvoru beðið þessa. Björn dómsmálaráðherra hefur sennilega fengið upphringingu frá hræddum Geir forsætisráðherra: "Bjössi minn, það er bara allt að verða brjálað og liðið hefur subbað út bílinn minn".
Nei, í alvöru þá var þetta fyrirsjáanlegt. Stigmögnunin á sér ekki bara stað hjá fólkinu, heldur og stjórnmálamönnunum líka. Svona kallast fylkingarnar á! Þetta er ljótt að sjá á friðsæla fallega Íslandi í dag.
Til notkunar táragass hefði ekki þurft að koma! Það vita stjórnmálamenn! Svona langt átti þetta aldrei að ná.
![]() |
Táragasi beitt á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2009 | 19:40
Það er ábyrgðareysi að leyfa stjórninni að sitja
Veruleikafirring og sjálfsupphafning er alvarlegur hlutur, ekki síst þegar slíkt fyrirfinnst í ríkisstjórn eins lands. Ég tel að ástandið í íslenskum stjórnmálum sé svo komið að trúverðugleiki sé allur horfinn á Alþingi og framkvæmdavaldi. Trúverðugleiki banka- og fjármálastjórnkerfis ríkisins er horfinn. Áður en landið líður enn fyrir stjórnleysi, því stjórnarflokkarnir virðast með öllu vanhæfir til stjórnarathafna því enginn tekur lengur mark á þeim. Froðusnakk og innihaldslausar fullyrðingar ríkisstjórnarinnar líkjast helst því að vera grýttur með poppkorni. Orðin býta ekki, þjóðin trúir ekki ráðamönnum og í dag heyrði ég talað um "meinta ríkisstjórn" Íslands. Átt var við með þeim orðum að ekki væri hægt að sannprófa valdsvið sitjandi ríkisstjórnar, ekki fremur en óþekkt gengi íslensku krónunnar.
Ég hvet þingmenn og ráðherra að segja af sér!
SETJUM UTANÞINGSSTJÓRN UNDIR FORSÆTI FORSETA ÍSLANDS
(sem er eini kjörni fulltrúi þjóðarinnar sem kjörinn er beinni kosningu).
![]() |
Ábyrgðarleysi að leysa upp stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 11:09
Hryggileg sjón að sjá!
Sorglegt að sjá farið illa með góðan, þjóðheilan málstað. Látum ekki skrílslæti eyðileggja fyrir okkur. Við erum reið, en látum ekki skrílslæti fara með góðan málstað í gröfina.
Að brjóta rúður, skemma almannaeigur og valda tjóni, gerir róðurinn bara léttari fyrir ríkisvaldið að beita ónauðsynlegri hörku. Skemmdarverk skrifast bara á reikning sem verður svo sendur þjóðinni og hver er ávinningurinn þá? Skilaboðin verða óskýr og blendin með skemmdarverkum og skrílslátum. Að brenna Óslóartréð er skammarlegt. Það er gjöf frá annarri þjóð. Og hefur ekkert með nein yfirvöld að gera. Það er gjöf fólksins í Osló til fólksins í Reykjavík. Látum ekki reiði okkar bitna á dauðum hlutum og eigum okkar sjálfra.
Slíkt eyðileggur fyrir okkur öllum.
![]() |
Jólatréð brennt á bálinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2009 | 09:56
Spurningarnar mínar hér í vinstri dálk: Facit
Hérna til vinstri hafa verið í einn mánuð nokkrar spurningar sem mig langar gefa rétt svör við:
1. Telur þú að lífsgæði þín munu minnka undir árið 2009? Svar: Allar hagtölur og spár gefa til kynna að lífsgæðum Íslendinga muni fara aftur árið 2009 og reyndar komandi ár. Þetta styðja erlendar spár sömuleiðis. Svo, byrjið að spara, fara vel með og vera aðhaldssöm.
2. Hver var páfi á undan Píusi XI (1922-1939)? Svar: Benedictus XV. (1914-1922). Gaman að sjá hvað mörgum þótti nafnið Callixtus III. (1455-1458) og Leó XIII. (1878-1903) vera líkleg.
3. Hvenær verður hlaupaár næst? Svar: 2012.
4. Hvaða þjóðfáni er "elsti" fáni heims? Svar: Sá danski, Dannebrog.
20.1.2009 | 18:56
"Sárt býtur soltin lús!"
Það er sagt að þegar sveltur og allslaus lýðurinn hékk á grindunum við hlið Versalahallar við upphaf Frönsku byltingarinnar og bað um brauð, hafi Marie Antoinette drottning spurt hvers vegna fólkið borðaði þá ekki bara kökur?
Þessi saga er náttúrulega bara saga, en segir mikið um þá veruleikafirringu sem ráðafólk hins franska konungsríkis lifði í. Í dag getum við sagt að drottningin vissi bara ekki betur. Annað getum við sagt um stjórnmálamenn íslenska. Þeir vita best sjálfir að þeir valda ekki stjórnartaumum, þeir heyra raddir fólksins, þeir vita hversu stjórnarathafnir þeirra hafa skapað díki sem þeir hafa hratt þjóðinni út í.
Íslendingar eru fjallduglegt fólk, þolgæðið jaðrar við hið ómöglega - en munum að sárt bítur soltin lús. Með táragasi og kylfum leitast lögreglan við að halda fólkinu frá illvættum sínum. Það er slegið á fálmandi hendur fólksins sem á von í hjarta og vill hefja nýuppbyggingu. Nýuppbyggingu á Lýðveldinu Íslandi. Ný lýðræðishugsjón er að vakna, vaxtarbroddur þess fræs hefur byrjað að skjóta upp kollinum. Þennan vaxtarbrodd vilja stjórnmálamenn íslenskir óðir slá af.
Slíkur er drengskapurinn! Burt með spillingarliðið og inn með nýja hugmyndafræði og lýðræðishugsjón.
![]() |
Þjóðin var í Alþingisgarðinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.1.2009 | 09:51
Margur veit betur
(1 danskur spesíudalur frá 1670)
Það hellist nú yfir Ísland flóðbylgja sérfræðinga sem allir halda að þeir geti með gáfulegum frösum bjargað ástandinu og gert komandi áföll mjúkari fyrir þjóðina. Margir hafa mælt fyrir upptöku EURO fyrir íslenska efnahagslífið sem einskonar töfralausn. Að allt verði betra þá og vandinn hverfi sem dögg fyrir sólu. Þetta fólk er annaðhvort illa grunnhyggið eða afskaplega fálega upplýst.
Hverju stoðar að hvítmála yfir rakaskemmdir á húsvegg? Innan skamms mun rakinn taka sig í gegnum nýju málninguna og skapa enn meiri vanda. Rekjan á upphaf sitt einhversstaðar og ljóst að koma verður fyrir ástæðu skemmdanna, en ekki reyna að mála yfir vandann. Hann mun alltaf skjóta upp kollinum.
Umræðan um einhverskonar efnahagssamband milli Íslands og annars lands eða fjölþjóðaríkja hefur verið viðloðandi lengi. Þörf fyrir sterka efnahagslegar heildir eða einskonar bakland er skynsamleg. Ísland er í sjálfu sér of lítið í stærra samhengi til að geta verið "berandi" fyrir sjálfsstæða mynteiningu.
Ég legg til, að Ísland tengi Íslensku krónuna þeirri norsku. Að leitast verið við að efnahagstengsl þessara tveggja landa verði styrkt til mikilla muna. Síðar verði Norðurlöndunum hinum gefin kostur á því að selja eigin framleiðslu gegn lágum tollum innan norsk-íslenska efnahagssvæðisins.
Síðan sláum við fallega mynt þar sem hvort land um sig á sína hlið! :)
![]() |
Einhliða upptaka evru óviðeigandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2009 | 18:48
Vorboði í samskiptum
Í kirkjunni í dag var mér hugsað til hins hræðilega stríðs milli Ísraela og Palestínumanna. Ég minntist orða 73. Saltarsálms en upphafsorð hans eru: "Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá sem hjartahreinir eru." Já, Guð er góður þeim sem þrá frið, því friðflytjendur eru hans. Mótstöðumenn friðar, er mótstöðumenn Guðs. Þegar hörmungarnar eru yfirstaðnar, munu hjartahreinir og friðelskendur lifa þá von sína um frið. Margir hafa dáið og sennilega munu enn margir láta líf sitt.
Friður er uppspretta góðra hluta, hagsældar og blessunarríks lífs. Sáttin er verkfæri Guðs. Hann réttir hana út sem veldissprota til þess sem vill frið og veit að ekkert gott blómstrar í ófriði, mannfalli og virðingarleysi. Umburðarlyndi, kærleikur og fyrirgefning eru óskaorðin okkar nú. Minnumst þess sem gefur, líknar, bætir og stýrir til góðs. Svo er með þá sem hreykjast upp í vonsku sinni, beita vopnum til að öðlast völd yfir löndum og fólki, að þeir eru settir á vogaskálarnir mót hinum góðu. Vonskan ræður fyrir mörgum löndum og þjóðum í dag. En vert er að muna að aðeins með andblæ Drottins lyftist skál hinna vondu og hinir góðu munu með andadrætti Guðs, bera vonskuna ofurliði.
Biðjum fyrir friði, heima og heiman, sátt og fyrirgefningu. Annars munum við aldrei verða þær manneskjur sem við vorum sköpuð að vera.
![]() |
Lýsa yfir vikulöngu vopnahléi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2009 | 18:57
Svört jörð: nauðyrkja
Stórar alþjóðlegar verslunarkeðjur hafa um árabil staðið í kaupum/legutöku á jarðnæði út um allan heim. Þetta virðist kannski ekki vera neitt til að taka upp hér, en einhvern veginn hafa hugsanir mínar bundist þessum uppkaupum og leigu verslanakeðjanna.
Mig langar að skýra út hér hvað býr að baki vangaveltum mínum. Fyrir nokkru heyrði í útvarpi hér ytra samtal sérfræðings í þróunaraðstoð og þróunaraðstoðaráætlanagerð og umsjónar manns þáttarins. Það reyndar var nokkru síðar að ég áttaði mig á alvarleika þess sem rætt var um í útvarpsþættinum.
Í fjölda ára hafa stórfyrirtæki í matvælaiðnaði staðið í fjárfestingum á landnæði í Suður-Ameríku, Rússlandi, Asíu og sér í lagi Afríku. Ástæða þessara fjárfestinga og leigutöku jarðnæðis (oft í fátækustu löndunum í hverri álfu) er fyrirsjáanlegur skortur á mat í framtíðinni. Nú hafa t.d. Kínverjar hafið kaup á landnæði í fátækum löndum Afríku. Fyrirsjáanlegur skortur á heppilegu landnæði í Kína fyrir rækt matvæla er þegar fyrir löngu orðinn ljós. Hér eru gerðir ýmist leigusamningar til 90 ára eða land hreinlega keypt á hófsamlegu verði. Ekkert lát er heldur á því að stóru matvælakeðjurnar í Evrópu og Bandaríkjunum standi í svipuðum viðskiptum. Sum þessara fyrirtækja hafa hátæknibúnað til að stýra sáningu og uppskeru sem stýra má með gervihnattabúnaði.
Þessi þróun er skelfileg. Sjálfsþurftarbúskapur sem oft er byggður á aldalangri þekkingu á getu jarðar til að framleiða og endurnýjast hverfur fyrir nauðyrkju og framið er bókstaflega arðrán á gjöfum jarðar. Aukin notkun efna og næringar sem auka á framleiðni breytir jafnvægi náttúrunnar og efnasamsetningar grunnvatns. Vítahringurinn er hafinn. Vatnsból mengast, vatn "drepst" og þegar þessi spilliefni berast til hafs deyr hafið. Fullkomin röskun verður á jafnvægi náttúrunnar og skaðinn er skeður.
Iðnríkin, gróðrarstía velferðarsjúkdóma og spilavítishagkerfis munu í krafti efnahagslegra yfirburða sinna setja ríki þessara landa í ánauð. Í dag þurfa þessi ríki fjármagn og það fljótt. Skotfenginn gróði án framtíðarsýnar verður reipið um háls sumra Afríkuríkja, Asíulanda og Suður-Ameríkulanda.
Ég hvet Íslendinga að skipa sér í flokk andstæðinga kaupa á svartri jörð. Svo hefur það jarðnæði verið kallað sem keypt eða leigt er til nauðyrkju.
15.1.2009 | 10:42
Tragikómík að hætti Geirs Haarde!
Það er litið sorglegt að sjá hvernig Ísland er að hverfa út af korti þeirra sem láta sig viðskipti og efnahagslíf varða í hinum stóra heimi. Það er talað um efnahagslegt eftirsjálfsmorð. Hér á fólk við með því orðinu að íslenska efnahagskerfið var þegar komið að fótum fram. Náðarhöggið reiddi svo ríkisstjórnin á Mikjálsmessu í haust. En einhverjum hefur ekki þótt bitið úr nálinni og rekum kastað svo ríkisstjórn Geirs Haarde ákvað að halda veislunni áfram og berja á sjálfu líkinu, íslensku efnahagslífi.
Einhvern hefði sagt hér áður fyrr að þetta væri ljótt, illa gert og fólskulegt. Ég tek undir það! En þjóðin er sátt, Alþingið er sátt, fjármálastofnanir eru sáttar, Geir og Davíð eru sáttir. Enginn gerir neitt nema sér lífsandann fjara úr þjóðarvitundinni. Hvernig má þetta vera. Það koma gjarnan upp sterk orð hér á blogginu sé ég þegar ég les blogg annarra. Fólkið er ýmist hatursfullt, beygt, lamað, úrræðalítið - vonlaust.
Það setur sorg að hjarta mínu að sjá hvernig ríkisstjórn Geirs Haarde hefur farið illa að ráði sínu. Fallið frá málssókn á hendur Bretum, haldið uppi sýndarvörnum, farið bak við þjóðina og sannarlega brotið niður baráttuþrek þjóðarinnar. Ég leyfi mér að taka upp gamla lummu sem ég hefi áður rætt hér fyrir margt löngu á blogginu mínu og aðrir hafa byrjað að hreyfa máls við: Utanþingsstjórn. Stjórn sem ekki er setin neinum af þeim sem sitja nú.
Aðrir hafa af hreinum hug nefnt stjórnlagaþing, þjóðstjórn og slíkt. En sá galli er þá á gjöf Njarðar að þá sitja áfram þeir sem leiddu íslensku þjóðina í gröfina. Við verðum að hreinsa út það fólk sem hefur skapað þá óreiðu og ólgusjó sem þjóðarskútan er í. Hún hefur þegar fengið á sig marga brotsjó. Hún helst ekki lengi á floti ef ekkert róttækt verður að gert. Þeim aðgerðum sem þörf er á valda ekki Geir Haarde og ríkis"stjórn" hans. Þannig er það! Burt með spillingarliðið!
![]() |
Neita að tryggja Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2009 | 18:42
Ekki gaman að vera Íslendingur
Nú er það svo að gengi íslensku krónunnar hefur ekki verið skráð í rúma fjóra mánuði. Svona leit gengisskráningartaflan út hjá einum gjaldeyrismiðlara á Strikinu í Kaupmannahöfn þann 31.12.2008 kl. 13:35. EKki gaman að vera Íslendingur.
Vesældómi íslenskra stjórnmálamanna er að þakka þetta. Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitinu og Ríkisstjórn (og Alþingi sem vinnur fyrir ríkisstjórnina) kann ég engar þakkir. Mér fannst eins og stolt Íslendingsins hyrfi skyndilega þegar ég sá þetta.