Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ópólitíska ráðherra!

Hér kemur mín tillaga til endurbóta. Það sem Geir forsætisráðherra virðist gersamlega genginn úr falsinum vil ég rétta honum hjálparhönd þann stutta tíma sem hann á eftir á forsætisráðherrastóli:

Gerðu tillögu um einstakling sem er sérhæfur á sviði banka- og efnahagsmála. Hér skiptir engu máli hvort hann er Íslendingur eða ekki. Veldu þann besta í geiranum.

Í framtíðar stjórnarskrárbreytingu mun það verða sett inn að þingmenn sem taka við ráðherraembætti verði að segja af sér þingmennsku.  Reglan verði því að í framtíðinni verði óheimilt að hafa á sömu hendi framkvæmdarvald og löggjafarvald.


mbl.is Útilokum ekki breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósemja og trúnaðarbrot milli þjóðar og ráðamanna

Í dag var ég að hlusta á hádegisfréttatíma ríkisútvarpsins hér í Svíþjóð. Önnur frétt fréttatímans hafði með Ísland að gera. Tilkynnt var að bankamálaráðherra hefði Björgvin Sigurðsson hefði sagt af sér, að hann hefði ekki séð sér fært að starfa lengur. Ástæðan: Að hann nyti ekki trúnaðar fólksins og að hann vildi axla ábyrgð á fyrir ráðuneyti sitt. Ekki brá mér neitt svakalega. Ég hafði hálft í hvoru búist við að honum yrði fórnað til að sætta þjóðina. "Betra að einn deyi fyrir lýðinn, en að lýðurinn allur farist",eins og stendur í Biblíunni. En þessi fórnfæring stjórnarflokkanna bætir ekki líðan fólksins. Öll ríkisstjórnin verður að fara frá. Ósemjan er tilfinnanleg og trúverðugleikinn er horfinn með öllu.

Fjölskyldan mín átti einusinni kött. Hann hét Cató. Hann var fínn gulbröndóttur kisi og öll höfðum við hvert og eitt tilfinningar til Catós. Það var alltaf vel hugsað um Cató og til að honum liði vel og lifði heilbrigðu lífi fékk hann reglubundið fara til læknisskoðunar og síðan fékk hann sérstaka ormahreinsunarsprautu. Síðan leið Cató vel á eftir, hreinn og endurnýjaður af kröftum.

Stjórnmálaflokkarnir okkar þurfa nú á slíkri "sprautu" að halda. Það er þörf fyrir ormahreinsun. Ég mæli með pólitískri stólpípu til að losa um spillingu, ósannindi, skyldmennapot (nepótisma) og pólitískar misbeitingu (óhóf).

Nú bíð ef eftir að bankaráðin, fjármálaeftirlitið og síðast en ekki síst bankastjórar Seðlabanka Íslands hverfi frá stólum sínum. Mælist ég til að ekki verði aftur ráðið í stóla þessa fólks. Heldur verði stokkað upp og búið til nýtt einfaldara og ódýrara kerfi sem muni vera ráðgefandi (ekki hafa völd) fyrir ráðherra fjár- og bankamála framtíðarinnar.  "Skilvirkni og heiðarleiki" verði  kjörorð hverrar ráðgjafanefndar. 

Oft og lengi hefur verið þörf - en nú er nauðsyn.


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland á barmi taugaáfalls

Það er svo skrýtið að þegar ég hugsa til baka til stjórnmálasögunnar, eins og ég man hana, að hún hefur einkennst af lygum, leynimakki, hinu þekkta minnisleysi og gleymsku stjórnmálamanna, týndum minnisblöðum, kaupum á hlutabréfum í fyrirtækjum sem síðan má ekki tala um, eiginhagsmunapoti, nepótisma (frændsemishyggju í embættaveitingum), þekkingarleysi á "þjóðarsálinni" og almennum hroka. Þetta eru þær hugsanir sem veltast um í kollinum á mér þegar mér verður hugsað til stjórnmálamanna.

Það er oft eins og lygarnar myndi gaddavírsgirðingu milli fólksins og þingmanna/ráðherra. Þessi gaddavírsgirðing fær á sig mynd rósarunna og verður mér hugsað til þyrnigerðisins í ævintýrinu af Þyrnirós, nema bak við þyrnigerðið íslenska liggur ljótur svangur dreki.

Þreyta fólksins í landinu hefur náð hættumörkum. Í dag fer minna fyrir samúð fólksins, í dag fer meira fyrir hræðslu stjórnmálamanna og ótta.  Þeir eiga á hættu að missa stólanna sína, hið ljúfa líf er á enda og ljóst að núna óttast þeir það eitt að fara á biðlaun og síðan að þurfa leita sér að störfum.  Hver vill ráða þingmann sem hefur verið frá upphafi þingmennsku sinnar viljalaust verkfæri flokksagans?   Hver vill ráða þingmann sem hefur tapað minninu og veit ekki hvað gerðist á síðasta fundið í fjárlaganefnd, sem týnt hefur "minnisblöðunum" sínum og man ekki hvort hann hefur farið á þá fundi með seðlabankastjórum sem skyldan býður honum?  Ekki ég.  Líklega best að setja slíka einstaklinga í starfsnám einhversstaðar en ekki í ábyrgðarfullar stöður neins staðar.

Mér finnst að tillagan sem ég heyrði einhversstaðar um að kjósa ætti í maí, væri slæm.  Í raun á bara að setja utanþingsstjórn. Sem síðan mun veita okkur tíma til að endurskapa lýðræðið og fá inn nýtt fólk og ný skírara pólitískt afl.


mbl.is Rof milli þings og þjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrir hlutir sem vinna þarf að nú þegar:

1. Setja utanþingsstjórn

2. Losa Ísland undan afskiptum IMF og afþakka alla aðstoð þeirrar stofnunar.

3. Lækka nýhækkaða vaxtaprósentu. Fella niður alla vexti af innlánum í bönkum í 2 ár.

4. Einfalda rekstur Seðlabanka Ísland. Endurnýja og fækka í stjórn allra fjármálastofnanna.

5. Boða til þingkosninga að 2 árum liðnum. Nýjir flokkar, nýtt fólk, ný lýðræðishugsun.

6. Vinna að gerð nýrra stjórnarskrár.

7. Setja í gang alhliða rannsókn á fjárflutningi stóreignamanna frá Íslandi sl. 3 ár.

8. Rannsaka "neoptism" [ http://sv.wikipedia.org/wiki/Nepotism ] í embættaveitingum.

9. Skoða kostnað ráðuneyta af ónauðsynlegum ferðalögum og veisluhöldum.

10. Tengja íslensku krónuna þeirr norsku og hefja gerð viskiptabandalags við Norðmenn.


mbl.is Stjórnarskipti breyta engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of seint að kjósa í maí

Það er of seint að kjósa í maí. Þá munu falla á íslenska þegna þessa lands miklar skuldir og því rétt að ný stjórn hafi tekið við nokkru áður, eða síðast einum mánuði áður. Ég tel rétt að fara út í kosningar eigi síðar 22. mars. Það er ljóst að stjórnarflokkarnir reyna hvað þeir geta að halda sem lengst í stjórnartauma. Það eru augljóslega ekki hagsmunir þjóðarinnar sem bornir eru fyrir brjósti, heldur eigin hagsmunir og sá tími sem stjórnarflokkarnir þurfa til að breiða yfir og fela óskaparverk sín.

Stjórnin frá!  Utanþingsstjórn strax.


mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftasöfnun - áskorun

 

http://www.nyttlydveldi.is/

 

 


UTANÞINGSSTJÓRN

islfani

Utanþingsstjórn strax!

Óskaplega er mönnum annt um stólana sína á Alþingi. Það er ekki þjóðin sem er sett fremst, nei - stólarnir. Össur hefur ekki íhugað að það sé kannski best fyrir þjóðina að skipa UTANÞINGSSTJÓRN. Forseti Ísland (eini beint þjóðkjörni fulltrúi þjóðarinnar) myndi sitja í forsæti og kalla til sérhæfða einstaklinga til að sinna rekstri og áfallsjöfnun þjóðarbúsins, sem nú bráðum fær fleiri þunga skelli. Því er brýnt að hæfir einstaklingar, ekki neinir stólabundnir froðusnakkar sitji í vegi fyrir umbótum og nýju lýðræði.


mbl.is Viljum ekki stjórnarkreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ábyrgðareysi að leyfa stjórninni að sitja

Veruleikafirring og sjálfsupphafning er alvarlegur hlutur, ekki síst þegar slíkt fyrirfinnst í ríkisstjórn eins lands. Ég tel að ástandið í íslenskum stjórnmálum sé svo komið að trúverðugleiki sé allur horfinn á Alþingi og framkvæmdavaldi. Trúverðugleiki banka- og fjármálastjórnkerfis ríkisins er horfinn. Áður en landið líður enn fyrir stjórnleysi, því stjórnarflokkarnir virðast með öllu vanhæfir til stjórnarathafna því enginn tekur lengur mark á þeim. Froðusnakk og innihaldslausar fullyrðingar ríkisstjórnarinnar líkjast helst því að vera grýttur með poppkorni.  Orðin býta ekki, þjóðin trúir ekki ráðamönnum og í dag heyrði ég talað um "meinta ríkisstjórn" Íslands.  Átt var við með þeim orðum að ekki væri hægt að sannprófa valdsvið sitjandi ríkisstjórnar, ekki fremur en óþekkt gengi íslensku krónunnar.

Ég hvet þingmenn og ráðherra að segja af sér! 

SETJUM UTANÞINGSSTJÓRN UNDIR FORSÆTI FORSETA ÍSLANDS

(sem er eini kjörni fulltrúi þjóðarinnar sem kjörinn er beinni kosningu).


mbl.is Ábyrgðarleysi að leysa upp stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sárt býtur soltin lús!"

 

Það er sagt að þegar sveltur og allslaus lýðurinn hékk á grindunum við hlið Versalahallar við upphaf Frönsku byltingarinnar og bað um brauð, hafi Marie Antoinette drottning spurt hvers vegna fólkið borðaði þá ekki bara kökur?

Þessi saga er náttúrulega bara saga, en segir mikið um þá veruleikafirringu sem ráðafólk hins franska konungsríkis lifði í.  Í dag getum við sagt að drottningin vissi bara ekki betur. Annað getum við sagt um stjórnmálamenn íslenska. Þeir vita best sjálfir að þeir valda ekki stjórnartaumum, þeir heyra raddir fólksins, þeir vita hversu stjórnarathafnir þeirra hafa skapað díki sem þeir hafa hratt þjóðinni út í.

Íslendingar eru fjallduglegt fólk, þolgæðið jaðrar við hið ómöglega - en munum að sárt bítur soltin lús. Með táragasi og kylfum leitast lögreglan við að halda fólkinu frá illvættum sínum. Það er slegið á fálmandi hendur fólksins sem á von í hjarta og vill hefja nýuppbyggingu. Nýuppbyggingu á Lýðveldinu Íslandi. Ný lýðræðishugsjón er að vakna, vaxtarbroddur þess fræs hefur byrjað að skjóta upp kollinum. Þennan vaxtarbrodd vilja stjórnmálamenn íslenskir óðir slá af. 

Slíkur er drengskapurinn!   Burt með spillingarliðið og inn með nýja hugmyndafræði og lýðræðishugsjón.


mbl.is Þjóðin var í Alþingisgarðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tragikómík að hætti Geirs Haarde!

Það er litið sorglegt að sjá hvernig Ísland er að hverfa út af korti þeirra sem láta sig viðskipti og efnahagslíf varða í hinum stóra heimi. Það er talað um efnahagslegt eftirsjálfsmorð. Hér á fólk við með því orðinu að íslenska efnahagskerfið var þegar komið að fótum fram. Náðarhöggið reiddi svo ríkisstjórnin á Mikjálsmessu í haust. En einhverjum hefur ekki þótt bitið úr nálinni og rekum kastað svo ríkisstjórn Geirs Haarde ákvað að halda veislunni áfram og berja á sjálfu líkinu, íslensku efnahagslífi. 

Einhvern hefði sagt hér áður fyrr að þetta væri ljótt, illa gert og fólskulegt.  Ég tek undir það!  En þjóðin er sátt, Alþingið er sátt, fjármálastofnanir eru sáttar, Geir og Davíð eru sáttir.  Enginn gerir neitt nema sér lífsandann fjara úr þjóðarvitundinni.  Hvernig má þetta vera. Það koma gjarnan upp sterk orð hér á blogginu sé ég þegar ég les blogg annarra. Fólkið er ýmist hatursfullt, beygt, lamað, úrræðalítið - vonlaust. 

Það setur sorg að hjarta mínu að sjá hvernig ríkisstjórn Geirs Haarde hefur farið illa að ráði sínu. Fallið frá málssókn á hendur Bretum, haldið uppi sýndarvörnum, farið bak við þjóðina og sannarlega brotið niður baráttuþrek þjóðarinnar.  Ég leyfi mér að taka upp gamla lummu sem ég hefi áður rætt hér fyrir margt löngu á blogginu mínu og aðrir hafa byrjað að hreyfa máls við: Utanþingsstjórn. Stjórn sem ekki er setin neinum af þeim sem sitja nú.

Aðrir hafa af hreinum hug nefnt stjórnlagaþing, þjóðstjórn og slíkt. En sá galli er þá á gjöf Njarðar að þá sitja áfram þeir sem leiddu íslensku þjóðina í gröfina. Við verðum að hreinsa út það fólk sem hefur skapað þá óreiðu og ólgusjó sem þjóðarskútan er í. Hún hefur þegar fengið á sig marga brotsjó.  Hún helst ekki lengi á floti ef ekkert róttækt verður að gert.  Þeim aðgerðum sem þörf er á valda ekki Geir Haarde og ríkis"stjórn" hans.   Þannig er það!  Burt með spillingarliðið!


mbl.is Neita að tryggja Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband